Morgunblaðið - 12.10.2008, Side 2
2 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir,
annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
ÖSSUR Skarphéðinsson, starfandi
utanríkisráðherra, var mjög ánægð-
ur með útkomuna af fundi með hol-
lensku sendinefndinni sem kom til
landsins á föstudag vegna viðræðna
um íslenska innlánsreikninga í Hol-
landi. „Utanríkisráðuneytið hefur
leitt þessar viðræður og á þessari
stundu er hægt að segja að þær
hafi gengið ákaflega vel,“ sagði
Össur um hádegið í gær. „Ég tel að
í sjónmáli sé lausn sem byggist á
hugmynd sem var þróuð hér síð-
ustu daga af nokkrum ráðherrum,
sérfræðingum og ráðgjöfum sem
kallaðir voru til aðstoðar,“ sagði
Össur og sagði þá lausn verða
kynnta innan tíðar.
„Ég er mjög vongóður um að sú
leið sem við höfum ákveðið í þessu
máli geti leitt til lausnar á útistand-
andi vanda sem við eigum í vegna
innlánsreikninga hjá ýmsum þjóð-
um.“
Mjög ákveðnir en sanngjarnir
Össur sagði hollensku sendi-
nefndina hafa verið mjög ákveðna á
fundinum og þekkt málið til þraut-
ar. „En þeir voru líka sanngjarnir
að því leyti til að þeir vildu aðstoða
við að finna lausn og buðu upp á
aðrir seðlabankar og aðrar þjóðir
renna í þá slóð, þannig að hér eiga
að vera mjög tryggir möguleikar á
að ná aftur upp gjaldeyrismarkaði á
tiltölulega skömmum tíma, treysta
gengið og fara í umtalsverða vaxta-
lækkun í framhaldinu,“ sagði Össur.
Að mati hans yrði einnig mjög at-
hyglisvert ef Íslendingar yrðu
fyrsta ríkið sem færi inn í aðstoð-
aráætlun Japana um lán úr 1.000
milljarða dollara gjaldeyrisvara-
sjóði.
Fundað var einnig með bresku
sendinefndinni vegna innlánsreikn-
inga í Bretlandi en fundir stóðu enn
yfir þegar Morgunblaðið fór í
prentun.
skapandi lausnir,“ sagði Össur.
Hann sagði að Björgvin G. Sig-
urðsson viðskiptaráðherra mundi
um helgina eiga frumkvæði að því
að tala símleiðis við 4-5 viðskipta-
ráðherra annarra landa vegna ís-
lenskra innlánsreikninga þar í lönd-
um. „Ég vona því að bak helgi verði
búið að leiða í jörð obbann af þeim
erfiðu diplómatísku vandamálum
sem hafa tengst þessum innláns-
reikningum.“
Össur lýsti þá þeirri skoðun sinni
að Íslendingar ættu að sækja um
stuðning IMF og ólíklegt væri á
þessu stigi að IMF setti of ströng
skilyrði fyrir stuðningi. „Niðurstaða
mín er sú að ef við óskum eftir að-
stoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins muni
Mjög vongóður um lausnir
Össur Skarphéðinsson bjartsýnn vegna
Hollandsdeilu og fundað er með Bretum
Morgunblaðið/Kristinn
Deilur Breska sendinefndin er skipuð embættismönnum breska fjármálaráðuneytisins og Englandsbanka og fleiri.
Morgunblaðið/Kristinn
Stíft Breska sendinefndin mætti til fundar í utanríkisráðuneytinu í gær-
morgun og stíf seta var framundan til að leysa deilur ríkjanna tveggja.
Í HNOTSKURN
»Milliríkjadeila Breta og Ís-lendinga hófst á mjög
snarpan hátt en forsætisráð-
herrar ríkjanna vonast eftir
lausn.
»Breskir fjölmiðlar segja aðhætta sé á að góðgerðar-
samtök, sjúkrahús, háskólar
og sveitarfélög tapi miklu fé
vegna íslenskra reikninga.
HLAUP er hafið í Skaftá samkvæmt
upplýsingum frá Vatnamælingum í
gær og gert var ráð fyrir því að
hlaupið yrði í stærra lagi, að sögn Al-
mannavarna. Hætta var á að vegir
lokuðust.
Hratt óx í ánni við Sveinstind í
gærmorgun og gert var ráð fyrir
vatnavöxtum í byggð síðar um dag-
inn eða í gærkvöldi. Fólki var ráðlagt
að vera ekki nálægt upptökum
Skaftár vegna brennisteinsmengun-
ar. Upptök Skaftár eru úr Skaftár-
jökli í Vatnajökli, austan við
Langasjó.
Ef verulega vex í ánni er hætta á
að vatn flæði yfir veginn við Hóla-
skjól rétt við Eldgjá á Nyrðra-
Fjallabaki og ef til vill víðar, að sögn
Almannavarna. Náið var fylgst með
framgangi hlaupsins og sérfræðing-
ar Vatnamælinga fóru strax í flug yf-
ir upptök Skaftár.
„Það vex mjög hratt í ánni,“ sagði
Víðir Reynisson, deildarstjóri al-
mannavarnadeildar ríkislögreglu-
stjóra. Gert var ráð fyrir því að
vatnavextir hæfust í grennd við
Kirkjubæjarklaustur í gærkvöldi og
að hlaupið næði hámarki í dag.
Morgunblaðið/RAX
Skaftá Hratt óx í ánni eftir að hlaupið hófst, samkvæmt Vatnamælingum.
Varað við brenni-
steinsmengun
Í HNOTSKURN
» Upptök Skaftár eru íSkaftárjökli og undir hon-
um er jarðhitasvæði þar sem
vatn safnast í tvo katla.
» Að meðaltali hleypur úrkötlunum á tveggja ára
fresti.
» Síðasta hlaup hófst í ágústog kom úr vestari katl-
inum. Eystri ketillinn, sem er
stærri, hefur verið að fyllast
að undanförnu og því var búist
við stærra flóði.
» Í hlaupinu í ágúst mældistrennslið í ánni 364 rúm-
metrar á sekúndu. Meðal-
rennslið er 150 rúmmetrar.
» Í stærstu hlaupum geturrennslið farið í um 1.800
rúmmetra á sekúndu, sam-
kvæmt upplýsingum frá
Vatnamælingum.
Eftir Guðmund Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráðherra sagði á flokksráðs-
fundi Sjálfstæðisflokksins í Valhöll í gær að með aðgerð-
unum, sem stjórnvöld gripu til í byrjun vikunnar, hefði
skapast grundvöllur til að snúa vörn í sókn. En þótt
mesta hættan væri þannig liðin hjá hefðu Íslendingar
ekki náð út úr storminum og mundu áfram sigla úfinn sjó
í einhvern tíma.
„Það er sameiginlegt verkefni stjórnvalda, Seðlabank-
ans, Fjármálaeftirlitsins, aðila vinnumarkaðarins, bank-
anna og fleiri að koma í veg fyrir að hjól atvinnulífsins
stöðvist. Að því er nú unnið hörðum höndum og ég er
bjartsýnn á að sú vinna skili góðum árangri,“ sagði Geir.
Hann sagði að þótt yfirbyggingin hefði laskast væru
undirstöður þjóðfélagsins traustar og á þeim yrði byggð
ný sókn á öllum sviðum. Afstaða margra til nýtingar
landsins gæða mundi breytast og menn átta sig á því að
engin þjóð hefði efni á því að nýta ekki auðlindir sínar
innan skynsamlegra marka. Þá væru bundnar vonir við
að þorskstofninn næði sér á strik og ný sókn gæti hafist í
íslenskum sjávarútvegi.
„Nú er það íslenska bjartsýnin og æðruleysið sem gild-
ir. Við erum þjóð sem gefst ekki upp þótt móti blási og
við munum ná vopnum okkar á nýjan leik,“ sagði Geir.
Frjáls og beislaður markaður
Geir sagði að það þyrfti ekki að koma á óvart að nú
ríkti þórðargleði hjá þeim sem væru andsnúnir markaðs-
skipulagi og frelsi einstaklingsins en sjálfstæðismenn
yrðu að standa vörð um grundvallarhugsjónir sínar.
„Villtur og óbeislaður markaður hefur ekkert með
grundvallarhugsjónir Sjálfstæðisflokksins að gera, eins
og sumir vilja vera láta. Það er mikill munur á viljugum
gæðingi og óbeislaðri ótemju. Við höfum alltaf lagt
áherslu á að frelsinu fylgi ábyrgð. Markaðir þenjast út
og dragast saman, við göngum í gegnum hagsveiflur. En
hagsveiflur hins frjálsa markaðar eru alltaf betri kostur
en dauðalínur hins ófrjálsa.
Það er að mörgu leyti rétt, sem formaður Vinstri-
hreyfingarinnar – græns framboðs hefur sagt, að efna-
hagslægðin nú hefði aldrei orðið ef við hefðum farið eftir
hans ráðum. Við hefðum þá aldrei komist á loft til að
byrja með. Í því endurreisnarstarfi sem nú bíður okkar
Íslendinga skiptir sköpum að við missum ekki trúna á
einkaframtakið og kosti hins frjálsa og beislaða mark-
aðar,“ sagði Geir H. Haarde.
Morgunblaðið/Kristinn
Öldur Geir Haarde segir Íslendinga ekki hafa náð út úr storminum og munu áfram sigla úfinn sjó í einhvern tíma.
Sjórinn enn úfinn þótt
mesta hættan sé liðin hjá