Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Qupperneq 78
74
fræðslu og rjettan skilning á efninu muni þeim birta
fyrir augum; að þá muni lífið fá í augum þeirra bjartari
og hlýrri blæ en það annars hefir, þegar það er skoðað
gegnum hin pólitísku rjettarfars gleraugu.
Pá munu þeir og finna verkefni, sem þeir geta unnið
að af heilum og hlýjum huga, með von og trú á fram-
tíðina; verkefni, sem gefur þeim meira og sannara mann-
gildi en hinn pólitíski rjettarrekstur. Hver sá, sem til-
einkar sjer þessa hugsjón, með skilningi á markmiði
hennar og afleiðingum, hlýtur að líta öðrum augum en
áður á nær því öll hlutföll mannlífsins. Hann tekur,
ef svo mætti að orði kveða, nýja trú, trú á hin betri
öfl í lífi og sálum mannanna; og þessi trú hlýtur að
bera ávöxt í verkum hans, að hvaða málefnum sem
hann vinnur, mýkja lund hans, en eyða tortryggni og
þeirri umsát, sem hin eldri lífsskoðun eggjaði til.
Sá, sem ekki hefir tekið þessa trú, ekki tileinkað sjer
samúðarhugsjónina í öllum samböndum og hlutföllum
lífsins, hann er naumast hætur til að vinna að sam-
vinnumálum svo, að rjettur og sannur árangur verði af
starfi hans. Hann getur þá ekki heldur unnið að þeim
málum með þeirri von og tru, og þeirri víðsýni, sem er
skilyrði fyrir góðum árangri allra nytsemdarverka, hvort
sem er í minni eða stærri verkahring; hann er jafn ófær
til þess að vinna sannarlegt gagn, eða nokkuð það, er
þoki að hinu virkilega marki, hvort heldur er í litlu
kaupfjelagi, rjómabúi eða sambandsmálum þjóðanna.
Pess vegna er svo afar-nauðsynlegt að afla sjer góðr-
ar fræðslu og fulls skilnings á þessum stefnum yfir
höfuð að tala, og það getum vjer einungis með því,
að kynna oss rækilega hin mörgu og merku rit, sem
nú eru árlega gefin út um þessi efni, nær því á
öllum tungum, hvort sem höfundar þeirra kalla sig
»sócialista«, »anarkista«, »Georgista«, »cooperatista« eða
annað.