Morgunblaðið - 30.08.2008, Qupperneq 38
38 LAUGARDAGUR 30. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
söng, organisti Jón Ólafur Sigurðsson.
Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl.
18. hjallakirkja.is.
HJALLAKIRKJA í Ölfusi | Hátíðarmessa
kl. 14, í tilefni af 80 ára afmæli kirkj-
unnar. Sr. Svavar Stefánsson fyrrverandi
sóknarprestur kirkjunnar þjónar fyrir alt-
ari ásamt sóknarprestinum Baldri Krist-
jánssyni. Organisti verður Hannes Bald-
ursson og kirkjukór Þorlákskirkju syngur.
Sigurður Sigurðarson vígslubiskup í Skál-
holtsstifti predikar. Eftir messu er kirkju-
gestum boðið til kaffisamsætis að hótel-
inu að Hlíð í Ölfusi. Hjallakirkja er Ólafs-
kirkja, kennd við Ólaf helga Noregs-
konung. Núverandi kirkja er byggð 1928.
Allir velunnarar og vinir Hjallakirkju vel-
komnir.
HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Sam-
koma kl. 20. Umsjón hefur Ester Daní-
elsdóttir og Wouter van Gooswilligen.
Einnig eru útgáfutónleikar kl. 14 v/
disksins „Gospelgleði“ hjá KFUM og K á
Holtavegi 28. Opið hús kl. 16-17.30
þriðjudag til fimmtudags. Kvöldvaka með
happdrætti og veitingum fimmtudag kl.
20. Umsjón hefur Bjarg. Fatabúðin í
Garðastræti 6 og nytjamarkaðurinn á Eyj-
arslóð 7 eru opin virka daga kl. 13-18.
HÓLADÓMKIRKJA | Messa kl. 11.
Vígslubiskup sr. Jón Aðalsteinn Baldvins-
son messar, Kvennakórinn Vox femine
syngur og organisti er Örn Magnússon.
Tónleikar kl. 14, Kvennakórinn Vox fem-
ine syngur.
HRÍSEYJARKIRKJA | Hátíðarmessa kl.
14 í tilefni af 80 ára afmæli kirkjunnar.
Sr. Hannes Örn Blandon prófastur Eyja-
fjarðarprófastsdæmis predikar, kirkjukór
Hríseyjarkirkju syngur undir stjórn
Jóhanns Ólafssonar organista. Þá mun
Ásgeir Halldórsson málarameistari segir
sögu kirkjunnar.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Inter-
national church service in the cafeteria
at 13PM. Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður er Vörður Leví Traustason
lofgjörð og fyrirbæn.
ÍSLENSKA Kristskirkjan | Samkoma kl.
20. Stórhljómsveit kirkjunnar sér um lof-
gjörð við hammondundirleik. Vitnisburðir
frá Marokkóförum og fyrirbænir.
www.kristur.is
KAÞÓLSKA KIRKJAN:
Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og
laugardag kl. 18.
Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru, Reyðarf.
| Messa kl. 11.
Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl.
10.30 og virka daga kl. 18.30.
Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl.
8.30 og virka daga kl. 8.
Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14.
Kristskirkja, Landakoti | Messa kl.
10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er
messa kl. 18. Mánudaga, miðvikudaga
og föstudaga er messa á latínu kl. 8.10.
Laugardaga er barnamessa kl. 14 að trú-
fræðslu lokinni.
Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka
daga kl. 18.30.
Ísafjörður | Messa kl. 11.
Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í
mánuði kl. 16.
Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í
mánuði kl. 16.
Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa
kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugar-
daga er messa á ensku kl. 18.30.
Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðviku-
daga kl. 20.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Haustmessa kl.
11. Kór Keflavíkurkirkju syngur undir
stjórn Arnórs Vilbergssonar organista.
Prestur er sr. Sigfús Baldvin Ingvason.
KETUKIRKJA Skaga | Hátíðarmessa kl.
14. Kirkjan tekin í notkun að nýju eftir
miklar endurbætur. Jón Aðalsteinn Bald-
vinsson Hólabiskup predikar, Sigríður
Gunnarsdóttir sóknarprestur þjónar fyrir
AKRANESKIRKJA | Kvöldguðsþjónusta
kl. 20. Messað á Dvalarheimilinu Höfða
kl. 12.45.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari og
predikar. Krisztina K. Szklenár organisti.
Kirkjukórinn leiðir almennan safnaðar-
söng. Kaffiveitingar á eftir.
ÁSKIRKJA | Messa kl. 11. Sóknarprestur
predikar og þjónar fyrir altari ásamt Mar-
gréti Svavarsdóttur djákna. Kór Áskirkju
syngur, organisti Magnús Ragnarsson.
Guðsþjónusta á Hjúkrunarheimilinu
Skjóli kl. 13. Vinir og vandamenn heim-
ilisfólks eru hvattir til að koma. Félagar
úr Kór Áskirkju leiða söng, organisti
Magnús Ragnarsson.
BESSASTAÐAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Friðrik J. Hjartar predikar og þjónar fyrir
altari. Barn borið til skírnar. Álftaneskór-
inn syngur undir stjórn organistans,
Bjarts Loga Guðnasonar. Minnt er á að
ljúka skráningum til ferminga 2009 á
www.gardasokn.is
BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi |
Guðsþjónusta kl. 11. Gunnar Kristjáns-
son sóknarprestur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur sr. Gísli Jónasson, kór Breið-
holtskirkju syngur, organisti Julian
Isaacs. Sunnudagaskóli á sama tíma.
Kaffi í safnaðarheimili eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Kór Bústaðakirkju syngur, oragnisti
Renata Ivan, prestur sr. Pálmi Matthías-
son. Eftir messu er kaffi í safnaðar-
heimilinu. Guðspjallið fjallar um að geta
ekki þjónað tveimur herrum; Guði og
mammon.
DIGRANESKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur sr. Magnús Björn Björnsson, organisti
Bjarni Þór Jónatansson og kór Digranes-
kirkju leiðir söng.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálm-
ar Jónsson predikar og þjónar fyrir altari,
sönghópur úr Dómkórnum syngur, organ-
isti er Marteinn Friðriksson.
EGILSSTAÐAKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Samvinna presta og safnaða á Hér-
aði. Þorgeir Arason guðfræðingur, æsku-
lýðs- og fræðslufulltrúi predikar, organisti
er Torvald Gjerde. Vænst þátttöku ferm-
ingarbarna og foreldra.
FELLA- og Hólakirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Prestur sr. Svavar Stefánsson, Sig-
ríður Rún Tryggvadóttir guðfræðingur pre-
dikar. Félagar úr kirkjukórnum leiða al-
mennan safnaðarsöng, organisti er
Sigrún Magnea Þorsteinsdóttir. Með-
hjálpari er Kristín Ingólfsdóttir. Samvera í
kirkjustarfi eldri borgara verður 2. sept.
þar sem dagskrá haustsins verður kynnt.
Kaffiveitingar. Endað verður með helgi-
stund í kirkju.
FRÍKIRKJAN Kefas | Samkoma kl. 20.
Helgi Guðnason verður gestur og predik-
ar Guðs orð. Lofgjörð og boðið til fyrir-
bæna. Að samkomu lokinni verður kaffi
og samvera og verslun kirkjunnar opin.
FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta
kl. 14. Fermingarbörn og foreldrar þeirra
hvött til að mæta. Tónlistina leiða tónlist-
arstjórarnir Anna Sigga og Carl Möller
einnig kemur kór Fríkirkjunnar til starfa
aftur eftir sumarfrí. Hjörtur Magni Jó-
hannsson predikar og þjónar fyrir altari.
GAULVERJABÆJARKIRKJA | Messa kl.
14, altarisganga.
GRAFARHOLTSSÓKN | Messa í Þórðar-
sveig, kl. 11. Prestur sr. Sigríður Guð-
marsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir,
kirkjukór Grafarholtssóknar syngur.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Lena Rós Matthíasdóttir predikar
og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju
syngur, organisti er Hákon Leifsson.
GRENSÁSKIRKJA | Morgunmatur kl. 10,
bænastund kl. 10.15 og messa kl. 11.
Altarisganga og samskot í líknarsjóð.
Messuhópur þjónar. Kirkjukór Grensás-
kirkju leiðir söng, organisti Árni Arin-
bjarnarson, prestur er sr. Ólafur Jóhanns-
son. Molasopi eftir messu.
GRUND dvalar- og hjúkrunarh. | Guðs-
þjónusta kl. 14. Sr. Hreinn S. Hákonar-
son, organisti Kjartan Ólafsson.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Prestur er sr. Gunnþór Þ.
Ingason, kantor er Guðmundur Sigurðs-
son, kór Barbörukórinn í Hafnarfirði.
Vænst er þátttöku fermingarbarna og
fjölskyldna þeirra.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Guðni Már Harðarson skólaprestur pre-
dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Jóni
Dalbú Hróbjartssyni og messuhópi skóla-
fólks. Beðið verður fyrir skólastarfi á Ís-
landi og safnað til Kristilega skólastarfs-
ins. Hópur úr Mótettukór syngur undir
stjórn Harðar Áskelssonar kantors.
Sögustund verður fyrir börnin.
Ensk messa kl. 14, í umsjá sr. Bjarna
Þórs Bjarnasonar, organisti Hörður Ás-
kelsson, forsöngvari Jónína Kristins-
dóttir. Messukaffi.
HJALLAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11.
Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar, félagar úr
kór kirkjunnar syngja og leiða safnaðar-
altari, Pétur Pétursson syngur einsöng,
organisti Rögnvaldur Valbergsson. Á eftir
er boðið upp á kaffiveitingar í Skagaseli.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 11. Prest-
ur Ægir Fr. Sigurgeirsson, félagar úr kór
Kópavogskirkju leiða söng, organisti er
Lenka Mátéová. Kaffi eftir messu.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta kl. 10.30 í
Fossvogi, 4. hæð. Prestur Gunnar Rúnar
Matthíasson, organisti Helgi Bragason.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barna-
starf kl. 11. Kvartett úr Kór Langholts-
kirkju syngur úr Kantötu nr. 138 eftir J.S.
Bach. Barnastarfið hefst á ný eftir
sumarleyfi og byrjar í kirkjunni, síðan fara
börnin í safnaðarheimilið með Rut, Stein-
unni og Aroni. Nýtt efni afhent. Sr. Arna
Ýrr Sigurðardóttir predikar og þjónar
ásamt sóknarpresti sr. Jóni Helga Þór-
arinssyni, organisti Jón Stefánsson.
Kaffisopi eftir messuna. Fermingarstarf
kl. 18-21. Sjá á langholtskirkja.is.
LAUGARNESKIRKJA | Messa kl. 11 og
móttaka sunnudagaskólabarna. Sókn-
arprestur og aðrir safnaðarþjónar annast
helgihaldið ásamt lesarahópi og kór
safnaðarins. Sungnir verða sálmar hr.
Sigurbjörns Einarssonar og hans sér-
staklega minnst. Tekið verður á móti
sunnudagaskólabörnum þar sem Mar-
grét Rós Harðardóttir sunnudagaskóla-
stjóri kynnir sig og sitt samstarfsfólk. Eft-
ir messu verður opinn stefnumótunar-
fundur í safnaðaheimilinu kl.
12.30-14.30, þar sem lögð verður loka-
hönd á stefnumótun safnaðarins til
þriggja ára.
REYNIVALLAKIRKJA í Kjós | Guðsþjón-
usta kl. 14. Gunnar Kristjánsson sóknar-
prestur.
SAFNKIRKJAN í Árbæjarsafni | Guðs-
þjónusta kl. 14. Sigrún Steingrímsdóttir
organisti leiðir almennan safnaðarsöng,
prestur er Kristinn Ágúst Friðfinnsson.
SALT kristið samfélag | Samkoma kl.
17. ,,Endurnýjum heit okkar við Guð.“
Ræðumaður er sr. Kjartan Jónsson. Túlk-
að á ensku.
SAUÐÁRKRÓKSKIRJA | Messa kl. 17.
Fermingarbörn næsta vors eru sér-
staklega boðin velkomin ásamt for-
eldrum sínum. Eftir messuna er fundur
með foreldrum fermingarbarna.
SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Guðbjörg Jóhannesdóttir þjónar, kór kirkj-
unnar leiðir söng undir stjórn Jörg
Sondermann organista. Léttur hádegis-
verður eftir messu.
SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta í Skógar-
bæ kl. 16. Sr. Bolli Pétur Bollason pre-
dikar. Guðsþjónusta kl. 20. Sr. Bolli Pét-
ur Bollason predikar. Altarisganga, kór
kirkjunnar leiðir sönginn við athafnir und-
ir stjórn organistans Jóns Bjarnasonar.
SELTJARNARNESKIRKJA | Messa kl. 11.
Félagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða
safnaðarsöng undir stjórn Friðriks Vignis
Stefánssonar, prestur er Sigurður Grétar
Helgason.
TUNGUFELLSKIRKJA | Árleg sumar-
messa í Tungufellskirkju kl. 16.
VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr.
Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar
fyrir altari. Félagar úr kór Vídalínskirkju
leiða tónlistina undir stjórn Jóhanns
Baldvinssonar organista. Hressing í
safnaðarheimilinu að lokinni messu. Sjá
gardasokn.is
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjónusta kl.
11. Organisti Dagmar Kunakova, kór
kirkjunnar leiðir söng. Meðhjálpari er Ást-
ríður Helga Sigurðardóttir. Sóknar-
prestur.
ÞINGVALLAKIRKJA | Messa kl. 14. Dr.
Sigurður Árni Þórðarson prestur við Nes-
kirkju í Reykjavík predikar og þjónar fyrir
altari, organisti Þórður Sigurðsson. Þetta
er síðasta messa í kirkjunni um sinn, þar
sem í hönd fer tími viðgerða og lagfær-
inga á kirkjunni og umhverfi hennar.
Orð dagsins:
Enginn kann tveimur
herrum að þjóna.
(Matt. 6.)
Morgunblaðið/Ómar
Strandarkirkja
þér fyrir allar þær gleðistundir og
alla þá ást og umhyggju sem þú
sýndir mér.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Hvíl í friði, elsku amma.
Þín
Eva Rós.
Það var laugardagurinn 23. ágúst
sl., undirrituð stödd austur í Skál-
holti. Það var einhver angurværð í
loftinu, umbreyting árstíðar að
læðast að, handan hæðarinnar hinn
gróskumikli Laugarás og hugurinn
reikaði til horfins tíma þegar Sig-
urbjörg Svanhvít móðursystir mín
og Gísli maður hennar bjuggu að
Ljósalandi í Laugarási og ráku þar
garðyrkjustöð með miklum mynd-
arbrag í 23 ár. Óafvitandi að líf
frænku minnar væri á þessari
stundu að fjara út, svo snögglega
bar andlát hennar að.
Bagga var hún ávallt kölluð, en
yfirleitt var hún á okkar heimili
kölluð Bagga móðursystir. Hún ólst
upp í Ósgerði í Ölfusi ásamt 4
systkinum, þeim Sveini, Guðríði,
Aðalsteini og Halldóru og er nú Að-
alsteinn einn eftirlifandi. Þegar
heimilisfaðirinn andaðist flutti
amma með börnin til Hveragerðis.
Það er skammt stórra högga á
milli í lífi fjölskyldunnar en á sl. ári
létust Halldóra systir og Svanlaug
mágkona hennar og svo dó hann
Sveinn Steindór einkasonur henn-
ar. Í fjölskyldualbúminu er mynd
af Böggu og Gísla nýtrúlofuðum og
fallegum í Hveragerði og sólin skín.
Þau eignuðust 3 börn, Sigurbjörgu
Þorkelínu, Svein Steindór og Svan-
hvíti. Barnabörnin urðu 9, þar af
eitt látið og barnabarnabörnin eru
orðin 14. Þau stofnuðu heimili í
Hveragerði. Byggðu hús sem þau
kölluðu Varmá. Þar vorum við fjöl-
skyldan part úr sumri áður en við
eignuðumst Hof, sumarbústaðinn
okkar í Hverahlíðinni. En það urðu
13 árin sem Suðurlandið var án
frænku og fjölskyldu. Áður en þau
fluttu austur í Laugarás bjuggu
þau í 13 ár í Eyjafirði, þar sem
Gísli rak gróðrarstöð Kea að
Brúnalaug. Við fjölskyldan heim-
sóttum þau norður og nutum gest-
risni þeirra.
Minningabrotin eru mörg: Eitt
sinn er Bagga þurfti í bæjar-
skreppu og dvaldi hjá okkur á
Reynimelnum, gerði hún sér ferð
til kaupmannsins á horninu og
keypti að því er mér fannst í þá
daga firnastórar kókosbollur og
skenkti okkur ungdómnum sem
ljómuðum af ánægju og aðdáun á
Böggu móðursystur og enn var hún
að koma á óvart hálfum mánuði
fyrir andlátið, þegar við nokkrar
„stelpur“ fengum okkur rispu um
sveitirnar, stöldruðum við á Geysi
og pöntuðum kaffi og veislubrauð.
Þá dró Sibba frænka upp úr pússi
sínu peninga frá móður sinni, hún
ætlaði að borga þetta.
Líf frænku minnar var ekki alltaf
auðvelt heilsufarslega séð og var
sumarið núna henni sérlega erfitt.
Eftir að Sveinn Steindór dó reyndi
virkilega á hennar krafta. Þó á eng-
an sé hallað verður ekki hjá því
komist að minnast sambands
Böggu og Sibbu dóttur hennar.
Einstaklega samrýndar mæðgur og
umhyggja Sibbu og óeigingirni
gagnvart velferð móður einstakt.
Bagga var nægjusöm, hennar stað-
ur var heimilið og Ísland, sem hún
fór aldrei af í sínu lífi. Hún las
bækur og blöð, horfði á sjónvarpið
og hafði hið mesta yndi af að fá
gesti í heimsókn og vílaði ekki fyrir
sér að labba milli bæja og í búðir
meðan heilsa og kraftar leyfðu.
Hún var hugsunarsöm, góð og hún
átti innri frið. Ég get alveg séð
hana fyrir mér hressa í anda að
nostra við hann Gísla sinn, hella
upp á, smyrja flatkökur og gefandi
gaum hvort gesti beri að garði.
Blessuð sé minning Sigurbjargar
Svanhvítar Steindórsdóttur.
Elín E. Steinþórsdóttir.
Móðursystir mín er farin í hinstu
förina sem við leggjum öll í á end-
anum.
Við þennan viðskilnað vakna
minningarnar og hugurinn fer á
flug. Ein fyrsta bernskuminningin
eru svipleiftur frá dvöl okkar á
Varmá, garðyrkjubýlinu sem þau
Gísli stofnuðu við samnefnda á, í
Hveragerði. Þar dvaldi mamma
með okkur systkinin sem þá voru
fædd, sumarlangt.
Minnisstæð var olíueldavélin og
lyktin af henni.
Við Sibba að leika okkur úti við á
landareigninni, sem þá var grýtt.
Og Grýta gaus reglulega.
Við frænkurnar sýndum ýmsa
athafnasemi sem Bagga rifjaði upp
síðar. Einhvern tíma, þegar enginn
fylgdist með okkur, fórum við í
rannsóknarleiðangur í vinnuskúr-
inn, náðum okkur í málningu og
máluðum hvor aðra frá hvirfli til
ilja, var það víst mikið verk fyrir
systurnar að ná þessum ófögnuði af
okkur.
Síðar komu skýrar minningar frá
Brúnalaug í Eyjafirði. En þar veitti
Gísli forstöðu garðyrkjustöð KEA.
Bagga stýrði stóru og mannmögu
heimili af miklum myndarskap og
gestrisni sem reyndar einkenndi
alltaf hennar heimilishald. Þar tóku
þau á móti okkur fjölskyldunni og
áttum við dýrðardaga. Börnin
þeirra þrjú komin vel á legg; Sig-
urbjörg, Sveinn Steindór og Svan-
hvít.
Við fórum m.a. saman að Mý-
vatni og í Vaglaskóg. Fyrir okkur
Sunnlendingana af mölinni var
þetta mikil upplifun.
Síðar var stofnað garðyrkjubýlið
Ljósaland í Laugarási, Biskups-
tungum. Þá fjölgaði nú samveru-
stundum og heimsóknum enda
styttra á milli.
Frænka var yndisleg manneskja,
skaplétt og átti auðvelt með að um-
gangast fólk, átti ótakmarkaða
hlýju og umhyggju til allra sem
hún kynntist. Að henni löðuðust
menn og málleysingjar.
Böggu var ekki hlíft við veik-
indamótlæti og þungbærum ást-
vinamissi. Fyrsta barnabarnið,u
Gísli Jón, fórst í hörmulegu vél-
hjólaslysi kornungur. Gísla, mann
sinn, missti hún eftir mikil veikindi
fyrir allmörgum árum.
Brá hún þá búi og flutti til
Hveragerðis, á æskustöðvarnar.
Kom hún sér upp notalegu heimili
og var gestkvæmt hjá henni. Vin-
mörg, enda uppskar hún þá rækt-
arsemi sem hún ætíð sýndi öðrum.
Hún var umvafin umhyggju
barna sinna Sigurbjargar og Sveins
Steindórs, tengdabarna og afkom-
enda þeirra. Síðar flutti yngsta
dóttirin Svanhvít ásamt fjölskyldu
suður til Reykjavíkur og fjölgaði þá
samverustundum þeirra.
Tvö af systkinum Böggu bjuggu
þá í Hveragerði, þau Halldóra, nú
látin, og Aðalsteinn, sem einn lifir
af systkinunum fimm frá Ósgerði í
Ölfusi.
Sveinn Steindór lést í fyrravor
og var það frænku mikill harmur.
Ó, hve sæll er sá, er treysti
sínum Guði hverja tíð,
hann á bjargi hús sitt reisti,
hræðist ekki veðrin stríð.
Hann í allri segir sorg:
Sjálfur Drottinn mín er borg,
náð og fullting hans mig hugga,
hans ég bý í verndar skugga.
(Höf. ók.)
Ég átti því láni að fagna hin síð-
ari ár að eiga fjölmargar samveru-
stundir með móðursystur minni, og
á þessari stundu er mér þakklæti
efst í huga.
Blessuð sé minning hennar.
Sveinbjörg Steinþórsdóttir.
Sigurbjörg Svanhvít
Steindórsdóttir
MESSUR Á MORGUN