Tímarit kaupfjelaga og samvinnufjelaga - 01.01.1911, Blaðsíða 65
61
Innleggsvörur eru hinar sömu: Tóig 67 pd. (0.50),
Sokkar 107 pör (0.66), Ull, hvít, 86 pd. (0.67), Kjöt 208
pd. (tæpl. 0.10), Mör, Gærur og Lambaskinn. Skuldin
minnkar nokkuð.
í svipuðu horfi er verzlunin nokkur ár. Arið 1824 er
rúgtunnan 16 kr. Pá eru sokkar enn helzta varan, 40 — 50
aura parið; ullarpundið er um 40 aura, tólg á 30 aura.
Pá er fluttur brennisteinn, líklega frá Reykjahlíð, um 1170
pd. Borgunin fyrir hann var alls kr. 13.50. Retta þætti
víst ekki góð verzlun nú á dögum, en þessu sættu
samt margir bænd^ur á þeim árum.
Árið 1828 hefir M. Á. 9 manns í heimili. Rá er hann
nær því skuldlaus í ársbyrjun (1.70). Skuld í árslok um
9 kr. Ársúttektin er um 150 kr. Trjáviður og útskriftir
eru 24 kr. Vanaleg heimilisúttekt er þá 14 kr. á mann.
Kornmatarúttektin er: 3‘/s tunna rúgur (tunnan á 14 kr.),
>/2 tunna baunir og V2 tunna bankabygg. Vörutegundum
fjölgar lítið; tóbak er tekið um 8 pd., 11 pottar brenni-
vín, 1 pd. kaffi og 3 pd. sykur. Innleggið var það ár:
74V2 pd. tólg (0.45^/2), 81 pd. ull (0.34Ú2), 95 pör sokk-
ar (0.43), 1568 pd. brennisteinn (tæpl. U/3 eyrir pundið);
ennfremur nokkrar innskriftir.
Árið 1834 hefir Magnús 12 heimilismenn. Reikningur-
inn það ár:
1834. Úttekt.
4 tunnur Rúgur (12.00)............................ 48.00
1 tunna Bankabygg..................................18.00
V2 tunna Baunir.................................... 7.00
2 kútar Salt....................................... 1.00
3 kútar Kol........................................ 1.00
18 pd. Sykur ......................................14.78
6 pd. Kaffi........................................ 5.00
22 pottar Brennivín................................11.12
Flyt . . . 105.90