Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 30.08.2008, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SPRON leggur ríka áherslu á samfélagslega ábyrgð og hefur um árabil stutt við góðgerðar- og líknarmál. Styrktarverkefni SPRON í Malaví er ljóslifandi dæmi um það. A R G U S / 0 8 -0 3 2 9 www. spron.is SPRON sjóðurinn styrkir margvísleg menningar- og góðgerðarmál í nafni SPRON. árangri ... Við náum Eftir Skúla Á. Sigurðsson skulias@mbl.is Í SKOÐUN er að Grænlendingar fái aðild að fríverslunarsamningi Fær- eyinga og Íslendinga sem tók gildi ár- ið 2006. Samningnum er ætlað að efla viðskipti landanna og mynda sameig- inlegt efnahagssvæði án mismununar á grundvelli ríkisfangs, staðfestu- staðar eða uppruna vöru. Grétar Már Sigurðsson, ráðuneytisstjóri utanrík- isráðuneytisins, er nú á Grænlandi ásamt Herluf Sigvaldssyni, ráðuneyt- isstjóra færeyska utanríkisráðuneyt- isins, að kynna samninginn. Martin Eyjólfsson, sviðsstjóri við- skiptasviðs utanríkisráðuneytisins, segir áhuga Grænlendinga hafa auk- ist að undanförnu og að þarlendir þingmenn hafi nýlega lýst því yfir að upphaflegar efasemdir þeirra séu að dala. Martin segir að Grænlandi verði tekið fagnandi óski ráðamenn aðildar að samningnum. Í honum er sérstakt ákvæði sem heimilar að öðrum hlut- um af danska Konungsríkinu en Færeyingum sé veitt aðild. Högni Hoydal, utanríkisáðherra Færeyja, hefur sagt að hann vilji veita Norðmönnum aðild að samn- ingnum. Í honum er ekkert því til fyr- irstöðu. Ekki komin reynsla á áhrifin Innflutningur Færeyinga hingað til lands jókst um rúmar 400 milljónir milli áranna 2006 og 2007 en útflutn- ingur til eyjanna dróst saman á sama tíma sem nemur um 700 milljónum. Að sögn Martins er ekki hægt að slá því föstu að breytingarnar milli ára komi til af samningnum. Hann segir marga þætti leika hlut- verk í þessum tölum, allt frá lögum um eignarhald útlendinga í íslensk- um fyrirtækjum og ástandi fjármála- markaða að afla úr sjó. Ennfremur sé ekki komin næg reynsla á samning- inn til að meta áhrifin. Fólk og fyr- irtæki hafi ekki áttað sig á möguleik- unum sem fyrir hendi séu. „Ef við tökum bara sjálfan EES-samninginn [1994] þá tók það íslensk fyrirtæki allt til aldamóta að nýta sér þau tæki- færi sem hann hafði upp á að bjóða,“ segir Martin. Aðild Grænlands að fríverslun athuguð MERCEDES-Benz C200 að verðmæti 5,6 milljónir var dregin út í Happdrætti DAS 7. ágúst sl. Miðinn var seldur hjá Tryggingamiðstöðinni í Keflavík sem annast umboð Happdrættis DAS í Reykjanesbæ. Eigandinn reyndist eiga tvöfaldan miða og því fylgja 5,6 millj- ónir í peningum í skottinu. Heildar- verðmæti vinningsins er því 11,2 millj- ónir. Vinningshafinn, Bjarni Jón Bárð- arson stýrimaður, og eiginkona hans, Jóhanna Soffía Hansen, tóku við vinn- ingnum í gær, föstudaginn 29. ágúst, í Öskju ehf. sem er umboðsaðili Benz á Íslandi. Þegar hringt var í Jóhönnu hélt hún að hún hefði unnið 100 þús. krónur en svo kom í ljós að þetta voru rúmar 11 milljónir sem í þeirra hlut komu. Vinn- ingurinn kemur sér afar vel því um er að ræða 7 manna fjölskyldu, segir í fréttatilkynningu. Þá kom einnig fram að þetta væri undarleg tilviljun. Þau vinna tvöfaldan vinning upp á rúmar 11 milljónir og nágrannar þeirra til margra ára uppi á Kjalarnesi unnu á síðasta ári Lexus með 6,3 milljónir í skottinu. Unnu Benz hlaðinn milljónum Sjö manna fjölskylda vann 11,2 milljónir í DAS Heppin Sigurður Á. Sigurðsson, forstjóri Happ- drættis DAS, afhendir Bjarna og Jóhönnu bifreið- ina og skjalatösku með 5,6 milljónum í. LÖGREGLAN á Akureyri handtók á fimmtu- dag tvítugan karlmann á Akureyrarflugvelli, eftir að fíkniefnaleitarhundur veitti honum at- hygli. Maðurinn sem kom með flugi frá Reykja- vík var tekinn afsíðis og eftir stutta eftir- grennslan kom í ljós að hann hafði meðferðis fíkniefni. Hafði hann falið um tíu grömm af hvítu efni – sem talið er að sé kókaín – uppi í endaþarmi sínum. Maðurinn var umsvifalaust færður á lög- reglustöð en látinn laus eftir skýrslutöku. Málið telst upplýst. Um kvöldið hafði lögregla afskipti af fjórum einstaklingum vegna fíkniefnamisferlis á skóla- balli Verkmenntaskólans á Akureyri. Um minniháttar mál var að ræða. andri@mbl.is Handtekinn með fíkniefni innvortis ÞEIR Hannes Hlífar Stef- ánsson, Þröstur Þórhallsson og Bragi Þorfinns- son unnu allir skákir sínar í þriðju umferð landsliðsflokks í gærkvöldi og eru efstir á mótinu með 2½ vinning. Hannes vann Björn Þorfinnsson, Þröstur vann Þorvarð Ólafsson og Bragi vann Magnús Örn Úlfarsson. Henrik Danielsen, sem deildi for- ystunni með þeim fyrir þessa um- ferð, varð hins vegar að sætta sig við jafntefli gegn Guðmundi Kjart- anssyni og er í fjórða sæti með tvo vinninga. Sigurbjörn með forystu í áskorendaflokki Sigurbjörn Björnsson hefur náð forystu í áskorendaflokki eftir sig- ur gegn Halldóri Halldórssyni í 3. umferð áskorendaflokks, en þeir voru báðir með tvo vinninga fyrir þessa umferð. Það voru þau Lenka Ptacnikova og Omar Salama einnig, en skák þeirra lauk með jafntefli. Þau deila því öðru sætinu með 2½ vinning ásamt Þóri Benediktssyni og Sæv- ari Bjarnasyni. Þrír á toppnum í landsliðsflokki Sigurbjörn með fullt hús í áskorendaflokki Bragi Þorfinnsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.