Morgunblaðið - 25.09.2008, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
HRAÐI verðbólgunnar mælist nú
14% miðað við seinustu 12 mánuði.
Hagstofan birti í gær vísitölu neyslu-
verðs skv. mælingu á verðlagi í fyrri-
hluta september og hefur hún hækk-
að um 0,86% frá fyrra mánuði.
Þetta er lítið eitt minni hækkun en
greiningardeildir bankanna höfðu
spáð. Mikill þrýstingur er á hækk-
anir um þessar mundir, sérstaklega
vegna gengisþróunar krónunnar og
bendir flest til að verðbólgan sé að
aukast þrátt fyrir þetta.
Athygli vekur að vísitalan án hús-
næðis hækkar töluvert umfram vísi-
töluna í heild, sem þýðir að húsnæð-
isliðurinn er farinn að halda aftur af
verðbólgunni. Þetta eru mikil um-
skipti frá árunum 2005 til 2007 þegar
verðhækkanir á húsnæði kyntu stöð-
ugt undir hækkun vísitölunnar. Ef
húsnæði væri ekki mælt í vísitölunni,
mældist árshraði verðbólgunnar
14,7%. Einnig lækkar verð á nýjum
bílum um 1,8% frá því í ágúst.
Kostnaður vegna eigin húsnæðis
lækkaði um 0,7% vegna lækkunar á
markaðsverði íbúðarhúsnæðis.
Áhrifin eru þau að vísitalan lækkar
um 0,14% en á móti kemur að hækk-
un raunvaxta hafði 0,03% áhrif á
hækkun vísitölunnar. „Húsnæðislið-
urinn er sá liður sem helst gæti hald-
ið aftur af verðhækkunum á næst-
unni,“ segir í Hálffimmfréttum
Kaupþings.
Föt og skór hækkuðu um 11,2%
Ef litið er á verðbreytingar á ein-
stökum vörum og þjónustu, kemur í
ljós að verð á fötum og skóm hækk-
aði frá í ágúst um 11,2%. Veldur sú
hækkun 0,47% hækkun á vísitölunni.
Hækkaði fatnaður um 13,01%.
Hækkanir skýrast að verulegu leyti
af því að sumarútsölum er lokið en
hækkanir frá seinasta mánuði eru þó
meiri en sem því nemur. Guðrún R.
Jónsdóttir, deildarstjóri á Hagstof-
unni, segir að áhrifin af útsölum í júlí
hafi verið 0,53% til lækkunar á vísi-
tölunni. Samanlögð hækkun í ágúst
og september er hins vegar 0,66%
þannig að þarna er sennilega líka um
gengisáhrif að ræða, að sögn hennar.
Verð á þjónustu hækkaði um 1,1%
en þar af voru vísitöluáhrif af verð-
hækkun á opinberri þjónustu 0,08%
og af verðhækkun annarrar þjón-
ustu 0,22%. Rafmagn og hiti hækk-
aði um 2,59% í mánuðinum.
ASÍ lýsti í gær verulegum von-
brigðum með „að opinberir aðilar
skuli við aðstæður eins og þessar
enn hækka hjá sér gjaldskrár og
kynda undir verðbólgu á sama tíma
og kallað er eftir því að launafólk
sýni ábyrgð í kjarasamningum“.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Innkaupin Þessi unga dama var með móður sinni er hún valdi sér ávexti en verð á þeim hefur hækkað um 0,63% frá fyrra mánuði. Grænmeti og kartöflur lækkuðu hins vegar um 2,73%.
Íbúðaverð hægir á verðbólgu
14% verðbólga Kostnaður vegna húsnæðis lækkaði um 0,7% Opinberar gjaldskrár hækkuðu
Hækkanir ekki eingöngu vegna þess að útsölum er lokið Rafmagn og hiti hækkuðu um 2,59%
&'"(
&&"'
)(
*+
*(
&+
&(
+
(
,+
-
*((.*((& *((* *(() *((' *((+ *((/ *((0
!
Húsgögn
3,03%
Kaffi
3,96%
Fiskur
2,44%
Verkfæri
3,34%
Hækkun Lækkun
Kjöt
0,13%
Mjólk og ostar
0,25%
Sjónvörp og tölvur
0,6%
Grænmeti
2,73%
Bílar
1,85%
Fatnaður og skór
11,18%