Morgunblaðið - 12.10.2008, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 12.10.2008, Qupperneq 24
24 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ H vernig myndi Árni lýsa þessari nýju bók sinni? „Það er æði fjölbreytt flóra sem ég fæst við í þessari bók og ég býst við því að bókfræðingum veitist ekki auðvelt að kveða upp úr um það hvar hún á heima á bókasafni. Hún er að hluta til hugsuð sem skáldsaga, þar sem aðalpersónurnar eru tveir frændur, sem hafa átt margt saman að sælda; annar er trúmaður sem stendur við dauðans dyr, en hinn er efasemda- maður um alla hluti. Sá trúhneigði hefur farið allan hringinn; fyrst haldið alllengi tryggð við Krist bernsku sinnar, síðan verið kommúnisti og þá Ma- óisti, því næst þriðjaheimssinni og öflugur græningi. Loks hverfur hann aftur að Guði, sem er þá einna helzt í ætt við Guð heimspeking- anna. Í stað þess að skrifa heila skáld- sögu um þessa tvo menn, leyfi ég þeim að ganga inn og út úr bókinni og segja sitt með og á móti því sem fram kemur í hugleiðingum og end- urminningum.“ – Er þetta ekki bara Árni Berg- mann, þrefaldur í roðinu? Líkt og Dostojevskij beitti fyrir sig þremur bræðrum til þess að túlka sínar ólíku hliðar. Árni hrekkur svolítið við. Honum finnst samlíkingin við Dostojevskij kannski óþægileg. Árni er hagvanur í rússneskum bókmenntum, eins og dæmin sanna, og Dostojevskij var reyndar viðfangsefni hans á náms- árunum í Moskvu. Og á næstunni kemur út bók eftir hann með rúss- neskum textum frá 11. og 12. öld með skýringum, rit um upphaf rúss- neskrar sagnaritunar og skáld- skapar og tengsli þessara texta við okkar fornu bókmenntir. Það er eins og Árna létti að losna undan sjálfum sér og fjalla um fornrúss- nesk rit í stað eigin bókar. Hann segir mér frá því að meðal rúss- nesku textanna sé sama sögn og Örvar-Odds saga byggir á. Þetta er flökkusaga sem hefur víða farið til að festa mönnum í sinni að enginn má sköpum renna, það gildir einu hvað þú gerir við þitt örlagahross, þú stígur alltaf í hauskúpu þess fyr- ir rest. Fyrir tuttugu árum setti Árni niður hugmynd um skáldsögu um mann í leit að sínum Guði. Þessi saga komst aldrei á blað en þess í stað fór Árni í þýzkt klaustur og skrifaði skáldsögu um Þorvald víð- förla og glímu hans við Guð. „Kannski lét ég hann taka fyrstu lotuna fyrir mig.“ En það dugði Árna ekki. Glíma Þorvalds víðförla gat ekki orðið hans höfuðlausn. Hann varð sjálfur að taka stigið og opinbera eigin glímu við Guð. En þetta var bara útúrdúr. Og að draga Dostojevskí inn í samtalið um frá- sögn Árna er bara aðferðafræðileg athugasemd. Ekkert annað. Þess vegna getur Árni ótrauður haldið áfram að tala um bókina sína. „Fyrir utan söguna um frænd- urna tvo, Einar og Svein, fjalla ég um það hvað er átt við með því að glíma við Guð, ég fjalla um réttlæti hans og ranglæti. Okkur finnst Guð oft og tíðum ekki réttlátur, ekki sanngjarn og ekki algóður eins og hann var í barnatrúnni. Framlag hans verður ófullnægjandi og þá leggjum við upp í leit að einhverju í hans stað.“ Spurningin um samnefnarann „Í þeirri leit kemur margt til greina: ástin kannski, vísindin, listir og bókmenntir, miklir leiðtogar, veraldlegar hugsjónir. Það er glím- an við Guð í þessum víða skilningi sem ég fjalla um í bókinni. Gamli Guð hefur margoft verið lýstur dá- inn og grafinn og menn hætt að láta hann sig varða. En hann kemur allt- af aftur. Hvað er það í ein- staklingnum og samfélaginu sem lætur hann koma aftur? Rússneskt máltæki segir að helgur staður muni ekki auður standa. Vandinn er sá að fyrst verðum við fyrir von- brigðum með Guð feðranna og síðan með allt hitt: öll þau svör, allar þær vonir eða gildi, sem áttu að koma í staðinn fyrir hann. Þá er eins víst að við taki mikið endurmat á öllu sem menn hafa glímt við og þá í ljósi þess að hinar stærstu spurningar voru alltaf óleystar: Af hverju er eitthvað til yfirleitt? Hvað er upp- haf, endir, óendanleiki og hver er tilgangurinn með amstri mannsins undir sólinni? Ég reyni að leggja spilin á borðið, safna saman sem bezt ég kann rök- um með og á móti þeim ráðum sem menn grípa til hver í sinni Guðs- glímu. Ég fer líka yfir þá kosti sem menn eiga í stöðunni eins og sagt er, þann óendanlega fjölbreytileika sem við blasir þegar menn leita sér trausts og halds. Og ég spyr um samnefnara, hvort nokkur leið sé að nálgast hann. Börn eru fædd til ákveðinnar trúar eða sannfæringar, svo hætta menn að vera börn og þurfa að gera sín dæmi upp. Og þá kemur meðal annars að nýmælum úr samtíðinni. Sambúð trúaðra og trúleysingja hefur alllengi verið friðsöm í okkar heimshluta, menn hafa ekki verið að ergjast hverjir út í aðra. En nú er orðin breyting á. Guðleysi sem einkum tengist raun- vísindum sækir á og þess sjást nú mörg merki að menn þar á bæ eru orðnir harðir í horn að taka. Og full- yrðingin um að eingyðistrúarbrögð séu helzti vandi mannkynsins hefur fengið byr undir báða vængi. Í kaflanum: Er gott að trúa? geri ég upp höfuðrökin með og á móti þeirri staðhæfingu og kemst að minni niðurstöðu.“ – Sem er? „Ég hygg að menn lesi þann kafla frekar sem málsvörn fyrir trúaða en hitt. En ég reyni að virða sem bezt báða þessa póla, fer yfir helztu rök- semdir án þess þó að dæma sjálfan mig til afstöðuleysis. Þá kemur að lokakaflanum, þar sem ég segi af sjálfum mér að skrifa bók í þýzku klaustri; öðru sinni er ég að skrifa á slíkum stað, en núna um mína eigin glímu við Guð.“ – Hver er þá þín trú? „Fyrir um tuttugu árum tók ég þátt í samræðum vinstri manna og guðfræðinga, sem ég man að Morg- unblaðinu þótti varasamt og taldi afskipti mín af umræðunum tóman fláttskap. En mér var römm alvara eins og alltaf þegar ég fjalla um trú- mál. Í svari við spurningu þinni ætla ég samt að skýla mér bak við tvo ágæt leikskáld. Annað er Anton Tsjekov sem sagði: Það er óravegur frá því að trúa og til þess að trúa alls ekki og á þeirri leið getur margt gerzt. Og Arthur Miller sagðist vera agnostiker, hann telur sem sagt að ekkert verði um Guð sagt, en geng- ur þó með eina hjátrú: Mig grunar að Guð sé til. Þú verður að láta þér þetta svar nægja í bili!“ – Það virðist samt vera mikið af sjálfum þér í þessari bók: Árni Bergmann sem í spegli. „Sá sem skrifar bók, ég tala nú ekki um bók um þessi efni, hann kemst vitanlega aldrei langt frá sjálfum sér. Skáld eru ákaflega sjálfhverf, en um leið lúsiðin við að safna í sarpinn. Í eiginlegri skáld- sögu búa þau til nokkrar persónur, láta þær fá eitthvað af forðanum og svo er hægt að leggja af stað. Þessi bók varð til með ekki ósvipaðri að- ferð og það verður auðvitað ekki framhjá því litið að höfundur henn- ar heitir Árni Bergmann.“ – Af hverju að skrifa í klaustri? „Að því er varðar þýzku klaustrin tvö þá fór ég í hið fyrra tvisvar til að vinna að Þorvaldi víðförla og fékk til þess aðstoð íslenzks vinar míns kaþ- ólsks. En í fyrra leitaði ég uppi höf- uðklaustur sömu reglu í landinu á netinu og kom mér þangað eftir þeim leiðum: þeir taka við velvilj- uðum mönnum hverju sem þeir trúa – en menn borga fyrir sig nema sér- staklega standi á.“ Einstefnan í pólitíkinni – Hvað með pólitíkina? Hún hefur verið stór hluti af þínu lífi, ekki hvað sízt á þínum blaðamannsárum á Þjóðviljanum. Saknarðu þeirra tíma? „Þetta er ekki rétt spurning. Maður saknar engra tíma nema æskunnar! En þessi pólitísku ár, sem þú vísar til, voru spennandi, þetta voru miklir umbrotatímar. Það voru fleiri en eitt sjónarmið í gangi um hin stærstu mál og menn tókust á eftir hugmyndafræðilegum línum. Mér fundust þó skylming- arnar hérna heima ekki skipta mestu máli, heldur hitt að menn væru sínir eigin herrar; að vinstri Á óraveginum frá trú til trúleysis – Ertu ekki bara gamall kommi sem reynir nú að berja í brestina með bókinni: Glíman við Guð, af því þú veizt að það er of seint að iðrast eftir dauðann? spyr Freysteinn Jóhannsson. „Af og frá,“ svarar Árni Bergmann. „Ég hefi glímt við guð í öllum ald- ursflokkum ævinnar. Mér hefur aldrei verið sama um hann.“ Glímumaðurinn Árni Bergmann segist hafa glímt við Guð í öllum aldursflokkum ævinnar og hefur nú skrifað bók um þá glímu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.