Morgunblaðið - 25.09.2008, Page 25

Morgunblaðið - 25.09.2008, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 25 ✝ GuðmundurGuðni Guð- mundsson fæddist á Ísafirði 22. maí 1912. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópa- vogi 3. september síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðmundur Guðna- son, sjómaður á ís- lenskum og norsk- um skipum, f. á Geirastöðum í Bol- ungarvík 27. nóv. 1876, og Anna Þórðardóttir saumakona, f. á Kleifum í Seyð- isfirði við Djúp 20. des. 1873, d. í Reykjavík 6. mars 1956. Systir Guðmundar Guðna var Guðrún húsmóðir í Reykjavík, f. á Ísafirði 23. nóv. 1906, d. 16. ágúst 1984. Bræður sammæðra eru Sveinn Ólafsson, vélstjóri í Reykjavík, f. á Kleifum í Seyðisfirði við Djúp 10. sept. 1890, d. 24. des. 1961, og Auð- unn Guðmundur Árnason, bóndi á Dvergasteini í Álftafirði við Djúp, f. á Tjaldtanga í Folafæti við Djúp 14. okt. 1901, d. 30. júní 1991. Faðir Guðmundar Guðna flutti til Nor- egs, kvæntist og átti börn þar. Sonur Guðmundar Guðna og Guðmundínu Bjarnadóttur, f. 16. maí 1911, er Úlfar Snæfjörð Ágústsson, framkvæmdastjóri á Ísafirði, f. á Ísafirði 3. júlí 1940. Kvæntur Jósefínu Guðrúnu Gísla- dóttur, f. á Ísafirði 24. jan. 1940. Þau eiga fjögur börn, Gísla, Úlf og Axel Guðna (einn sonur er látinn) og 5 barnabörn. Guðmundur Guðni kvæntist Ástu Svanhvítu Þórarinsdóttur, f. á Vatnsenda í V-Hún. 26. ágúst 1913. Bjuggu þau mestan sinn bú- skap í húsi sínu við Langholtsveg í smiðjufólks í Reykjavík, Kvæða- mannafélaginu Iðunni og Ætt- fræðifélaginu (heiðursfélagi) einnig var hann í Rithöfunda- sambandinu. Hans aðaláhugamál voru ættfræði, mannfræði, sagn- fræði og ritstörf. Hann var ágæt- lega hagmæltur og orti nokkur ljóð og urmul af tækifærisvísum sem sumt hefur birst á prenti í bók- um og blöðum. Hann var að yrkja fram á síðasta dag lífs síns. Bækur hans sem gefnar voru út: „Vaskir menn“ 1968 (sagnfræðilegir þættir um menn og málefni) og er í vinnslu til endurútgáfu. „Saga Fjalla–Eyvindar“ 1970, endur- útgefin 2004, og „Svignaskarð“ 1975. Jörðin var komin í eigu Iðju, félags verksmiðjufólks í Reykjavík, sem hugðist nota hana undir or- lofsbúðir félagsmanna og var því gefið út vandað kort af jörðinni með örnefnum sem höfundur fékk frá fyrri eigendum og þáverandi ábúendum. Auk þessara bóka var búið að tölvutaka verkið „Djúpmenn“ (allir sem vitað var að fæðst höfðu í Ísa- fjarðardjúpi), en fyrirtæki útgef- anda lenti í ósætti og gjaldþroti og disklingar lentu á vergangi. Hluti þess hefur verið prentaður út og er í eigu Ættfræðifélagsins. Stærsta verkið sem hann vann á vegum ættfræðinnar var „Eyrarætt“, niðjatal Ólafs Jónssonar lögsagn- ara í Eyri í Seyðisfirði við Djúp. Verkið reyndist of viðamikið fyrir tíma borðtölvanna og ættfræði- forritanna en löngu seinna tók Ættfræðistofan sig til og gaf út „Vigurættina“ sem er niðjatal Þórðar, elsta sonar Ólafs, og varð það 10 bindi. Eldskírn hans í út- gáfu ættfræðirita var þegar hann aðstoðaði höfund og útgefanda Arnardalsættar við að safna mynd- um og fleira hjá sínum nánustu, þá kviknaði sá neisti sem aldrei slokknaði hjá honum fyrr en lífs- neistinn slokknaði að lokum. Útför Guðmundar Guðna fer fram frá Kópavogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Reykjavík. Börn þeirra eru: 1) Þór- arinn Bjarki skrif- stofumaður, f. í Reykjavík 18. ágúst 1942, kvæntur Krist- ínu Líndal kennara, f. í Reykjavík 29. okt. 1945. Þau eiga tvær dætur, Ástu og Önnu Mjöll, og 4 barna- börn, skildu. Kvænt- ist Álfheiði Alfreðs- dóttur hárgreiðslu- meistara, f. á Djúpavogi 26. okt. 1941. Hún átti tvö börn fyrir, sonur látinn. 2) Anna Sigrún kennari, f. í Reykjavík 7. júlí 1946, d. 17. apríl 1990, gift Johan Julnes skólastjóra og rithöfundi, f. í Aukra í Noregi 17. júní 1944. Þau bjuggu í Aukra. Þau eiga 3 börn, Hildu, Leif og Jenny, og 8 barnabörn. Guðmundur Guðni var í Kvöld- skóla iðnaðarmanna á Ísafirði, einn vetur í Kennaraskóla Íslands og tvo vetur í Iðnaðarskóla Kefla- víkur. Hann stundaði ýmis störf fyrir vestan eftir að hann varð sjálfs síns herra, svo sem landbún- aðarstörf, sjósókn á trillum og far- kennslu við Bjarnarfjörð á Strönd- um. Eftir að hann kom til Reykja- víkur vann hann ýmsa verka- mannavinnu, t.d. í kringum herinn í Reykjavík og Keflavík en 1956 byrjar hann hjá trésmiðjunni Víði í Reykjavík hjá Guðmundi blinda Guðmundssyni og var þar uns hann hætti sökum aldurs rúmlega sjötugur. Hann var virkur í félags- málum og á ungdómsárum sínum við Drangsnes stofnaði hann stúku og verkalýðsfélag og tók þátt í störfum leikfélagsins á staðnum. Eftir að hann kom til Reykjavíkur var hann virkur í Iðju, félagi verk- Afi og amma á Langholtsveginum spiluðu stórt hlutverk í lífi okkar systra þegar við vorum að alast upp. Þau pössuðu okkur oft og um tíma bjuggum við í risinu hjá þeim. Risið var eins og ævintýraveröld, alls kyns spennandi hlutir að skoða og upplifa, og hægt að skríða inni í súðinni milli herbergja. Afi var iðulega við ritvél- ina sína en leit þó stundum upp og gaf okkur sykurmola. Góðar minningar eru einnig tengdar fjöruferðum og bíltúrum með afa og ömmu í grænu bjöllunni. Það er óhætt að segja að minningar barnæskunnar eru ná- tengdar minningum um ömmu og afa á Langholtsveginum. Frá unga aldri stóð hugur afa til fræðimennsku, skrifa og skáldskapar en hann gerðist iðnverkamaður til að sjá fyrir sér og sínum. Hann náði þó að sinna vel hugðarefnum sínum meðfram launa- vinnunni og fannst okkur systrum sem hann nýtti hverja lausa stund til skrifta. Afi var alþýðuhetja, ólst upp við þröngan kost og átti ekki von á því að lifa langa ævi. Við höfum oft bros- að að því þegar hann var ítrekað að búast við ævilokunum handan við hornið. Hann bjóst ekki við að verða fertugur, hann átti ekki von á því að lifa af heilablóðfallið, háskólagráður barnabarnanna, brúðkaup þeirra, fæðingu barnabarnabarnanna, alda- mótin eða aðrar slíkar vörður á lífsins vegi. En 96 ára varð hann og var ennþá að fara gangandi í sund um ní- ræðisaldur, ótrúlega sprækur. Ekki tókst honum heldur að verða grá- hærður nema að litlu leyti. Það er margt í lífsferli afa sem gerir hann að hetju í okkar augum en jafnljóst er það að slíkt hefur aldrei hvarflað að honum. Ef það er eitthvað sem lýsir afa þá er það að hann var orðsins maður og þá hins skrifaða orðs. Amma talaði reyndar oft fyrir þau bæði og afi bara skrifaði og skrifaði. Afi samdi margar tækifærisvísur og fengum við og síðar börnin okkar að njóta þeirra. Honum fannst mjög gaman að því þegar blöð- in birtu eftir hann vísur eða greinar og hafði gaman af allri vegtyllu. Þrátt fyrir að hafa ekki mikla trú á því að hann yrði langlífur var fróð- leiksþorstinn slíkur að hann hélt áfram að læra nýja hluti og að vera meðvitaður um umhverfi sitt fram á síðasta dag. Þegar helsta vinnutækið hans, ritvélin, varð úrelt þá lærði hann bara á tölvu og að nota rit- vinnsluforrit. Hann las blöðin af ótrú- legri athygli fram á síðustu ár og fylgdist þannig með mönnum og mál- efnum. Hann lagði sig fram um að reyna að skilja hvað verðbréfamark- aður væri og fjárfestingasjóður og fleiri slíkar nútímastærðir. Þegar sjónin dapraðist og hann hætti að geta lesið var stutt í andlátið og lýsir það því kannski best hvað skrif skiptu hann miklu máli. Honum var mjög annt um afkom- endur sína og vildi fylgjast grannt með þeim og sérstaklega hvernig lær- dómurinn gekk. Það var einnig sér- stakt hversu opinskátt hann gat rætt við okkur barnabörnin um lífið og til- veruna og góð ráð fylgdu ævinlega með. Hann var oft glettinn, hreinskil- inn en yfirvegaður. Við þökkum afa kærlega fyrir allar sögurnar, vísurnar og umhyggjuna. Minningin lifir áfram. Ásta og Anna Mjöll. Guðmundur Guðni Guðmundsson ✝ Rósa SigríðurAðalsteins- dóttir fæddist á Ökrum í Reykjadal 16. ágúst 1943. Hún lést 16. sept- ember síðastliðinn. Hún var dóttir hjónanna Að- alsteins Jónssonar bónda, f. 26.5. 1904, d. 25.10. 1986, og Aðal- bjargar Stefáns- dóttur, f. 8.2. 1906, d. 25.8. 1993. Rósa var yngst 5 systkina. Hin eru Stefán, f. 14.2. 1929, d. 7.11. 1930, Jón, f. 20.4. 1932, Stefán, f. 14.9. 1933, d. 1.11. 2004, og Þór, f. 20.1. 1941. Fjölskyldan fluttist að Kristnesi í Eyjafirði 1944 og þar ólust systkinin upp. Rósa lauk stúdentsprófi frá MA 1963 og meinatæknisnámi í Stokkhólmi 1965. Rósa giftist 17.6. 1966 Brynj- ólfi Ingvarssyni lækni. Þau eignuðust 5 syni, sem eru: 1) Ingvar Guðni, f. 17.12. 1966. Fyrrverandi eiginkona Guðrún Halla Jónsdóttir. Börn þeirra eru Bergþóra Kristín, f. 16.7. 1989, Brynjólfur, f. 25.3. 1992, og Sigfríður Aldís, f. 3.4. 1993. Guðrún Halla á dótturina Marí- önnu Ósk, f. 18.2. 1982. 2) Jón Aðalsteinn, f. 30.4. 1968, sam- býliskona Arnheiður Kristín Geirsdóttir, f. 24.11. 1969. Börn þeirra eru Valdís Ósk, f. 23.9. 1994, Elfar Geir, f. 31.10. 1999, og óskírð, f. 5.8. 2008. 3) Davíð, f. 15.1. 1970. 4) Brynjólfur, f. 17.9. 1971, sam- býliskona Sigríður Hulda Arnardóttir, f. 28.9. 1973. Þau eiga Hinrik Örn, f. 27.5. 2002. 5) Hjálmar Stefán, f. 20.7. 1981, sam- býliskona Jóna Hlíf Halldórsdóttir, f. 28.7. 1978. Rósa ólst upp við hefðbundin sveita- störf eins og venja var um miðja síð- ustu öld. Hún fór að vinna á sumrum á Kristnes- hæli 14 ára gömul. Eftir stúd- entspróf vann hún sumarlangt á skrifstofu í Þýskalandi. Annars urðu Ísland og Svíþjóð dvalar- lönd hennar. Rósa vann lengst- um meinatæknisstörf á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri auk heimilisstarfa og barnaupp- eldis. Hún sóttist ekki eftir veg- tyllum og henni var ekki gefið um opinbera sviðsljósið. Rósa var listfeng. Hún bjó yfir óvenjumiklum tónlistarhæfi- leikum sem hún tók í arf frá báðum foreldrum sínum. Hún hafði líka yndi af tónlist og gat sungið vel. Hljóðfæri léku í höndum hennar, oftast orgel. Hún var smekkvís á tónlistar- flutning. Einnig hafði hún ágæta teikni- og leikhæfileika. Rósa var heimakær og helgaði kraftana fyrst og fremst afkom- endum sínum. Útför Rósu fer fram frá Grundarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Úlfur og blómaálfur undu við það um stundu að eiga samleið og sögu í sól. – Eins og vorsins fjólur lifna úr dái og dafna og dansa, mun rósakransinn með angan frá grænum engjum umlykja kveðjusumar. Brynjólfur Ingvarsson. Lengi vel hélt ég að sú kyrrð sem ríkti yfir Rósu mágkonu minni, sú varfærni sem hún sýndi oft gagnvart heiminum, stafaði af því að hún var alin upp í sveit en ekki þorpi. Stundum hefur þó flogið að mér að gáfur hennar og samband við náttúruna hafi sagt henni að í þeim nýja frjálsa heimi sem blasti við okkar kynslóð þyrfti að fara að öllu með gát. Því oftar en ekki lýsti úr stóru brúnu augunum kímni yfir því hve viðsjáli heimurinn væri líka forvitnilegur, kostulegur og skemmtilegur. Vera kann þó að hún hafi bara stigið út úr einhverju ævintýri fremur en eyfirsku sveit- inni, þannig var að minnsta kosti allt útlit og yfirbragð þessarar fal- legu stúlku. Rósa lauk stúdentsprófi og há- skólaprófi, og starfaði lengst af sem meinatæknir við sjúkrahúsið á Akureyri. Hæfileikar hennar voru margir, hún lék á orgel, var hagorð og drátthög. Stærsta verkefnið hins vegar sem lífið fól henni var að koma drengjunum fimm, sem hún eignaðist með æskuástinni sinni honum Brynjólfi, til manns. Hún nærði þá líkt og forfeður og -mæður höfðu gert með ljóði, söng og spili, hlúði að þeim í veikindum og ræktaði með þeim táp, fjör og hlýju. Og alltaf kom það mér jafn mik- ið á óvart forðum daga í Reyk- húsum að sjá hana svona stillta, lágværa, mitt í fjöri karlmannanna sex; haldandi í einhverja ósýnilega strengi sem stýrðu flestu til far- sældar. Hún hlúði líka að stórfjölskyld- unni þótt oft væri vík milli vina; rödd hennar í símanum, tónlist sem barst með pósti færðu, eins og nálægð hennar ætíð, fínlegan yl inn í tilveru okkar; sá ylur verður aldrei frá okkur tekinn. María Kristjánsdóttir. Kveðja frá fyrrverandi og núverandi starfsfólki á rannsóknadeild FSA Gult í grasi, grænt í sjó. Rautt í lyngi, og ró. Kyrrð í heiði, hljótt í skóg. Þögn á firði, og þó – utanymur austanfar vaggar sumri, er var. (Bragi Sigurjónsson.) Það haustar að. Gróður býr sig til vetrarsvefns í okkar fagra firði. Það er lífsins gangur og við vitum að vorar á ný. En ein er sú rósin sem hefur endanlega fellt sín blöð. Hún var falleg og meðan hennar naut við varð lífið allt fegurra og ríkulegra. Endalokin höfðu verið fyrirsjá- anleg um tíma en samt kemur sorgin og slæst í för. Við erum fátækari. Við minnumst konu sem vann sín störf við hlið okkar af vand- virkni og metnaði. Henni var margt til lista lagt, skarpgreind, skemmtileg og á stundum sann- kallað ljón. Mýkt og þokki fylgdu henni, réttlætiskennd og heiðar- leiki voru hennar föstu förunautar. Við ætlum að muna hlátur henn- ar, muna eftir brúnu augunum, sem spegluðu svo margt. Muna samverustundir glaðar og góðar og þakka fyrir þær. Nú sefur allt svo vel og vært, sem var í dagsins stríði sært, Við látum þetta brotabrot úr ljóði Davíðs Stefánssonar fylgja. Það huggar. Ástvinum Rósu vottum við dýpstu samúð. Margrét Ásta Skúladóttir (Gréta.) Rósa Sigríður Aðalsteinsdóttir ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HELGU CHARLOTTE JÓNSSON. Sérstakar þakkir til starfsfólks á Hrafnistu í Reykjavík. Reynir Hólm Jónsson, Anna Stefánsdóttir, Sigrún Hólm Jónsdóttir, Benedikt Arason, Haukur Franz Jónsson, Auður Hafsteinsdóttir, Jón Ingimar Jónsson, Anna Finnbogadóttir, Stefán Jónsson, Teodora Marinósdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Bróðir okkar, ÞORSTEINN JÓNSSON, Denni, vélstjóri frá Ísafirði, Arnarhrauni 18, Hafnarfirði, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut föstudaginn 19. september, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 26. september kl. 11.00. Fyrir hönd systkina, Þorleifur Ófeigur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.