Morgunblaðið - 12.10.2008, Page 8
8 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Krónan er jafn brellin og síldin forðum.
VEÐUR
Ekki er hægt að segja að samúðmeð Íslendingum vegna hremm-
inga þeirra sé yfirgnæfandi sjónar-
mið í brezkum fjölmiðlum þessa dag-
ana. Þó eru allmargir í hópi hinna
skoðanamyndandi stétta, sem hafa
tekið upp hanzkann fyrir Ísland.
Tom Braith-waite, blaða-
maður Financial
Times, skrifar
þannig á bloggið
sitt að með árás-
inni á Ísland hafi
Gordon Brown
fengið sína „Falk-
landseyjastund“.
Argentínumenn
hafi þó verið
verðugur andstæðingur. „Ég horfði
á Íslending gráta í Reykjavík á með-
an Brown spúði pólitísku eitri sínu,“
segir Braithwaite.
Daniel Hannan, þingmaður Íhalds-flokksins, bloggar líka um Ís-
land á vef The Daily Telegraph og
segir Gordon Brown að skammast
sín. Hann fjallar um peningana, sem
brezk sveitarfélög töpuðu á
hávaxtareikningum íslenzkra banka
og spyr: „Í stað þess að ráðast á
bandamann okkar í NATO, af hverju
krefjumst við ekki svara frá fjár-
málaráðgjöfunum, sem á kostnað
skattgreiðenda ráðlögðu sveitar-
félögunum að setja peninga skjól-
stæðinga sinna inn á þessa reikn-
inga? Ættu þeir ekki að bera
ábyrgð?“
Blaðamaðurinn Ben H. Murrayskrifar í The Guardian og segir
að líkast til sé hver einasti Íslend-
ingur reiður Gordon Brown. Ráð-
leggur honum að skella sér ekki á
Iceland Airwaves ef hann ætli sér að
slaka á.
Ætli hinn pólitíski ávinningurGordons Brown af innistæðu-
lausum yfirlýsingum um Ísland
verði langvinnur? Sumir Bretar
virðast vera búnir að sjá tómið á bak
við stóru orðin.
STAKSTEINAR
Gordon Brown
Tómið á bak við orðin
SIGMUND
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
!
"
#$ $#
:
3'45;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@).?
%!
&%!
%!
%!
&% &%!
&%
*$BCD
! "# !
! !
$ % &
'(# *!
$$
B *!
'(
)*
*( *
+
<2
<! <2
<! <2
' ) $#
*,
$-*.#$/
CD !-
#! "#
!) # $
*
6
2
+ ! % !# ! ! #
! ,"
!- ,
. $
/
B
*
!
*"
!" ! ! 1. ! # $ &
01##**22 $#**3 *,
$*4 %*
$ *
%*% Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
BLÓÐBANKINN er eini banki
landsins sem aldrei er lokað. Mikið
útstreymi hefur verið í bankanum í
þessari viku og hann þarf á mörgum
viðskiptavinum að halda í næstu
viku, að sögn Sigríðar Lárusdóttur
deildarstjóra.
Að sögn Sigríðar var frekar rólegt
hjá þeim fyrri hluta vikunnar en
margir svöruðu kallinu á fimmtu- og
föstudag. Blóðbankinn þarf að fá 70-
80 blóðgjafa að jafnaði dag hvern til
að geta annað eftirspurn eftir blóði.
Nú vantar blóðgjafa í öllum flokk-
um.
Október er allajafna annasamur
hjá Blóðbankanum að sögn Sigríðar.
„Á þessum tíma eru aðgerðir komn-
ar í fullan gang á spítölunum og því
mikil þörf fyrir blóð,“ segir Sigríður.
Hún hvetur Íslendinga til að sinna
kallinu. „Í þessu eins og öðru þurf-
um við að halda þétt utan um hvert
annað á erfiðum tímum.“ sisi@mbl.is
Vantar Þörf er á blóði í Blóðbank-
anum en 70-80 gjafa þarf á dag.
Mikil þörf
á blóði
Eftir Albert Kemp
Fáskrúðsfjörður | Við
messu í Kolfreyjustaðar-
kirkju á Fáskrúðsfirði
var þess minnst að 130 ár
eru frá byggingu kirkj-
unnar. Messuhald önn-
uðust séra Jón Aðalsteinn
Baldvinsson Hólabiskup
og sóknarpresturinn séra
Þórey Guðmundsdóttir.
Kirkjukór
Fáskrúðsfjarðarkirkju
söng við undirleik Kára
Þormar.
Að messu lokinni var gengið frá kirkju að nýju þjónustuhúsi sem byggt
hefur verið á lóð kirkjunnar. Húsið hlaut nafnið Pálshús í höfuðið á ljóð-
skaldinu Páli Ólafsyni, en hann ólst upp á Kolfreyjustað frá fimm ára
aldri. Faðir hans, Ólafur Indriðason, var þar sóknarprestur. Við athöfn-
ina í Pálshúsi söng kórinn lög við ljóð Páls við undirleik Kára. Ingigerður
Jónsdóttir las minningarbrot um Pál og nokkar lausavísur hans. Að því
loknu afhenti hún formanni sóknarnefndar, Baldri Rafnssyni, myndir af
þeim fjórum sóknarprestum sem sátu Kolfreyjustað á síðustu öld.
Húsið er 50 fermetrar að grunnfleti, timbur og steinsteypa, á þaki er
það klætt með torfi. Hallgrímur Axelsson, verkfræðingur úr Kópavogi,
kom með sitt fólk og lagði þakið og gaf sína vinnu. Bygging hússins stóð í
rúm tvö ár, en tekin var sú ákvörðun að taka ekki lán til verksins. Styrkir
komu frá kirkjumálasjóði og kirkjugarðasjóði og frá því sem söfnuðurinn
lagði fram. Áætlun gerði ráð fyrir að húsið myndi kosta um 11 miljónir
en gera má ráð fyrir verðlagshækkunum. Húsið rúmar um 36 manns í
sætum og hentar því vel kirkjunni. Í því er hreinlætisaðstaða sem ekki
var til staðar áður. Aðgengi fyrir hjólastóla er komið fyrir við kirkjuna
og húsið.
Nýtt þjónustuhús Boðið til veislu í Pálshúsi.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Tóku ekki lán fyrir
framkvæmdum
Kolfreyjustaðakirkja á Fáskrúðsfirði 130 ára
HALLI er á Ábyrgðasjóði launa miðað við
síðustu áramót og hefur hann þurft auka-
fjárveitingu upp á 200 milljónir til að klára
þetta ár. Áður en bankarnir féllu gerði sjóð-
urinn ráð fyrir 60% aukningu útgjalda frá
árinu 2007. Ekki hefur verið haft samband
við sjóðinn vegna mögulegrar aðkomu hans
að greiðslu launa starfsfólks Landsbanka Ís-
lands.
„Við höfum ekki fengið að heyra neitt
skýrt ennþá,“ segir Björgvin Steingrímsson,
deildarstjóri hjá Ábyrgðasjóði launa. Skila-
nefnd bankans væri ekki búin að hafa sam-
band og því lægi ekki fyrir hversu mikið yrði
greitt úr bankanum og að hve miklu leyti rík-
ið ætti að koma að málinu. Hann bjóst við því
að þetta myndi skýrast fljótlega.
Mjög stór biti fyrir sjóðinn
Björgvin sagði halla vera á sjóðnum og ef
auka ætti útgjöld væri spurning hvort hækka
þyrfti ábyrgðagjald.
,,Það er mjög stór biti fyrir sjóðinn ef við
þurfum að greiða þessum mikla fjölda og það
þyrfti hiklaust að koma til talsverð aukafjár-
veiting. Hann sagðist ekki geta sagt til um á
þessari stundu hversu stór upphæð þetta þyrfti
að vera.
Helsu verkefni sjóðsins eru launakröfur
vegna þrotabúa og lífeyrisiðgjöld í vanskilum.
Halli á Ábyrgðasjóði launa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Aukafé Ábyrgðasjóðurinn hefur þurft 200 milljónir
aukalega til þess að klára árið í ár.