Morgunblaðið - 25.09.2008, Page 8
8 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
SVARTUR dagur í sögu hún-
vetnskrar mjólkurframleiðslu eftir
60 ára starf samlagsins,“ segir
Magnús Sigurðsson, kúabóndi á
Hnjúki og formaður A-Húnaþings-
deildar Auðhumlu, um þá ákvörðun
Auðhumlu og Mjólkursamsölunnar
(MS) að loka mjólkurbúinu á
Blönduósi frá áramótum. Á þessa
lund hafa viðbrögð heimamanna ver-
ið við tíðindunum. Hefur bæjar-
stjórnin óskað eftir fundi með Auð-
humlu til að fá nánari skýringar.
En forsvarsmenn Auðhumlu segj-
ast ekki gera þetta að gamni sínu.
Fyrirtækið þurfi að hagræða í
rekstrinum og bregðast við miklum
hækkunum á öllum aðföngum og
kostnaði. Er blessuð krónan nefnd
til sögunnar í þeim efnum, að
ógleymdum launahækkunum. Dýr-
ara sé orðið að vinna úr hverjum
mjólkurdropa en áður.
Ekki verður bakkað
Magnús Ólafsson, forstjóri Auð-
humlu og MS, segir að með lok-
uninni á Blönduósi sparist tugir
milljóna króna en fyrirtækið þurfi á
þessu ári að hagræða um 400 til 500
milljónir króna.
Hagræðingin heldur því áfram en
fyrir sléttu ári varð uppi fótur og fit
þegar tilkynnt var um lokun mjólk-
urbúsins á Egilsstöðum. Eftir hávær
mótmæli heimamanna var sú
ákvörðun endurskoðuð að hluta og
ostaframleiðslu haldið áfram ásamt
dreifingu fyrir Austurland.
Miðað við orð Magnúsar forstjóra
þá er harla ólíklegt að bakkað verði
með ákvörðunina á Blönduósi. Hann
segir að Mjólkursamsalan muni
áfram hlúa að þeim 33 framleið-
endum á svæðinu sem hafi lagt inn
mjólk á Blönduósi, alls um 4,2 millj-
ónir lítra á ári. Hins vegar sé ekki
hægt að halda uppi einhverri dreif-
ingu á Blönduósi, líkt og gert hafi
verið á Egilsstöðum. Framleiðslan á
Blönduósi hafi verið það einhæf.
Úrvinnsla mjólkurafurða hefur
verið starfrækt á Blönduósi í 60 ár
en starfsmönnum mjólkurbúsins
hefur fækkað hin síðari ár. Nú starfa
þar átta manns, þar af einn mjólk-
urfræðingur. Verður þeim boðin
önnur vinna, m.a. við úrvinnslu sjáv-
arbragðefna sem til stendur að flytja
frá Skagaströnd í húsnæði mjólkur-
búsins á Blönduósi. Auðhumla á hlut
í fyrirtækinu SERO sem starfað hef-
ur á Skagaströnd frá 1999.
Að sögn Magnúsar verða mjólk-
ursöfnunarbílar áfram á Blönduósi
en sjálf úrvinnsla mjólkurinnar flyst
til Akureyrar. Undanskilin er
vinnsla á völsuðu mjólkurdufti, sem
notað hefur verið til sælgætisgerðar,
og flyst hún á Selfoss. „Við höfum
verið á fullu við að hagræða, alveg
frá því að félagið varð til á síðasta
ári. Meðal annars höfum við lagt nið-
ur stórfyrirtæki í Reykjavík sem
heitir Osta- og smjörsalan, og við er-
um í mikilli tilfæringu á framleiðslu
til að gera hana hagkvæmari,“ segir
Magnús og tekur dæmi um myglu-
ostagerðina sem verið er að safna
saman í Búðardal. „Við höfum verið
að sérhæfa framleiðsluna til að búa
okkur undir frekari samkeppni.“
Hvað með byggðasjónarmiðin?
Mjólkurframleiðendur í Húna-
þingi eru sem fyrr segir ókátir með
þessa niðurstöðu. Magnús á Hnjúki
segist hafa heyrt í nokkrum starfs-
bræðum sínum og allir lýst miklum
vonbrigðum og harmi. „Við teljum
að byggðasjónarmið hefðu átt að
ráða ríkjum og halda samlaginu
opnu. Þetta hefur vofað yfir okkur
um nokkurt skeið en við töldum okk-
ur vera á lygnum sjó og með það
góða framleiðslu til duftgerðar að
við yrðum áfram með samlagið,“
segir hann og telur nálægð bænda
við afurðastöðvar hafa gríðarlegt
gildi fyrir greinina í heild sinni.
Dýrara að vinna dropann
Svartur dagur, segir talsmaður kúabænda í A-Húnaþingi um lokun mjólkurbús-
ins á Blönduósi Auðhumla þarf að hagræða í rekstri um 400–500 milljónir króna
Morgunblaðið/Steinunn
Mjólkurbú Mikil hagræðing hefur verið í mjólkuriðnaði og frá miðju ári
2006 hefur störfum fækkað um 120. Starfsmenn Auðhumlu eru nú um 400.
Í HNOTSKURN
»Auðhumla er samvinnu-félag í eigu um 700 mjólk-
urframleiðenda, stofnað vorið
2007 í kjölfar mikilla samein-
inga í mjólkuriðnaði.
»Meðal dótturfélaga Auð-humlu er Mjólkursamsalan
(MS) sem annast rekstur á
mjólkurbúum. Á Auðhumla
85% hlut í MS á móti 15% í
eigu Kaupfélags Skagfirð-
inga, sem rekur eigið mjólk-
ursamlag á Sauðárkróki.
»Auk Blönduóss hefur MSverið með starfsstöðvar í
Reykjavík, Búðardal og á Ísa-
firði, Akureyri, Egilsstöðum
og Selfossi.
Þórólfur Sveinsson á Ferjubakka,
formaður Landssambands kúa-
bænda, segir að ákvörðun Auð-
humlu og Mjólkursamsölunnar
komi sér ekki á óvart. Reksturinn
sé orðinn samtengdur með eign-
araðild Auðhumlu og Kaupfélags
Skagfirðinga að Mjólkursamsöl-
unni.
„Auðhumla á samlagið á
Blönduósi og miðað við það sem
hefur verið að gerast annars stað-
ar á landinu á það ekki að koma á
óvart að ekki sé talin þörf á að
reka samlög á Akureyri, Sauð-
árkróki og Blönduósi, ásamt
Búðardal. Þar að auki er afkoman í
mjólkuriðnaðinum slæm um þess-
ar mundir og það ýtir meira á
menn að draga enn frekar úr
kostnaði,“ segir Þórólfur.
Hann segist hins vegar skilja
mjög vel óánægju kúabænda í
Húnaþingi. Eðlilega sjái menn eftir
samlaginu sem þeir hafi lagt inn
hjá alla sína starfsævi og störf-
unum sem fylgja. Sjálfur hafi hann
gengið í gegnum þetta þegar
mjólkursamlaginu í Borgarnesi var
lokað á sínum tíma.
Kemur formanni LK ekki á óvart
ÖLL olíufélögin hækkuðu eldsneyt-
isverðið í gær. Skeljungur og N1
riðu á vaðið og hin félögin fylgdu í
kjölfarið.
Algengt verð eftir þessa hækkun
er 169,70 krónur bensínlítrinn í
sjálfsafgreiðslu og 187,80 krónur
dísilolíulítrinn. Lægst er verðið hjá
Orkunni, eða 168 krónur lítrinn af
bensíni og 185 krónur lítrinn af dís-
ilolíu.
Í tilkynningu frá N1 segir, að þar
hafi eldsneytisverði ekki verið
breytt síðustu 30 daga þrátt fyrir
gríðarlegan óróa á gjaldeyrismörk-
uðum og olíumörkuðum. Segir N1
að horfur á olíumörkuðum og
gjaldeyrismörkuðum séu neikvæð-
ar til skemmri tíma litið og því sé
ekki hægt að komast hjá verðhækk-
un á þessum tímapunkti.
Morgunblaðið/Jim Smart
Hækkun Dropinn er dýrari en áður.
Enn ein hækk-
un á eldsneyti
ELDUR, sem kom upp í húsi í
Hnífsdal á níunda tímanum í gær-
morgun, stafaði af rafmagnsbilun
en eldsupptökin hafa verið rakin til
rafmagnsleiðslu í timburmillivegg.
Greiðlega gekk að slökkva eldinn
en töluvert tjón varð vegna elds og
reyks.
Heimilisfólk hafði farið í vinnu
og skóla rúmlega klukkustundu áð-
ur en eldsins varð vart. Það voru
nágrannar sem urðu reyks varir frá
húsinu og tilkynntu Neyðarlínunni.
Kom slökkvilið fljótlega á staðinn.
Rafmagn olli
eldsvoðanum
„HUGMYNDIN er mjög áhuga-
verð,“ segir Össur Skarphéð-
insson, iðnaðarráðherra, um til-
lögu Helga Hjörvar,
alþingismanns Samfylkingarinnar,
í grein í Morgunblaðinu í gær þess
efnis að selja Kárahnjúkavirkjun
og fleiri virkjanir ríkisins. Krist-
ján Þór Júlíusson, alþingismaður
Sjálfstæðisflokksins, tekur í sama
streng.
Össur Skarphéðinsson segir að
öllu máli skipti að orkulindirnar
sjálfar verði ekki seldar og það sé
tryggt með nýju orkulögunum.
„Þetta er möguleiki, sem ég
myndi skoða mjög nákvæmlega, ef
tillögur kæmu upp um það,“ segir
iðnaðarráðherra og bætir við að
málið hafi ekki verið rætt á vett-
vangi ríkisstjórnarinnar.
Kristján þór Júlíusson segir að
sjálfsagt sé að skoða þessar hug-
myndir um sölu frá öllum hliðum.
Þetta hljómi ágætlega við það sem
komið hafi fram í umræðunni hjá
forsætisráðherra og Pétri Blöndal
á Alþingi. Hins vegar hafi hann
fyrirvara á auðlindasjóði.
steinthor@mbl.is
Áhugaverð
hugmynd
Össur
Skarphéðinsson
Kristján Þór
Júlíusson
STUTT