Morgunblaðið - 30.08.2008, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 30.08.2008, Qupperneq 27
tíska MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 27             Frá 15. september til 11. desember 2008 Eftir Lilju Þorsteinsdóttur liljath@mbl.is María Lovísa Ragnars-dóttir fatahönnuðurog Steingrímur K.Reynisson giftu sig á björtum sumardegi og skörtuðu að sjálfsögu sínu fínasta pússi. Blaðamaður Daglegs lífs fékk að forvitnast um sérstöku kápuna sem María Lovísa klæddist á brúðkaupsdaginn. „Kápan er úr hvítu leðri. Það er þunnt, mjúkt og svipar til hanskaleðurs,“ segir María Lovísa. „Kápan er síð og opin að framan, en ég lét jaðarinn á leðr- inu njóta sín og vera svolítið hrá- an að framan. Ég var í síðum, svörtum kjól innan undir til að undirstrika kápuna, en þetta var ekki svona kápa sem maður hneppir að sér. Þetta var voða- lega smart, þótti mjög flott og ég fékk skemmtileg viðbrögð við kápunni.“ María Lovísa segist hafa fengið hugmyndina nokkuð óvænt. „Ég nota leður í sum föt, þá brydda ég með því á ull. Ég hef notað svart leður, en svo benti mér ein kona á að það fengist svona æðis- lega flott hvítt leður í Hvítlist. Ég rauk til og keypti það, það kvikn- aði á ljósaperu í höfðinu á mér en ég var búin að hugsa mér kápuna úr öðru efni. Hugmyndin hefur alltaf verið með mér og mér finnst þessi stíll klæða mig. Mað- ur er alltaf með nýjar hugmyndir en þessi kom með leðrinu,“ segir María Lovísa. Skemmtilegt brúðkaup Brúðkaupið var ekki með hefð- bundnu sniði, en að sögn Maríu Lovísu kom fjöldi náinna vina og ættingja og skemmti sér kon- unglega. „Við eigum stóran garð með háum trjám. Við settum upp stórt veislutjald úti í garði og veðrið var svo sannarlega með okkur. Það var hlaðborð með mat frá Ostabúðinni, en Sigríður Klingenberg var veislustjóri og hún kom auðvitað með brandara inn í veisluhaldið. Geir Ólafsson kom líka og söng fimm lög. Það skemmtu sér allir ofsalega vel og við erum rosalega ánægð með daginn.“ Ljósmynd/Ljósmyndastofa Kópavogs Kápan hvíta Brúðhjónin voru alsæl með brúðkaupsdaginn. Hugmyndin að brúðarkápunni sem María Lovísa klæddist kviknaði út frá hvíta leðrinu. Morgunblaðið/Kristinn Fatahönnuðurinn María Lovísa Ragnarsdóttir segist stöðugt fá nýjar hugmyndir. Hugmyndin að kápunni kom með leðrinu SÍSTÆKKANDI skammta- stærðir eru oft nefndar sem ein ástæða vaxandi holda – litlu pakkarnir virðast þó vera enginn trygging fyrir því að við borðum minna. Samvæmt rannsókn, sem unnin var við Tækniháskól- ann í Lissabon, telja margir að litlar pakkningar séu góð leið til að halda freisting- unum í hófi – hvort sem um er að ræða kartöfluflögur, súkkulaðikökur eða sælgæti. Raunveruleikinn er hins veg- ar annar, með minni pakkn- ingunum eykst neysla fólks en stóru pakkninganar vekja áhyggjur um að borða of mikið. „Af því að litlu skammtarnir eru taldir sak- laus sæla kunna [þeir] að reynst lúmskar litlar synd- ir,“ segir í niðurstöðu vísindamannanna, sem birt er í októberhefti fagtíma- ritsins Journal of Consumer Research og greint var frá á vefmiðli MSNBC. Í einum hluta rannsóknarinnar voru þátttakendur látnir horfa á þætti af Vinum og var sagt að rannsóknin sem þeir tækju þátt í fælist í að meta aug- lýsingar. Kartöfluflögupokar í mismunandi stærðum lágu síðan á borðum. Niðurstaðan var sú að minni pokarnir voru líklegri til að freista þátttakenda. Í annarri rannsókn, tengdri þessari, könnuðu Maura L. Scott við Univers- ity of Kentucky og vísindamenn við ríkisháskólann í Arizona viðhorf fólks og átvenjur á M&M súkkulaðikúlunum í mismunandi pakkningum. Þátttak- endum var skipt í tvo hópa – þá sem stöðugt voru í megrun og þá sem ekki voru í megrun. Og niðurstaðan – megrunarhópurinn innbyrti fleiri kaloríur í smápökkunum en hinn hópurinn. „Þó þeir sem reyni að hafa hemil á áti sínu leiti frekar í mat í smærri pakkningum, væntanlega af því að þessar vörur eru taldar megrunarvænar, þá sýnir rannsókn okkar að þessi hópur endar í rauninni á því að borða meira en hann myndi annars gera,“ segir í niður- stöðum vísindamannanna. Litlu bitarnir teljast ekki með Litlar freistingar Einn súkkulaðimoli í viðbót skiptir varla máli – eða hvað? Um Halldóru Sölvadóttur íKeldudal, litla stúlku tveggja ára, orti afinn Sigurður Sigurðarson dýralæknir: Orðin tveggja ára perla undurfríð með nettan fót Sigurður og Ólöf Erla elska þessa litlu snót. Augun bláu undrastóru unað vekja og brosin fín í góðar ættir sig þær sóru sólargeisladúfan mín. Frænka Sigurðar tók stúdentspróf í hraðferð, Edda Sigurðardóttir, og hann orti með hraði: Stúdentsprófið stúlkan tók og stóð með glansi líður um í lífsins dansi líkt og hind með elegansi. Hugann bindur hesta við sem hjartans vini en elskaðu líka Adams syni svo af þeim fjölgi voru kyni. Til hamingju með hraðferðina heillafrænka á meðan allar grundir grænka gengi þitt mun sífellt vænka. Og Sigurður orti um Jón Ólafsson frá Kirkjulæk, sem lést í sumar, en það var úrhelli við jarðarförina: Jón var glaður, hljóðahreinn, hagyrðingur góður styrkur í lundu stóð hann beinn stemmu- og vísnafróður. Vin hér kveðja mætan má mæða viðkvæm sárin himinkórum háum frá hvolfast sorgartárin. VÍSNAHORNIÐ pebl@mbl.is Af dúfu og sólargeisla

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.