Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 11

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Side 11
7 hennar. Landið hefir kostað menn til Spánar til að kynna sjer verkun á saltfiski og mann til Ameríku til að kynna sjer markaðshorfur síldar þar, en til að kynna sjer markað og verkun uilar hefir lítið verið gert. Petta er því undarlegra, sem markaður hennar er slæmur, og, að því er mjer virðist, alveg óviðunandi. Verðið, sem við fáum fyrir hana, er sannkallað smánar- verð, enda er varla annars að vænta, nú sem stendur. Kemur þetta af því tvennu: að ullin er illa og misjafn- lega verkuð, og svo af hinu, að hún fer ótal krókaleið- ir þangað til hún að lokum kemst til Ameríku, en þar er hún mest notuð. Mestur hluti ullarinnar er fluttur til Danmerkur, en þangað hefir hún ekkert að gera, þar er hún sama sem ekkert notuð. Hún er send þaðan aptur til Englands, Pýzkalands og Ameríku. Það er að eins farmgjald, upp- skipun, húsaleiga og fl. þessháttar, sem orðið hefir að borga af henni í Danmörku, og svo hafa að sjálfsögðu kaupmennirnir lagt nokkuð á hana. Eptir fleiri krókaleið- ir lendir hún mestöll í Ameríku, og aldrei mun það vera færri en fjórar millihendur milli framleiðanda og neyt- anda. Og sannarlega er brýn þörf á að fækka þeim og minnka þann flutningskostnað, sem nú leggst á hana á okkar kostnað. En hjer er því eins varið og með kjötverzlunina: hverjum einstökum bónda er ómögulegt að verzla beint við notendur ullarinnar, en með sammvinnu geta menn það. Með samtökum hefir verið velt þyngra hlassi en ullarmilliliðunum. En til þess þyrfti öflugt fjelag, sem Ijeti þvo og að- greina alla ullina á sama hátt og hefði skip sem flytti þana beint til Ameríku, því þar er beztur markaður fyr- ir hana. Ætti það þá að koma aptur með þær vörur handa kaupfjelögunum, sem hægt er að fá ódýrastar þar, svo sem hveiti, maís o. fl. En áður en hægt er að koma þessu í framkvæmd, þarf að rannsaka nákvæm-

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.