Morgunblaðið - 30.08.2008, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 35
✝ Ólína Ragnheið-ur Jónsdóttir
fæddist á Steinholti
í Staðarhreppi,
Skagafirði, 17. nóv-
ember 1921. Hún
lést á Dvalarheimili
aldraðra á Sauðár-
króki 21. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
Ólínu voru Jón Jó-
hannesson, f. 21.12.
1889, d. 30.5. 1967
og Guðrún Jóns-
dóttir, f. 30.12.
1895, d. 8.4. 1962.
Þau eignuðust 4 börn 1) andvana
dreng, f. 14.6. 1920, 2) Ólínu, 3)
Jónínu Sigríði, f. 31.12. 1923, d.
12.8. 2000, og 4) Lilju Aðalbjörgu,
f. 11.10. 1931, d. 8.5. 1987.
12.11. 1947 giftist Ólína Gunn-
laugi Magnúsi Jónassyni. For-
eldrar hans voru Jónas Jón Gunn-
arsson, f. 17.5. 1891, d. 17.7. 1939,
og Steinunn Sigurjónsdóttir, f.
5.2. 1891, d. 28.2. 1981. Ólína og
Gunnlaugur eignuðust tvo syni:
A) Ragnar, f. 26.2. 1949, kvænt-
ist Maríu Valgarðsdóttur, f. 28.4.
1952. Þau eignuðust 4 börn 1)
Finnu Guðrúnu, f. 29.1. 1969,
gifta Garðari Smárasyni og eiga
þau 3 drengi Ólaf Ragnar, Einar
Smára og Gunnar Inga. 2) Ólafur
Gunnar, f. 16.12. 1970, d. 27.2.
1986. 3) Valgarður Ingi, f. 27.7.
1974, kvæntur Jórunni Sigurð-
ardóttur og eiga þau 2 börn Maríu
og Frosta. 4) Ragna María, f. 24.5.
1978, í sambúð með Guðmundi
Hreinssyni og eiga þau einn
dreng, Ragnar Svein, fyrir á
Ragna Guðnýju Ósk með Jónasi
Tryggvasyni. Ragnar og María
skildu. Seinni kona Ragnars er
Anna Margrét Stef-
ánsdóttir, f. 16.1.
1959, þau skildu. B)
Jón, f. 28.9. 1954,
kvæntur Jónínu
Stefánsdóttur, f.
3.12. 1953. Þau eiga
3 drengi 1) Stefán
Friðrik, f. 2.2. 1972,
í sambúð með
Hörpu Örvarsdótt-
ur, fyrir á Stefán 2
börn, Kristófer
Fannar og Jónínu
Margréti, með Katr-
ínu Evu Björgvins-
dóttur. 2) Gunnlaugur Hrafn, f.
7.4. 1975, kvæntur Helgu Sjöfn
Helgadóttur og eiga þau 2 börn,
Dagmar Ólínu og Hrafn Helga,
fyrir á Gunnlaugur Jón Dag með
Lindu Björk Jónsdóttur. 3) Heiðar
Logi, f. 7.1. 1980, í sambúð með
Dagnýju Ósk Símonardóttur.
Ólína ólst upp á Sauðárkróki og
stundaði nám við barna- og ungl-
ingaskólann þar. 1939-40 stund-
aði hún framhaldsnám á Laugar-
vatni og 1946-47 við húsmæðra-
skólann á Löngumýri. 1947 hófu
Ólína og Gunnlaugur búskap í Há-
túni og héldu búi þar til 2008.
Ólína vann ýmis störf á lífsleiðinni
í 8 ár vann hún á símstöðinni á
Sauðárkróki, einnig vann hún við
símstöðina í Varmahlíð í fjölda
mörg ár. Lengst af starfaði hún
sem safnvörður í byggðasafninu í
Glaumbæ í ein 25 ár. Ólína var
virkur meðlimur í kvenfélagi
Seyluhrepps allt til æviloka og
söng með kirkjukór Glaumbæjar-
kirkju í fjölda ára.
Útför Ólínu fer fram frá
Glaumbæjarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
Við kveðjum Línu í Hátúni með
eftirsjá. Það hefur verið okkur dýr-
mætt að fá að kynnast henni og deila
með henni stundum.
Ólína, eða Lína eins og hún var
jafnan kölluð, var gift Gulla föður-
bróður okkar, en þau hjón í Hátúni
hafa ætíð átt stóran sess í hjörtum
okkar systra. Við vorum ungar að
árum þegar ferðirnar hófust með
föður okkar í Landrover á leið í
Skagafjörð. Í farteskinu voru stund-
um kassar með hænuungum því
Gulli bróðir ætlaði að fjölga. Á þeim
tíma voru ferðirnar langar, nánast
dagleið, en við dunduðum okkur við
söng og sögur. Mest var þó tilhlökk-
unin að ná áfangastað og hitta
frændfólkið á bæjunum og koma í
Hátún til Línu og Gulla þar sem fað-
ir okkar hafði alist upp. Bærinn
hafði yfir sér minningar þeirra
systkina frá Hátúni sem pabbi sagði
okkur oft sögur af. Við nutum þess
að vera hjá Línu þegar þeir bræður
sýsluðu úti við. Návist við hana ein-
kenndist ávallt af friði og ró og það
var einstaklega notalegt að koma í
eldhúsið til hennar og þiggja góðar
veitingar yfir spjalli. Þau eru ófá
hlaðborðin sem við höfum fengið að
njóta þar með fjölskyldum okkar.
Heimili þeirra umvafði hún svo fal-
legum blómum og garði að leitun
var að öðru eins. Öll blóm blómstr-
uðu í höndum Línu, hvílík fegurð
enda hugsaði hún vel um blómin sín
eins og Gulla sinn og fólkið sitt.
Eftir að faðir okkar byggði hús í
túnfætinum við Hátún fjölgaði ferð-
um okkar norður og alltaf hefur það
verið sama tilhlökkunin að rölta í
Hátún til Línu í góða kaffibrauðið,
fá að líta augum fallegu blómin
hennar og njóta rólegheitanna. Við
eigum henni þakkir að gjalda og
göngum ríkari áfram veginn.
Elsku Gulli, Raggi, Nonni og fjöl-
skyldur, við biðjum Guð að styrkja
ykkur og vottum ykkur okkar
dýpstu samúð.
Jóhanna, Steinunn, Katrín,
Berglind Ólafsdætur
og fjölskyldur.
Elsku amma okkar, það eru
margar minningarnar sem koma
upp í hugann þegar við sitjum hérna
í fallega húsinu þínu og hugsum til
baka. Þú varst svo stór hluti af lífi
okkar. Þú varst sú kona í okkar lífi
sem var alltaf til staðar alveg sama á
hverju gekk. Kærleikurinn og hlýj-
an var alltaf sú sama hvort sem það
voru jólin, göngur og réttir eða bara
hversdagurinn. Alltaf var sama ró-
lega andrúmsloftið og þessi óend-
anlegi tími sem þú hafðir fyrir okk-
ur.
Þar sem þú bjóst alla okkar æsku
í næsta húsi var samgangur mikill á
milli og það leið aldrei sá dagur að
við hittumst ekki. Allir skóladagar
enduðu þannig að maður gekk upp
afleggjarann og beint til þín að læra.
Það var alveg sama hvort um var að
ræða ensku, dönsku, landafræði eða
eitthvað annað, alltaf gastu hjálpað
okkur. Það voru ansi margir dag-
arnir sem við eyddum með þér í
gamla bænum á sumrin en þar
vannstu í 21 ár.
Amma, þú kenndir okkur býsna
margt sem sneri að húsmóðurhlut-
verkinu og garðrækt. Það eru ófá
símtölin sem við höfum átt með
spurningum um vatnsdeigsbollur,
jólakökur, lús á blómum og umpott-
un. Við vorum ekki gamlar þegar við
fengum að hræra í jólakökudeiginu
og smökkuðum aðeins á því. Þegar
við vorum farnar að borða of mikið
fengum við söguna af pabba þegar
hann át sig veikan af hráu deigi.
Jólakökurnar þínar voru svo góðar
að margir voru búnir að reyna að
baka eftir uppskriftinni en aldrei
voru þær eins góðar og hjá þér.
Þú varst dugleg að koma suður
eftir að við fluttum þangað og þá var
alltaf farið á kaffihús og keypt heitt
súkkulaði og góð terta með. Þú lést
þig ekki vanta þegar eitthvað stórt
var að gerast í lífi okkur, hvort sem
það var fæðing barna okkar, ferm-
ing, útskrift eða eitthvað annað.
Nýársdagur var alltaf haldinn há-
tíðlegur hjá þér og þegar við vorum
litlar gistum við hjá þér á nýársnótt
til að geta byrjað strax um morg-
uninn að hjálpa til við veisluna. Það
var borðaður hádegismatur, lamba-
hryggur og hangikjöt með öllu til-
heyrandi, farið í messu, spiluð vist
og í kaffinu fylltist borðið af kökum
og heitu súkkulaði.
Það var yndislegt í fyrrasumar að
fá að hjálpa ykkur afa að flytja í nýja
húsið ykkar hérna í Hátúni. Það var
svo gaman að taka þátt í gleði ykkar
við að flytja í nýtt hús og finna fyrir
þakklæti ykkar í okkar garð og hvað
þið voruð hissa hvernig við komum
öllu dótinu ykkar vel fyrir.
Elsku amma okkar, takk fyrir allt
sem þú gafst okkur, það voru for-
réttindi að eiga þig sem ömmu og fá
að alast upp með þér. Við erum
þakklátar fyrir að hafa getað setið
hjá þér í veikindum þínum. Missir
afa er mikill eftir rúmlega 60 ár
saman. Guð blessi þig, afi.
Finna og Ragna.
Ég vil nú við leiðarlok minnast
fyrrverandi tengdamóður minnar
með nokkrum orðum. Ég vil þakka
henni margt það sem hún kenndi
mér í störfum við heimilishald og
varð mér notadrjúgt á lífsleiðinni.
Ég vil þakka henni allar viðgerðir og
umönnun á fatnaði barnabarna
hennar en við slík störf átti hún fáa
sína líka.
Aldrei minnist ég þess að bæði ég
hana um viðvik, að hafa börnin hjá
sér um stund eða annað sem dag-
legu lífi fylgir, væri nei í hennar
svörum. Allt var einhvern veginn
svo sjálfsagt og án margra orða.
Hún var ekki sögð hláturmild hún
Lína eins og nafn hennar var í dag-
legu tali en á okkar stundum var oft
hlátur og nú eru þær stundir mér
einkar kærar og vil ég ljúka fáum
orðum á þeim stundum. Gulli minn,
innilegar samúðarkveðjur
María Valgarðsdóttir (Mæsa.)
Ólína Ragnheiður
Jónsdóttir
Elsku amma mín, það var
mjög gott að geta komið til
þín og alltaf gaman. Þú varst
alltaf til í að spila við mig
rommý. Þú sagðir mér sögur
af Óla sem var strákur sem
bjó í sveit. Við vöskuðum upp
saman eftir matinn. Alltaf á
afmælinu mínu fórum við út í
garð og klipptum blóm til að
hafa í vasa. Bréfkökurnar
þínar voru mjög góðar og
þær voru alltaf til. Ég sakna
þín mjög mikið.
Þín
Guðný Ósk.
Elsku amma mín, það var
gaman að koma til þín og það
var alltaf rólegt hjá þér. Þú
varst alltaf tilbúin að spila
við okkur. Við máttum alltaf
koma til þín og svo fengum
við oft möffins hjá þér.
Gunnar Ingi.
HINSTA KVEÐJA
Morgunblaðið birtir minningargreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minningargrein á útfarardegi verður hún að berast
fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi
eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss
er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skila-
frestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum -
mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að
senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem
kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er
unnt að tengja viðhengi við síðuna.
Myndir | Ef mynd hefur birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með
minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að
senda hana á myndamóttöku: pix@mbl.is og láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningargreinar
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar og afi,
ÓSKAR V. FRIÐRIKSSON,
Árakri 5,
Garðabæ,
sem andaðist 21. ágúst, verður jarðsunginn frá
Seljakirkju mánudaginn 1. september kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög.
Guðlaug Þorleifsdóttir,
Stefanía Óskarsdóttir, Jón Atli Benediktsson,
Herdís Óskarsdóttir, Sæmundur Valdimarsson,
Þorleifur Óskarsson, Kristrún Lilja Daðadóttir
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir kunnum við öllum þeim sem
auðsýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
JÓRUNNAR HÖDDU EGILSDÓTTUR.
Ingiberg Þ. Halldórsson,
Katrín Ingibergsdóttir, Jóhann A. Guðmundsson,
Bergþór Ingibergsson, Sirivan Khongjamroen,
Egill Ingibergsson, Anna María Sveinbjörnsdóttir,
Guðbjörg Ingibergsdóttir, Ólafur Haukdal Bergsson,
Halldór Ingibergsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, dóttir,
tengdadóttir og systir,
GUÐBJÖRG ELSA SIGURJÓNSDÓTTIR
fulltrúi hjá Íslandspósti Kópavogi,
Funalind 15,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum við Hringbraut þriðjudaginn
26. ágúst.
Jarðsungið verður frá Kópavogskirkju föstudaginn
12. september kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á krabbameinslækningadeild
11E við Hringbraut eða Krabbameinsfélagið.
Sigurjón Ómar Níelsson, Elísa Harpa Grytvik,
Anna Björg Níelsdóttir, Sigurður Sigurðsson,
Níels Birgir Níelsson, Svanborg Gísladóttir,
Arnar Bjarki, Glódís Rún, Védís Huld og Heiðdís Perla,
Hulda Sigurbjörnsdóttir, Hrefna Skagfjörð,
Íris Dagmar Sigurjónsdóttir, Jónanna María Sigurjónsdóttir.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SOFFÍA ÓLAFSDÓTTIR,
Viðjugerði 12,
Reykjavík,
lést fimmtudaginn 28. ágúst.
Björg Ingólfsdóttir,
Ágústa Ingólfsdóttir,
Ólafur Ingólfsson, Bjarghildur Jósepsdóttir,
Hrafnhildur Ingólfsdóttir, Magnús Á. Magnússon,
Finnbogi Ingólfsson, Kristín Birna Jakobsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.