Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 5 – bankinn þinn ... saman! Eftir Sigurð Sigmundsson Hrunamannahreppur | Hjalti Gunn- arsson á Kjóastöðum í Bláskóga- byggð hefur farið hundrað hesta- ferðir yfir Kjöl. Hann hefur séð um ferðir fyrir Íshesta í mörg ár. Á hverju ári koma mörg þúsund erlendir ferðamenn til að fara í hestaferðir í íslenskri náttúru. „Já, þetta er hundraðasta ferðin,“ segir Hjalti og brosir þegar frétta- ritari hittir hann og fólkið hans á Bláfellshálsi. Hann segist hafa verið með átján til tuttugu gesti að jafn- aði í ferð og fjóra til fimm aðstoð- armenn sem sjá um rekstur hest- anna, járningar og annað sem gera þarf í slíkum ferðum. Ferðin yfir Kjöl tekur sex daga og er gist í skál- um á leiðinni. Hjalti hefur því farið með hátt í tvö þúsund farþega í þessar ferðir. „Ég er með þrjá hesta á farþega en aðstoðarmennirnir fjóra til fimm. Það er stoppað í sólarhring fyrir norðan og þar koma nýir farþegar og ríða suður. Hver ferð tekur því fjórtán daga,“ segir Hjalti. Flestar ferðirnar hafa gengið áfallalaust, að hans sögn, en þó hafa orðið slys og önnur óhöpp. Þannig fótbrotnaði maður illa í ferð fyrir nokkrum árum. „Við kölluðum eftir þyrlu en breskur læknir sem var með í för hlúði að manninum þar til þyrlan kom,“ segir Hjalti. Hann segir að gestirnir hafi verið frá fjölmörgum löndum. „Norður- landabúar, Þjóðverjar og Austur- ríkismenn eru oft margir, sömuleið- is Ameríkumenn og nú eru Rússar farnir að sækja í þessar ferðir. Fólkið segist vera heillað af víðátt- unni og hinni stórbrotnu náttúru landsins.“ Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson Öræfakóngur Hjalti Gunnarsson kemur úr hestaferð yfir Kjöl. Hundraðasta hestaferðin yfir Kjöl SAMÖNGUR fóru víða úr skorð- um í gær vegna óveðurs sem gekk yfir landið. Ekkert var flogið inn- anlands fram eftir degi, eða þar til í gærkvöldi þegar flugvél Flug- félags Íslands fór af stað til Egils- staða. Öllu flugi til Akureyrar, Ísa- fjarðar og Vestmannaeyja var hins vegar frestað. Athuga átti með flug til Akureyrar klukkan 6.20 í morgun. Áfram var þó flogið til Grænlands og Færeyja. Þá var fyrri ferð Vestmanna- eyjaferjunnar Herjólfs aflýst. Síð- ari ferðin kl. 19 var hins vegar far- in. Næturferðin féll einnig niður. Þá var öllum ferðum Viðeyjar- ferjunnar aflýst. andri@mbl.is Lítið flog- ið í gær Veðrið hafði áhrif Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is „BÆJARYFIRVÖLD í Kópavogi hafa ætíð lagt sig fram um að kynna hugmyndir að breytingu á skipulagi vandlega. […] Skipulag er í sífelldri þróun. Hugmyndir og afstaða manna breytast í tímans rás og því er óger- legt að fallast á að skipulag verði óbreytt um ókomna framtíð,“ segir í tilkynningu frá Kópavogsbæ. Í fyrrakvöld mótmæltu íbúar í Lindahverfi harðlega fyrirhugðum breytingum á deiliskipulagi Linda- hverfis á fjölmennum íbúafundi í bænum. En til stendur að reisa 10 hæða háhýsi við Bæjarlind og 9 hæða háhýsi við Elko í Skógarlind auk 130.000 ferm. skrifstofuhúsnæð- is á Gustssvæði. 100 störf færast í bæjarfélagið Íbúafundurinn ályktaði m.a gegn deiliskipulagsbreytingu sem felst hækkun mannvirkis fyrir væntan- legar höfuðstöðvar Norvikur í Skóg- arlind. Samkvæmt upplýsingum frá bænum færast 100 störf í bæjar- félagið verði tillagan að veruleika. Ekki er gert ráð fyrir fjölgun bíla- stæða á yfirborði heldur er um að ræða tveggja hæða bílageymslu neð- anjarðar. Umræddri aukningu á byggingarmagni fylgir 700 bíla um- ferð á sólarhring. Við skipulag Lindahverfis var tek- ið mið af kröfum um umferðaröryggi á gönguleiðum til og frá skóla. Eig- endum Skógarlindar 1 og 2 hafa ver- ið gefin fyrirmæli um að ganga frá byggingarsvæði sínu svo að börn og aðrir fari sér ekki að voða. Mengunar- og hávaðamælingar verða settar á framkvæmdaáætlun í samræmi við óskir íbúafundarins. Kópavogsbær hefur óskað eftir fundi með Sigurði Þór Sigurðssyni, tals- manni íbúa, en engar óskir höfðu komið fram um viðræður af hálfu íbúa fyrir íbúafundinn í fyrrakvöld. Óbreytt skipulag í Kópavogi „ógerlegt“ Skógarlind Íbúar eru ósáttir og segja bæinn leggja ofuráherslu á atvinnu- húsnæði. Kópavogsbær segir ógerlegt að fallast á óbreytt skipulag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.