Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 58

Tímarit  kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Síða 58
54 III. Gamlir verzlunarreikningar. Verzlunarsaga lands vors getur, eigi síður en önnur söguþekking, falið í sjer ýmiskonar nytsaman fróðleik og bendingar fyrir nútímann. þar að auki stuðlar hún til þess, áð uppfylla þá löngun, sem flestum mönnum er innrætt, að kynnast liðna tímanum og fá áreiðanlegar sagnir um hann, alveg án tillits til þeirrar nytsemdar, sem þeim fróðleik getur verið samferða. Einkanlega hefir mjer fundizt það, á þeim mönnum, sem eg hefi kynnzt, að þá fýsa að vita sem mest um fornöld vora, fram að lokum Sturlungaaldar, og svo aptur um síðasta tímabilið, svo sem frá því um 1780 til vorra daga. En um hið langa og myrka tímabil, sem þar liggur á milli, hafa menn minna hirt, nema þá það sem stendur í sambandi við einhverja nafnkunna þjóð- skörunga frá þeim dögum, svo sem biskupana Jón Ara- son og Jón Vídalín, Hallgrím Pjetursson og fl. Petta er mjög eðlilegt. Til þess að sagnafróðleikur geti orðið að nautn og haft varanlega þýðingu, þarf hann að standa í sambandi við einhverjar lifandi myndir, sem festast í huganum, vera eins og umgjörð um þær; annars er hætt við að allt verði skuggamyndir og allur fróðleikur- inn svipaður þulu, sem menn botna lítið í, nema ein- stöku sjerfræðingar, sem geta látið Ijós þekkingar sinnar breiða birtu yfir langt tímabil. En hjá þeim kemur og hið sama fram: þeir raða hinu smáa í kring um sínar lifandi myndir. Munurinn eiginlega sá, að myndasafn þeirra er fjölskrúðugra. Alþýðumenn vorir hafa svo náin kynni af fornöldinni, vegna gömlu bókfræðanna, að frá þeim tíma eiga þeir gnægð af lifandi myndum. Svipuðu máli er að gegna um tímabilið eptir 1780. Vjer eigum aptur fjölda lifandi mynda eptir þann tíma, sökum náinna ættatengsla og margvíslegra sagna, sem vjer höfum heyrt og enn eru

x

Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga
https://timarit.is/publication/329

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.