Morgunblaðið - 30.08.2008, Side 28

Morgunblaðið - 30.08.2008, Side 28
- kemur þér við Lamaður bóndi sviptur sérútbúnum vélum Furðuleg farsímaflækja Þarf að keyra 14 kíló- metra eftir póstinum Koma á lúxusjeppum til að þiggja fatagjafir Besta súkkulaðikaka norðan Alpafjalla? GylfiÆgis vill lands- söfnun fyrir Pál Óskar Hvað ætlar þú að lesa í dag? lifun 28 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þ að þykir merki um fallega sál að leggja natni við garð sinn og ber garður þeirra Jóhannesar Árna- sonar og Guðrúnar Sveinjónsdóttur merki þess að hon- um hefur verið sinnt af mikilli alúð. Stór grasflöt umhverfis húsið er fag- urlega skreytt með hlutum á borð við vatnsbrunn, fuglahús, sveppi úr grjóti, gamalt vagnhjól og að sjálf- sögðu blómabeð í góðri rækt. „Við neyddumst til að gera eitt- hvað við garðinn þegar við fluttum hingað því hér var bara moldarflag. Við byrjuðum smátt, gróðursettum nokkra sprota og blóm en með ár- unum hefur ræktunin orðið að ein- hvers konar ástríðu hjá mér,“ segir Jóhannes. Hjónin fluttu í Tjarnarflöt árið 1970 og voru á dögunum heiðruð af bæjarstjórn Garðabæjar fyrir snyrtimennsku og glæsilegan garð. „Ég sé um blómin, Jóhannes um allt hitt,“ segir Guðrún hlæjandi þeg- ar spurt er um verkaskiptingu í garð- inum. „Honum er afar annt um garð- inn og fer afskaplega vel með hann.“ Jóhannes segir mikla vinnu fylgja því að halda stóran garð. Mesta vinn- an sé á vorin en þá klippi þau lim- gerðið og endurnýi blómin. Yfir sum- arið slær hann síðan á tíu daga fresti. „Ég set turbo-kalk á blettinn til að halda mosanum niðri og fyrir vikið þarf að slá blettinn nokkuð oft.“ Sólargeislar skína nú á flötina Fyrir sjö árum lögðu Jóhannes og Guðrún út í miklar breytingar á garð- inum. „Á lóðinni var fjöldinn allur af tíu metra háum grenitrjám sem við höfðum gróðursett fyrir tæpum fjörutíu árum. Garðurinn var því hul- inn myrkri og það sást varla til sólar. Við ákváðum því að fjarlægja átta grenitré, þrjú þeirra gáfum við bæn- um sem notaði þau sem jólatré,“ segir Guðrún. Við þessa yfirhalningu gjör- breyttist yfirbragð garðsins. Sólar- geislar skína nú inn á stóra grasflöt þar sem barnabörn og barnabarna- börn þeirra Jóhannesar og Guðrúnar leika sér. Smáhlutirnir njóta sín sömuleiðis vel en flesta þeirra hefur Jóhannes smíðað sjálfur. „Ég hef útbúið ýmislegt í garðinn, Bjartur Fyrir sjö árum fjarlægðu hjónin fjölda trjáa og hleyptu þannig sólinni inn í garðinn. Hjónin í garðinum Jóhannes og Guðrún hafa fengu á dögunum viðurkenningu fyrir verk s „Það er alltaf hægt að hafa eitthvað fyrir stafni“ Þau hafa sinnt garðinum af alúð í tæp 40 ár og geta ekki hugsað sér að búa annars staðar en í Garðabæ. Guðrún Hulda Pálsdóttir skoðaði verðlaunagarð hjónanna Jóhannesar Árnasonar og Guðrúnar Sveinjónsdóttur, sem láta það ekki stoppa sig í garð- ræktinni að vera komin á níræðisaldur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.