Morgunblaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. SEPTEMBER 2008 29
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
ÉG ÆTLA ÚT AÐ
NJÓTA NÁTTÚRUNNAR
ÞETTA
TÓK EKKI
LANGAN
TÍMA
ÉG ER EKKI
HRIFINN AF
NÁTTÚRUNNI
Í STÓRUM
SKÖMMTUM
FRÍÐA,
KOMDU OG
NÁÐU Í
KÖTTINN
ÞINN!
ÞÚ ÆTTIR ÞÓ AÐ
MINNSTA KOSTI AÐ
SKAMMAST ÞÍN!
ÞETTA ER HRÆÐILEGT... ÉG
GET EKKI GENGIÐ UM MEÐ
ÞENNAN KÖTT Í ALLAN DAG
KALLI ER NÚ MEIRA FÍFLIÐ!
HANN ÁTTI AÐ HALDA Á
HONUM! HANN PLATAÐI MIG!
FARÐU
AÐ SOFA!
ER Í LAGI AÐ
ÉG HORFI Á
NÆSTA ÞÁTT?
NEI!
ÞÚ
ÞARFT
AÐ
SOFA!
MÁ ÉG HORFA Í
KORTER Í VIÐBÓT?
EN TÍU MÍNÚTUR?
EN EF ÉG HORFI
BARA Í FIMM
MÍNÚTUR Í
VIÐBÓT?
FARÐU
AÐ SOFA!
ÉG ÆTLA BARA
AÐ HORFA Á
NOKKRAR
AUGLÝSINGAR Í
VIÐBÓT! ÞETTA ER
UPPÁHALDS AUG-
LÝSINGIN MÍN
ÞETTA VAR
ORÐIÐ FREKAR
AUMKUNARVERT
MÉR FINNST
SKEMMTILEGT AÐ
KASTA STEINUM OG
KLIFRA Í TRJÁM
HVAÐ
FINNST ÞÉR
SKEMMTILEGT
AÐ GERA?
MÉR
FINNST
SKEMMTILEGT
AÐ HUGSA OG
LESA BÆKUR
MAMMA
HAFÐI
RÉTT FYRIR
SÉR...
ANDSTÆÐUR
LAÐAST HVOR
AÐ ANNARI
VARAÐU ÞIG! HANN ER
ENGINN VENJULEGUR
BOXER... HANN ER
KICK BOXER
ÉG TALAÐI VIÐ KENNARANN
HANS KALLA OG HÚN SAGÐI AÐ
HANN ÞYRFTI BARA HVATNINGU
VIÐ ÞURFUM AÐ
GERA ÁÆTLUN. VIÐ
ÞURFUM AÐ FINNA
JAFNVÆGI Á MILLI
FRÍÐINDA OG REFSINGA.
VIÐ
SKULUM
EKKI
FLÆKJA
ÞETTA OF
MIKIÐ
EF ÞÚ KEMUR STÆRÐFRÆÐIEINK-
UNNINNI ÞINNI UPP Í „A“ FYRIR LOK
MÁNAÐARINS FÆRÐU 5.000 kr.
FRÁBÆRT!
LÁTUM OKKUR SJÁ... ÆTTI ÉG AÐ FARA INN EÐA
ÆTTI ÉG AÐ BÍÐA EFTIR KORDOK HÉRNA ÚTI?
EF ÞÚ
VILT GERA
ÞAÐ SEM
ER BEST Í
STÖÐUNNI
...
ÞÁ KEMUR ÞÚ
HONUM AÐ ÓVÖRUM
HVER Í HEIMINUM
ERT ÞÚ?
Velvakandi
GOTT er að vera búinn að hreinsa niðurföllin fyrir þessa miklu rigning-
arviku sem nú er spáð. Starfsmenn Reykavíkurborgar vinna hér við það.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Niðurföllin hreinsuð
Óbreyttir borgarar í stríðs-
átökum – ekki einfalt mál
NOKKUÐ hefur verið um fréttir af
falli óbreyttra borgara í stríðs-
átökum í Austurlöndum að und-
anförnu. Það er
ekkert nýtt að
óbreyttir borg-
arar séu drepnir í
stríðsátökum. Nú
er mikið rætt um
hryðjuverk í
Austurlöndum
nær. Sumum loft-
árásum í seinni
heimsstyrjöld-
inni, t.d. loftárás
Breta á Dresden,
mætti líkja við hryðjuverk. Liðs-
menn vestrænna herja og banda-
menn þeirra, sem eiga í átökum við
skæruliða og uppreisnarmenn í þess-
um löndum, og stuðningsmenn al-
Quaida, liggja undir ámæli um að
gera árásir á óbreytta borgara. Þetta
er ekki einfalt mál. Íslensk kona sem
býr í landi fyrir botni Miðjarðarhafs
lýsti t.d. aðferðum Hisbollah þegar
þeir skjóta eldflaugum á Ísrael. Hún
kallaði þá heigla. Aðferð þeirra er að
fara með skotpallana inn í íbúða-
hverfi, skjóta eldflauginni og hafa sig
síðan á brott. Ísraelar svara með því
að skjóta til baka á þann stað sem
árásareldflaugin kom frá. Óbreyttir
borgarar eru þannig gerðir að fórn-
arlömbum og andstæðingarnir, í
þessu tilfelli Ísraelar, eru sakaðir um
að gera árásir á óbreytta borgara.
Gott að nota slíkt í áróðursstríðinu.
Bókstafstrúarmenn islamista af-
saka þessa hegðun sína með því að
vísa í heilagt stríð gegn villu-
trúarmönnum og að fórnarlömbin
séu því píslarvottar sem eigi vísa
paradísardvöl fyrir bragðið. Sama
gildir um þá sem falla í sjálfsmorðs-
árásum, en flestir þeirra eru trú-
bræður árásarmannanna. Skæru-
liðar Hamas í Palestínu beita sömu
aðferðum. Al-Quaida-liðar og stuðn-
ingsmenn þeirra í Írak beita einnig
þessum aðferðum og nú eru talib-
anar í Afganistan farnir að fara að
dæmi þeirra. Þegar óbreyttir borg-
arar falla í stríðsátökum er auðvelt
að nota það í áróðursskyni og sökin
oftast talin vera þeirra sem eru að
svara fyrir árásir sem þessar. Þetta
er þekkt úr Víetnam-stríðinu þar
sem óbreyttir borgarar og jafnvel
börn voru notuð til þess að fremja
hermdarverk á hermönnum Banda-
ríkjamanna og samherja þeirra. Her-
menn Viet-Kong dulbúnir sem
bændur gerðu oft árásir á hermenn
úr launsátri. Börn voru jafnvel notuð
í þessu skyni. Drengur á reiðhjóli
hjólar framhjá hópi hermanna sem
sitja við götu fyrir utan veitingahús
og drengurinn varpar að þeim hand-
sprengju sem grandar þeim og hjól-
ar svo á brott.
Margt fleira í þessum dúr var al-
gengt í því stríði. Afleiðingin var
spenna og taugaveiklun hjá her-
mönnum bandamanna sem kusu að
taka enga áhættu, skjóta fyrst og
spyrja svo á eftir. Þetta eru atriði
sem fólk verður að hafa í huga þegar
deilt er á hermenn vesturveldanna
fyrir dráp á óbreyttum borgurum.
Slíkir atburðir eru einnig daglegt
brauð annars staðar í heiminum, t.d.
í Afríku, í Súdan, Kongó og Sómalíu
þótt vestrænir stríðsmenn komi þar
hvergi nærri. Þessu verður ekki
breytt fyrr en SÞ koma sér upp her-
sveitum sem hægt er að senda til
slíkra svæða til þess að skakka leik-
inn. En á meðan stórveldin hafa neit-
unarvald í öryggisráðinu er engin
von til þess að SÞ verði alvöru al-
þjóðasamtök. Stríð er alltaf óhugnað-
ur en það er of einfalt mál að kenna
bara öðrum aðilanum um allt sem
miður fer.
Hermann Þórðarson,
fyrrverandi flugumferðarstjóri.
Hermann
Þórðarson
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Blöðin kl. 9, vinnustofa
kl. 9-16.30, botsía kl. 10, tölvukennsla kl.
10.30, vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug kl.
10.50, myndlist kl. 13 og Grandabíó kvik-
myndaklúbbur og bókmenntaklúbbur, ís-
lenskar nútímabókmenntir kl. 13.
Árskógar 4 | Opin smíðastofa kl. 9,
botsía kl. 9.30, helgistund kl. 10.30, leik-
fimi kl. 11, handavinna kl. 12.30 og
myndlist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Fyrirlestur í umsjón
Evu Hreinsd. og Erlu Erlingsd. hjúkr-
unarfræðinga kl. 13.30. Hárgreiðsla,
böðun, leikfimi, almenn handavinna,
myndlist, dagblöð, fótaaðgerð, bókband.
Dalbraut 18-20 | Lýður Benediktsson
leikur á harmonikku.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl. 11.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
kl. 13. Námskeið í framsögn, upplestri og
grunnatriði leikrænnar tjáningar verður
á þriðjud. kl. 17.30 og hefst 14. okt. ef
næg þátttaka fæst. Farið verður í flutn-
ing á bundnu og óbundnu máli. Leiðb.
Bjarni Ingvarss. Skráning í s. 588-2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl.
9.05 og 9.55, rammavefnaður í handa-
vinnustofu, málm- og silfursmíði kl.
9.30, bókband kl. 13, bingó kl. 13.30 og
myndlistarhópur kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Handa-
vinna og ganga kl. 9, handavinna og
brids kl. 13, jóga kl. 18.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Myndlist/málun kl. 9 fullb., gönguhópur
kl. 11, karlaleikfimi kl. 13, handavinna kl.
13. Bingó á Garðaholti kl. 19.30 fyrir þá
sem eru skráðir. Rúta frá Garðabergi kl.
19.15 og Jónshúsi kl. 19.20.
Hraunbær 105 | Postulínsmálun, bað-
þjónusta kl. 9, botsía kl. 10, leikfimi kl.
11, félagsvist kl. 14.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir kl. 9-16,
botsía kl. 10, félagsvist kl. 13.30, aftur af
stað kl. 16.30 með Björg F. Böðun fyrir
hádegi, hársnyrting.
Íþróttafélagið Glóð | Línudans í Húna-
búð, Skeifunni 11, Rvk. kl. 16.30-18. Uppl.
í síma 564-1490, 554-2780 og 554-
5330.
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í
Grafarvogssundlaug á morgun kl. 9.30.
Korpúlfsstaðir, vinnustofur | Lista-
smiðja, gleriðnaður og tréskurður á
fimmtud. kl. 13 og föstud. kl. 9 og 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögu-
stund, spjall og æfingar kl. 9.45, botsía
karlaklúbbur kl. 10.30, handverks- og
bókastofa kl. 13, botsía kvennaklúbbur
kl. 13.30. Hárgreiðslustofa s. 552-2488,
fótaaðgerðastofa s. 552-7522.
Laugardalshópurinn Blik, eldri borg-
arar | Leikfimi fyrir eldri borgara í
Íþróttahúsi Ármanns-Þróttar kl. 11.
Norðurbrún 1 | Handavinna hjá Halldóru
9, leirnámskeið hjá Hafdísi kl. 9 og 13.
Hárgreiðslustofa s. 588-1288, fótaað-
gerðarstofa s. 568-3838. Sími 411-2760
Vesturgata 7 | Fótaaðgerðir, hárgreiðsla
og handavinna kl. 9, kóræfing og leikfimi
kl. 13, tölvukennsla kl. 14.30.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja og
postulínsmálun kl. 9, morgunstund kl.
9.30, botsía kl. 10, upplestur kl. 12.30,
handavinna frá kl. 13, spilað kl. 13, stó-
ladans kl. 13.15. Upp. í síma 411-9450.