Morgunblaðið - 12.10.2008, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 21
verða leikari
Morgunblaðið/RAX
Karl Sigurbjörnsson fæddist í
Reykjavík 5. febrúar 1947, eitt átta
barna hjónanna Magneu Þorkels-
dóttur og Sigurbjörns Einarssonar
biskups. Hann lauk stúdentsprófi frá
MR árið 1967 og guðfræðiprófi frá
HÍ sex árum síðar. Karl var sókn-
arprestur í Vestmannaeyjum frá
1973-74 og í Hallgrímskirkjupresta-
kalli frá 1975-97. Hann hefur gegnt
embætti biskups Íslands frá árinu
1998. Eiginkona Karls er Kristín
Þórdís Guðjónsdóttir bankaritari og
eiga þau þrjú börn, Ingu Rut, Rann-
veigu Evu og Guðjón Davíð.
Guðjón Davíð Karlsson fæddist í
Reykjavík 8. apríl 1980. Hann lauk
stúdentsprófi frá Kvennaskólanum
árið 2000 og prófi frá leiklistardeild
Listaháskóla Íslands árið 2005. Þá
um haustið réðst hann til Leikfélags
Akureyrar og lék þar í ýmsum vin-
sælum sýningum uns hann fékk fast-
ráðningu hjá Leikfélagi Reykjavíkur
nú í haust. Unnusta Guðjóns er Ingi-
björg Ýr Óskarsdóttir og eignuðust
þau sitt fyrsta barn fyrir þremur
vikum, son sem nefndur hefur verið
Óskar Sigurbjörn.
Fermingin Feðgarnir á fermingardegi Góa í Hallgrímskirkju vorið 1994.
Prestur Gói hefur leikið hlutverk
frá blautu barnsbeini. Hér er hann
fjögurra ára að gefa systur sína í
heilagt hjónaband.
þetta út eins og gengur þegar börn
eldast. Ég er samt oft minntur á það
að pabbi er prestur og nú biskup.
Ég hef þurft að gera ýmislegt í mínu
starfi og oft hefur verið spurt: Er
eðlilegt að biskupssonurinn geri
þetta og hitt? Þannig birtist einu
sinni fyrirsögn í blaði: „Bisk-
upssonur á brókinni.“ Þetta pirraði
mig í fyrstu en nú þykir mér það
bara hallærislegt og læt það ekki
trufla mig. Þegar upp er staðið er
mikilvægast að vera samkvæmur
sjálfum sér.
Gott Gói, láttu
þá finna fyrir því!
Ég nýt líka fulls stuðnings heima
fyrir og foreldrum mínum þykir
ekkert sem ég hef gert á sviði óvið-
eigandi. Sama máli gegnir um allt
sem ég hef tekið mér fyrir hendur
gegnum tíðina. Ég lærði á píanó og
var í kór og aldrei létu mamma og
pabbi sig vanta þegar ég kom fram.
Ég var líka í handbolta og þar
fylgdu þau mér hvert fótmál. Ég var
alltaf frekar lítið barn og ég gleymi
því aldrei þegar mér var vísað af
velli í einum leiknum fyrir að taka
heldur hraustlega á strák sem var
líklega helmingi stærri. Þá gall í
mömmu á áhorfendabekkjunum:
„Gott Gói, láttu þá finna fyrir því!“
Fólk starði á hana. Mamma er frek-
ar hvatvís kona.
Í dag mæta foreldrar mínir á allar
leiksýningar sem ég tek þátt í og ég
met það ofboðslega mikils enda eru
þau fyrirmyndir mínar í lífinu.
Pabbi hefur frá því ég man eftir
mér verið áberandi í þjóðlífinu en ég
hef aldrei velt því sérstaklega fyrir
mér að hann sé opinber persóna. Í
mínum huga er hann bara pabbi. Ég
er stundum spurður: „Hvað segir
biskupinn?“ Þá svara ég því jafnan
til að ég viti það ekki en pabbi sé
bara hress.
Það eina sem pirrar mig í sam-
bandi við starf pabba er óréttlæti í
hans garð. Hann hefur stundum
fengið að kenna á því í biskupstíð
sinni. Menn geta verið fljótir að
snúa út úr fyrir honum og mála
hann svartan. Þeir gera sér hins
vegar ekki alltaf grein fyrir því að
þetta embætti er þess eðlis að það
er ekki bara hægt að taka skyndi-
ákvarðanir. Það er líka örugglega
ástæðan fyrir því að kristnin hefur
lifað í allar þessar aldir. Kirkjan er
ekki tískubóla og á ekki að vera það.
Sjálfur tekur pabbi þessu umtali
af miklu æðruleysi og lætur það
ekki slá sig út af laginu. Enda veit
hann fyrir hvað hann stendur og er
sjálfum sér samkvæmur. Hann er
laus við allt sem heitir tilgerð og
hroki. Það er aðdáunarvert að fylgj-
ast með honum sinna sínum skyld-
um. Einnig er gaman að sjá hvað er-
lendir biskupar, og yfirmenn hinna
ýmsu kirkjudeilda, bera mikla virð-
ingu fyrir honum. Ég er ofboðslega
stoltur af föður mínum.“ orri@mbl.is
semi
á traustum grunni
Fjárfesting...
FAGMENNSKA
METNAUR
REYNSLA
www.bygg.is
Jónshús
2ja-4ra herbergja íbúðir fyrir fólk 60
ára og eldri í Sjálandshverfi í Garðabæ.
Bílageymsla fylgir flestum íbúðum.
Mjög góð staðsetning, fallegt umhverfi
og góðar gönguleiðir.
OPI HÚS
í dag, frá kl.
15-16
Fullbúin sýn
ingaríbúð m
eð
innréttingu
m frá Brúná
s og
gólfefnum
frá Agli Árn
asyni.
Sími 594 5000
STÓRHÖFÐI 27
akkurat.is
Sími 562 4250
www.fjarfesting.is
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA EHF
BORGARTÚNI 31
Viggó: 824 5066
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn