Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is „ÞETTA er í raun eins og kennslu- stund í einelti,“ segir Ína Marteins- dóttir, geðlæknir og móðir sex ára stúlku. Alexandra, dóttir Ínu, hóf nám í Ártúnsskóla í haust, en hún er ein örfárra barna í 1. bekk skól- ans, sem ekki hafa fengið pláss á frístundaheimilinu Skólaseli, sem Íþrótta- og tómstundaráð rekur við skólann. Mannekla hefur verið á frí- stundaheimilum nú í skólabyrjun. Hjá ÍTR hefur viðmiðið verið að börn í 1. bekk gangi fyrir um pláss á heimilunum, en þó ekki börn þeirra sem sóttu um eftir 1. apríl. „Ég hef enga skýringu fengið á því af hverju börn þessa hóps eru talin í minni þörf á forgangi. Má ekki ætla að þau geti verið í brýnustu þörfinni, nýflutt í hverfið eða af er- lendu bergi brotin eða eigi mögu- lega foreldra sem eiga við heilsu- farsvanda að stríða?“ Ína segir að í þeirra tilviki sé málum þannig háttað að fjöl- skyldan hafi búið langdvölum er- lendis en fjölskyldufaðirinn er er- lendur. „Við þekktum ekki kerfið og fengum enga fræðslu um það og sendum ekki inn umsókn [um frí- stundaheimili] því barnið beið eftir sálfræðimati sem hafði afgerandi áhrif á það í hvaða skóla hún færi.“ Sótt var um frístundaheimili fyr- ir Alexöndru í maí. Síðan hafi kom- ið í ljós að umsókn á eitt frístunda- heimili gildi í raun fyrir þau öll. Fullvissuð um forgang Ákveðið var að Alexandra hæfi nám í Ártúnsskóla í haust. Ína segir að áður en sú ákvörðun var tekin hafi hún rætt við forstöðumann frí- stundamiðstöðvarinnaar Ársels, sem hefur umsjón með Skólaseli. Þar hafi hún verið fullvissuð um að þar sem dóttir hennar væri á leið í 1. bekk gengi umsókn hennar fyrir og hún ætti að komast að fljótlega. Svo hafi komið í ljós að þar sem ekki var sótt um á tilskildum tíma væri barnið ekki í forgangi. „Fyrstu dagana fór barnið í skól- ann og leist ágætlega á sig en hún kannaðist við þrjár stelpur í bekkn- um. Klukkan hálftvö sótti ég hana svo í skólann, en þá fóru vinkon- urnar í Skólasel, en hún mátti ekki fara með. Hún spurði: „Hvers vegna má ég ekki fara líka?“ Sem móðir fær maður hjartasár bara af því að hugsa um þetta,“ segir Ína. Á þriðja skóladegi hafi dóttir sín tjáð sér að vinkonur hennar hefðu nú eignast aðrar vinkonur en sig. Hún vildi því ekki fara aftur í skól- ann. „Með þessu eru örfá börn sem eru að stíga sín fyrstu spor í skól- anum svipt möguleikanum á að komast inn í hópinn þar sem þau eru höfð útundan í leiknum á þenn- an hátt. Þetta getur haft varanleg áhrif á þeirra félagsstöðu og hæfi- leika í framtíðinni. Mér finnst þetta mjög alvarlegt,“ segir Ína. Hún segir að þau foreldrarnir séu farin að íhuga að flytja dóttur sína aftur í einkaskóla, en dóttirin var í fimm ára bekk Landakots- skóla í fyrra. „Er eins og kennslustund í einelti“  Börn í 1. bekk sem ekki var sótt um pláss fyrir á frístundaheimili fyrir 1. apríl eru ekki í for- gangi og fá því sum hver ekki pláss  „Örfá börn svipt möguleikanum á að komast inn í hópinn“ Ekkert pláss Alexandra, sex ára, ásamt föður sínum, Bengt Nyman. Í FRAMHALDSSKÓLUM teljast nú 57 fleiri starfsmenn en fyrir ári. Þar af hefur starfsmönnum við kennslu fjölgað um 30 á milli ára. Haustið 2007 var 2.551 starfsmaður í framhaldsskólum landsins í 2.557 stöðugildum. Þar af sinntu 1.899 starfsmenn kennslu í 1.985 stöðu- gildum. Breytingar á fjölda starfs- manna í framhaldsskólum milli ára eru óverulegar. Meiri yfirvinna karla Konur eru fleiri en karlar meðal starfsmanna í framhaldsskólum, hvort heldur eru taldir allir starfs- menn eða einungis starfsmenn við kennslu. Skólaárið 2007-2008 voru konur 57,7% allra starfsmanna í framhaldsskólum og 52,0% starfs- manna við kennslu. Þegar talin eru stöðugildi starfs- manna við kennslu kemur hins veg- ar í ljós að stöðugildi karla við kennslu eru 1.028 (51,8%) á móti 957 (48,2%) stöðugildum kvenna. Karlar vinna því fremur yfirvinnu en konur eru frekar í hlutastörfum. Nærri 80% kennara í framhalds- skólum hafa kennsluréttindi. Alls höfðu 78,0% starfsmanna við kennslu í nóvember 2007 kennslu- réttindi en 22,0% voru án réttinda. Réttindakennurum í framhalds- skólum hefur fjölgað. Fleiri konur vinna í fram- haldsskólum Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is ENGAR skriflegar reglur eru til um það hvort eða að hvaða marki eðli- legt sé að borgarfulltrúar þiggi boð og gjafir sem þeim berast. Þeir hafa lítið við að styðjast annað en eigin sannfæringu. Í þeim drögum að siðareglum kjörinna fulltrúa hjá Reykjavíkur- borg sem samin voru fyrir forgöngu Dags B. Eggertssonar borgarfull- trúa en ekki hafa verið afgreidd í borgarstjórn er ákvæði um að fulltrúar skuli forðast alla hegðun sem gæti talist fela í sér að veita eða þiggja mútur og tilkynna um gjafir eða boð um gjafir í samræmi við reglur sem borgarstjórn setur. Borgarráð hefur nú samþykkt til- lögu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra um að skipa fimm manna starfshóp til að ljúka við siða- reglurnar. Hópnum er einnig ætlað að útfæra reglur borgarstjórnar um gjafir og boðsferðir og birtingu upp- lýsinga um slíkt. Hópurinn á að ljúka þessu verki fyrir 1. desember. Koma saman við aðrar aðstæður en venjulega Borgarfulltrúar fá ýmis boð frá fé- lögum og fyrirtækjum. Löng hefð er fyrir sumum, eins og árlegu boði í golf hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og útreiðatúr hjá hestamannafélaginu Fáki. Boðið er upp á dýrindis kvöld- verði í þessum ferðum og virðast borgarfulltrúar líta á þessar veislur sem tækifæri til að koma saman við aðrar aðstæður en venjulega. Umræður hafa stundum farið fram meðal borgarfulltrúa um það hvort rétt sé af þeim að þiggja þessi boð, ekki síst vegna þess að sömu borgarfulltrúar þurfa að fjalla um málefni þessara félaga og gera við þau samninga. Borgarfulltrúar fá og þiggja ýmis önnur boð, flest smærri í sniðum en veislurnar hjá GR og Fáki. Nefna má miða á knattspyrnuleiki, tónleika, söfn og í Borgarleikhúsið. Sumar af þessum stofnunum eru á vegum borgarinnar sem borgarfulltrúar vilja fylgjast með og bera ábyrgð á. Setja reglur um gjafir og boðsferðir borgarfulltrúa ODDNÝ Sturludóttir, borgarfulltrúi Samfylkingarinnar, mun ekki þiggja boð íþróttafélaga á viðburði sem fela í sér matarveislur. Á bloggi sínu á Eyjunni vekur hún máls á boðum af því tagi, m.a. hjá Golfklúbbi Reykja- víkur og hestamannafélaginu Fáki. Oddný segir í samtali við Morg- unblaðið að þegar hún kom fyrst inn í borgarstjórn hafi sér þótt þessi boð á gráu svæði. Margir félagar hennar í Samfylkingunni séu sama sinnis. Hins vegar byggist þessir viðburðir á gamalli hefð og hún hafi því ekki sett sig upp á móti þeim þá. Oddný segist hafa mætt tvisvar í þessi boð, GR-golfið og Fáksreiðina, og tekur fram að þetta hafi verið hinir skemmtilegustu viðburðir. „Ekki hafa öll íþróttafélög borg- arinnar tök á því að bjóða borgar- fulltrúum út að borða og það skapar mismunun. Svo erum við að sýsla með málefni þessara félaga í nefndum og ráð- um,“ segir Oddný og lýsir þeirri skoðun sinni og spá að það verði látið af þessu. Hún tekur fram að hún sé ekki að ætla þessum félögum að þau vilji eiga inni greiða hjá borgarfulltrúum en samskipti af þessu tagi verði að vera hafin yfir allan vafa. Afþakkar boð í veislur íþróttafélaga Oddný Sturludóttir ÁÆTLAÐ er að ný brú yfir Mjóafjörð verði opn- uð í október næstkomandi. Stórum áfanga var náð á miðvikudagskvöldið þegar brúin var tengd saman og bogarnir settir á. Sævar Óli Hjörvarsson hjá KNH, sem sér um framkvæmdina, var að vonum ánægður þegar áfanganum var náð. Segist hann þá geta sofið rótt enda engin hætta lengur á að brúin fari í sjó- inn. „Eftirleikurinn er miklu auðveldari því nú er bara fest upp í bogana,“ segir Sævar Óli. Hann segir framkvæmdina hafa tekist afar vel hingað til. Næstu skref eru að sjóða saman brú- argólfið og steypa brúardekkið auk þess að setja upp handrið. Brúin verður ríflega 120 metra löng og mikil samgöngubót. andri@mbl.is Ljósmynd/Björn Guðjónsson Nýja brúin yfir Mjóafjörð tengd saman
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.