Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er laugardagur 30. ágúst, 243. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Breyttu ekki eftir því, sem illt er, minn elskaði, heldur eftir því, sem gott er. Sá sem gott gjörir heyrir Guði til, en sá sem illt gjörir hefur ekki séð Guð. (3. Jh 11.) Útsendari RÚV knúði dyra hjáVíkverja um daginn. Slíkar heimsóknir eru alltaf jafnfurðulegar, þetta er önnur heimsóknin sem Vík- verji fær á einum átta árum. Í fyrra skiptið voru útsendarar tveir, annar meira að segja í síðum frakka þannig að minnti á Gestapó. Kynntu útsend- ararnir sig alvarlegir í bragði og fóru svo með rullu sem vel var æfð, ávörpuðu Víkverja með fullu nafni og spurðu hvort hann ætti sjónvarp eða útvarp. Innan úr stofu heyrðist í Boga Ágústssyni lesa fréttir. Lyktir málsins urðu þær að Víkverji fékk rukkun frá RÚV í nokkur ár. x x x Fyrir nokkrum dögum mætti svoannar útsendari frá RÚV. Var sá ekki í Gestapó-frakka en spurði þungur á brún hvort Víkverji ætti sjónvarp. „Nei,“ sagði Víkverji, enda á hann ekki sjónvarp. Útsendarinn spurði hvort Víkverji ætti útvarp. „Nei.“ Útvarp í bílnum? „Nei.“ Hvort Víkverji væri til í að sanna það? „Nei,“ svaraði Víkverji pirr- aður. Einhver ástæða fyrir því? „Nei.“ Við þetta hripaði útsendarinn öll nei-in niður á blað og kvaddi. x x x Þessar ofsóknir Ríkisútvarpsinseru algjör tímaskekkja. Nú er þetta ríkisfyrirtæki á auglýs- ingamarkaði og hefur ábyggilega rífandi tekjur af auglýsingasölu. Þá hefur Víkverji aldrei beðið um að vera áskrifandi að ríkismiðlunum. Hvernig þætti fólki annars að fá heim til sín ríkisdagblað og vera rukkað um áskrift fyrir það? Vík- verji telur það rétt sinn að ákveða fyrir hvaða fjölmiðla hann greiðir, að hverjum hann er áskrifandi. Skjár- einn er ókeypis, selur auglýsingar og það virðist ganga upp. Að þvinga fólk til að greiða áskrift að ríkisfjöl- miðli, ofan á himinháa skatta sem það greiðir af launum sínum, er fá- ránlegt. Víkverji óskar þess að RÚV láti hann framvegis í friði, leyfi hon- um að njóta þess að lesa sitt ókeypis dagblað. víkverji@mbl.is Víkverjiskrifar Krossgáta Lárétt | 1 grátið, 4 bjór, 7 ís, 8 vindhana, 9 beiskja, 11 lesið, 13 freta, 14 eyktamarkið, 15 pat, 17 fiskurinn, 20 krakki, 22 víður, 23 hamingjusömum, 24 ákveð, 25 mjög æstur. Lóðrétt | 1 fljót, 2 tíma- ritið, 3 grassvörður, 4 bakki, 5 fláráð, 6 rödd, 10 tuldraðir, 12 auð, 13 vendi, 15 koma undan, 16 ber, 18 sjávardýrum, 19 auðlindir, 20 bylur, 21 sjávarrót. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 táldregur, 8 vetur, 9 bógur, 10 kol, 11 reima, 13 aumur, 15 stáls, 18 hlein, 21 tól, 22 kættu, 23 angar, 24 þrautseig. Lóðrétt: 2 áætli, 3 dýrka, 4 Embla, 5 ungum, 6 svar, 7 þrár, 12 mál, 14 ull, 15 sýkn, 16 ástar, 17 stunu, 18 hlass, 19 engli, 20 næri. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 Rc6 6. Bg5 Bd7 7. Dd2 Hc8 8. O–O–O Rxd4 9. Dxd4 Da5 10. Bd2 a6 11. f3 Dc7 12. Bd3 e6 13. Df2 b5 14. Kb1 b4 15. Re2 a5 16. g4 Ba4 17. b3 Bc6 18. Rd4 Rd7 19. Be3 Be7 20. g5 Re5 21. Bb5 Bxb5 22. Rxb5 Db8 23. De2 O–O 24. f4 Rc6 25. h4 Hfd8 26. h5 Hd7 27. g6 fxg6 28. hxg6 h6 29. Dg4 Rd8 30. Rd4 Dc7 31. Hh2 Db7 32. Rxe6 Dxe4 Staðan kom upp í AM-flokki al- þjóðlegu skákhátíðarinnar í Olomouc í Tékklandi sem lauk fyrir skömmu. Ís- lenski kvennastórmeistarinn Lenka Ptácníková (2259) hafði hvítt gegn Sví- anum Fredrik Andersson (2225). 33. Rc5! Hxc5 34. Dxd7 Df3 svartur hefði einnig tapað eftir 34… Dxe3 35. De8+. 35. Hhd2 Hh5 36. Dxe7 og svartur gafst upp. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Refsispil. Norður ♠ÁKG ♥D93 ♦98743 ♣K9 Vestur Austur ♠D765 ♠98432 ♥2 ♥K8765 ♦-- ♦Á10 ♣DG876532 ♣10 Suður ♠10 ♥ÁG104 ♦KDG652 ♣Á4 Suður spilar 7G. Boris Schapiro segir eftirfarandi sögu, en nefnir ekki stað og stund: NS misstu tökin á sögnum eftir kröftuga laufhindrun vesturs og fóru alla leið í 7♦. Sem austri þótti fyndið með tromp- ásinn og hálfveifaði ♦Á fram í andstöð- una um leið og hann doblaði. Það fauk í suður, sem kallaði snarlega í keppn- isstjóra. Kvaðst hafa séð ♦Á. Keppn- isstjóri úrskurðaði ♦Á sem refsispil: hann yrði að liggja á borðinu og fara við “fyrsta löglega tækifæri“. Austur hafði ekki áhyggjur, enda trompásinn öruggur slagur. En sögnum var ekki lokið. Suðri leist skiljanlega ekki á horfur sínar í 7♦ og breytti í 7G. Spaði kom út og framhaldið var fyr- irsjáanlegt: Fljótlega tók sagnhafi tvo efstu í laufi og austur neyddist til að fylgja lit í það síðara með hinum vel flaggaða tígulás. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert hugrakkur. Þú gerir eitt- hvað sem þú hefur ekki gert lengi vel, og líf þitt lifnar við. Mikil sköpun og gaman er handan við hornið. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þig langar til að taka rækilega til í óreiðukenndu sambandi, umhverfi eða vandamáli. Fáðu hjálp til þess. Vog og sporðdreki hafa einnig áhuga á þessu. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þú sagðir það sem þú vildir segja og þarft standa undir því – sem er slæmt! Eiginlega gefur það þér frels- istilfinningu sem aðrir munu síðar ásæl- ast. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Þegar þú spyrð örlögin hvað þau ætli að færa þér færðu ekkert svar – bara hvítan striga þrunginn möguleikum. Hví- lík fegurð! (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þú gerir þér ekki grein fyrir áhrifum þínum. Stundum er gott að vita hvaða við- tökur maður fær. Þú sérð hvernig þú hef- ur breytt lífi fólks og getur það áfram. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú færð furðulegar hugmyndir og sumar þeirra virka ekki. Samt verður gaman að prófa. Leggðu höfuðið í bleyti og finndu leiðir til að breyta lífi þínu. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú gerir það sem gera skal – það rétta. En fæstir taka eftir því. Sá sem hampar þér er á sömu bylgjulengd og þú. Þótt þið hittist ekki oft hefur samband ykkar þýðingu. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Skyndilega eru samfélags- legar aðstæður flóknari. Passaðu þig að láta fólk ekki nota þig. Þér finnst erfitt að draga mörk, en nú er mál að æfa sig. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú ert sterkur og sjálfstæður. Það hlýtur að vera áskorun fyrir þig að skilja manneskju sem hangir í öðrum. Samúðar er meiri þörf en vorkunnar. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Þú hefur verið að pæla í hlutum sem þú tekur sem gefnum. Líkama þín- um, fjölskyldu og menningarlegum bak- grunni. Þú sérð hlutverk þeirra skýrar. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þú skalt ekki fara út á meðal manna meðan þú ert enn í vinnunni. Of mikið mun leiða huga þinn frá skemmti- legum samtölum. Hafðu vinnuna í vinnunni og skemmtu þér í friði. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Innsæið leiðir þig áfram og hvetur þig til að taka hvatvísar ákvarðanir. Hvort þú ert einn, með vinum eða fyrir framan áhorfendur ertu aldrei leiðilegur. Stjörnuspá Holiday Mathis 30. ágúst 1720 Jón Vídalín Skálholtsbiskup lést á leið norður Kaldadal. Staðurinn var nefndur Bisk- upsbrekka. Þar hefur verið reistur kross til minningar um þennan atburð. Jón, sem varð 54 ára, þótti mikill mælsku- snillingur. Hann er þekktastur fyrir húslestrarbók sína, Ví- dalínspostillu, sem kom fyrst út 1718. 30. ágúst 1935 Íslenska ríkið eignaðist Geysi í Haukadal og hverasvæðið um- hverfis hann, en svæðið hafði verið í eigu útlendinga í tíu ár. Sigurður Jónasson gaf fé til kaupanna. 30. ágúst 1952 Sauðkindin Surtla var skotin við Herdísarvík, en Sauð- fjárveikivarnir höfðu lagt fé til höfuðs henni. Vísir sagði að kindin hefði verið „elt eins og óargadýr“. 30. ágúst 1967 Tvær stórar vöruskemmur Eimskipafélagsins við Borg- artún í Reykjavík brunnu en í þeim voru þúsundir tonna af vörum. Eldurinn kom upp skömmu fyrir miðnætti þenn- an dag og börðust slökkviliðs- menn við hann í röskan sólar- hring. 30. ágúst 1992 Einar Vilhjálmsson setti Ís- landsmet í spjótkasti á al- þjóðlegu móti í Reykjavík. Hann kastaði 86,80 metra og bætti sex daga gamalt met um tíu sentimetra. Metið stendur enn. Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson. Þetta gerðist þá … SIGRÚN Edda Björnsdóttir leikkona er fimmtug í dag. Hún er búsett ásamt fjölskyldu sinni í miðbæ Reykjavíkur. Eiginmaður hennar er Axel Hallkell Jóhannesson og þau eiga saman soninn Kormák Örn. Sigrún á einnig dótturina Guðrúnu Birnu, sem er þróunarfræðingur. „Á sunnudaginn ætla ég að stækka aðeins borðstofuna mína og leggja á borð í Iðnó fyrir fjölskyldu mína, vini og vandamenn,“ seg- ir Sigrún Edda kát. Aðspurð hvort einhver afmælisdagur sé henni sérstaklega eftirminnilegur segir Sigrún: „Ég hef tvisvar haldið svona hressilega upp á afmælið mitt; þrítugs- og fertugsafmæli. Þrítugsafmælið var haldið í Lækjarbotnum. Þar kynnti ég eiginmann minn einmitt formlega fyrir fjölskyldunni. Síð- an man ég mjög vel eftir einu afmæli í barnæsku minni þar sem ég var mjög stolt yfir því að geta boðið gestum mínum upp á litla kók með lakkrísröri.“ Í haust ætlar Sigrún Edda að halda í menningarferð til Barcelona. „Svo er ég að fara að æfa jólasýningu Borgarleikhússins, sem verður verkið Milljarðamærin snýr aftur eftir Friedrich Dürrenmatt. Ég ætla að taka að mér hlutverk milljarðameyjarinnar sjálfrar. Maður fær svona hlutverk þegar maður er orðinn fimmtugur,“ segir Sigrún hlæjandi. „Svo ætlum við Helga Braga Jónsdóttir og Edda Björgvins að setja upp sýninguna Fúlar á móti, á Akureyri, eftir áramótin.“ haa@mbl.is Sigrún Edda Björnsdóttir er fimmtug í dag Milljarðamær í jólasýningu ;) Nýbakaðir foreldrar?Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum ásamtupplýsingum um fæðingarstað og stund,þyngd, lengd og nöfn nýbakaðra foreldra,á netfangið barn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.