Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 10

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 10
6 verka hvern einasta kjötbita eins, og eins og neytandi óskar, og selja kjötið síðan beint, eða svo beint sem frekast er hœgt, til neytanda. Enn er minnst af kjöti sláturhúsanna sent beint ti! neytanda, og að eins nokkur hluti þess, hjer frá sunn- lenzku bændunum, seldur beint til sameignarkaupfjelag- anna dönsku.* En þessi hluti, ásamt þeim sem Larsen í Esbjerg selur beint til dönsku bændanna, selst alltaf bezt, og er orsök þess, að 1908 fæst að meðaltali eyrir meira fyrir það kjöt, sem selt er í Danmörku, en hitt, sem selt er í Noregi eða annarstaðar. Gæðum kjötsins er líka enn áfátt, og svo er mikið af kjöti útflutt, sem er illa verkað og spillir fyrir hinu. Pað eru enn bændur til, sem vilja heldur láta kaupmennina fá sitt kjöt, en sláturfjelögin, og með því gera sjálfum sjer og öðrum skaða. Pað er því nokkuð til takmarks- ins enn. En að því verður að vinna. Fleiri og fleiri verða að safna sjer undir merki samvinnunnar og verka kjöt sitt eins, og það i fjelagi. Pá kemur að því, að það verður nóg að segja: að í þessari tunnu sje islenzkt kjöt, til þess að allir þori að kaupa hana, því þá verður reynslan búin að sýna, að íslenzkt kjöt er alltaf gott. En hvenær verða allir bændur komnir með, svo hægt verði að segja þetta? Ef við ekki náum takmarkinu, þá ná eptirkomendur vorir því, og við skulum Ijetta þeim veginn, við skulum undirbúa akurinn. 2. Ulliq. Pó verð útfluttrar ullar árlega' nemi á aðra milíón króna, þá er þó sáralítið gert til þess að bæta markað * Hjer er dálítið blandað málum. Sunnlendingar hafa mestmegnis selt Larsen og fleiri umboðsmönnum, en norðlenzku fjelögin, einkum Kaupfjelag Eingeyinga, liófu fyrst bein viðskipti við dönsku kaupfjelögin, sem fara vaxandi. S. /.

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.