Morgunblaðið - 12.10.2008, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 12.10.2008, Qupperneq 26
26 SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Nunnurnar og nærfötin Línsérí, nærfataverslun með meiru, varopnuð um miðjan júlí síðastliðið sum-ar. Katrín og Sif Jónsdætur rekaverslunina. Systurnar eru báðar sér- lega vel til hafðar og glæsilegur andi Parísar svífur yfir vötnum. Það kemur því ekki á óvart þegar Katrín segist hafa búið 30 ár í Par- ísarborg. Sif flutti hins vegar vestur um haf og var búsett í Bandaríkjunum um 17 ára skeið. Vörurnar í versluninni eru aðallega franskar en einnig frá Ítalíu. Vörumerkin þekkja allir les- endur tískublaða, Chantal Thomass, Eres og La Perla en þessi merki hafa ekki fengist í búðum hérlendis. Nærfötin eru úr silki, gegnsæ, með blúndum og í ýmsum litum. Einnig er boðið upp á sundföt, meira að segja sundbol eins og Char- lotte klæddist í Sex and the City-myndinni. Líka eru til sölu sokkabuxur og ekki má gleyma sérstökum regnhlífum frá Chantal Thomass, sem eru sérlega fallegar og óvenjulegar, en eng- ar tvær eru eins. Þær segja söluna á regnhlífum hafa verið góða í haust enda hefur rignt með eindæmum mikið í höfuðborginni. Línsérí er sérverslun, sem er á sérstökum stað. „Markmið okkar var að vera miðsvæðis en ekki á Laugaveginum þar sem leigan er þrisvar sinnum hærri en hér. Þetta eru frekar dýrar vörur, toppurinn á nærfötunum í dag, þannig að við vildum ekki þurfa að hleypa hárri leigu í verðlagið. Við viljum að íslenskar konur geti leyft sér að kaupa svona vörur á sambærilegu verði og erlendis,“ segir Katrín en víða í útlönd- um er það þekkt að sérverslanir dafni rétt utan við mestu verslunargötur. Einstaklingsþjónusta eftir lokun Staðsetningin þýðir líka að það er rólegra yfir búðinni en ella og ekki stöðugur straumur framhjá glugganum og hægt að skoða í ró og næði. Ennfremur bjóða syst- urnar upp á einstaklingsþjón- ustu eftir lokun og á sunnudög- um. „Þessa einstaklings- þjónustu hefur vantað hérna. Það er persónulegt að kaupa nærföt og konurnar geta haft okkur út af fyrir sig,“ segir Sif. Þær stöllur bjóða upp á kampa- vín til að lífga upp á stemninguna í einstaklings- þjónustunni og svo koníak ef einhver vill, en nánari upplýsingar er að finna á linseri.is. En hvernig finnst systrunum viðhorf ís- lenskra kvenna vera til undirfatnaðar? „Mér finnst það hafa verið að breytast und- anfarin ár. Í Frakklandi og víðar í Evrópu hafa falleg nærföt lengi verið stór þáttur í klæðnaði og mér finnst hafa orðið vakning í þessum efn- um hér. Það dugir ekki lengur að vera bara í fal- legum kjól heldur verður að eiga réttu nærfötin við hann,“ segir Katrín og Sif bætir við. „Und- irföt eru það fyrsta sem þú ferð í, þau eru næst þér og ættu að vera sérstök. Það er önnur og betri tilfinning að vera í fínum nærfötum.“ Hugmyndin um nærfatabúðina kom fyrst upp rúmu ári fyrir opnun. Sif kom með hug- myndina en Katrín var með samböndin úti, þekkti merkin og hefur sjálf notað vörurnar. „Þegar ég var 16 ára var ég búin að ákveða að fara til Frakklands og fór utan strax eftir stúd- entspróf,“ útskýrir Katrín, sem strax í mennta- skóla var kölluð Katrín franska. „Ég hóf nám í bókmenntum við Sorbonne og tók BA-gráðu og fór svo í fjögurra ára lögfræðinám við sama skóla og er búin að vera að vinna síðan. Svo ílengdist maður úti, kynntist manni og átti sín börn og fjölskyldulíf,“ segir Katrín, sem flutti til landsins í sumar. Sonur hennar býr með henni en dæturnar eru í skóla í Frakklandi. Sif stofnaði fjölskyldu í Bandaríkjunum en lengra er síðan hún kom heim. „ Katrín sendi mér oft nærföt frá Frakklandi,“ rifjar hún upp. Sif, sem á þrjú börn, lauk BA- námi í bókmenntum vestra og diplómaprófi í markaðs- og út- flutningsfræði frá Háskóla Ís- lands þegar hún flutti heim til Íslands fyrir tíu árum. Vörurnar framleiddar í Evrópu Línsérí á von á sendingu af silkináttfötum og -kjólum frá La Perla en systurnar bæta við að vörurnar í búðinni séu almennt framleiddar í Evrópu. Meðal þeirra eru franskar hárvörur frá Leonor Greyl. Katrín hefur lengi notað þessar vörur og mælir sérstaklega með olíu fyrir hár. Þær segja stemninguna í Garðastræti góða. „Það er mjög gott að vera hérna. Stutt að koma gangandi ef maður er á ferð í bænum og svo er bílastæðahús við Mjóstræti.“ Hingað til hafa aðallega konur verslað við þær en það er aldrei að vita nema það fjölgi í hópi karlkyns viðskiptavina fyrir jólin. Morgunblaðið/Valdís Thor Góðir grannar í Garðastræti Systurnar Katrín og Sif Jónsdætur sveifla regnhlífum frá Chantal Thomass meðan granninn Marianne Guckelsberger stendur glöð hjá. Fallegt og franskt Þessi nærföt eru frá Eres. Í húsinu Garðastræti 17 eru tvær skemmtilegar sérverslanir í nábýli, önnur verslar með fínustu nærföt en hin býður upp á vörur frá klaustrum víðs vegar í Evrópu. Inga Rún Sigurðardóttir drakk te með smárahunangi og þreifaði á silkiundirfötum. Undirföt eru það fyrsta sem þú ferð í, þau eru næst þér og ættu að vera sérstök. Klausturvörur selur eins og nafniðgefur til kynna vörur sem fram-leiddar eru í klaustrum. Tvær kon-ur af þýskum ættum reka versl- unina sem var opnuð í desember í fyrra. Þær versla milliliðalaust við klaustur í Noregi, Belgíu, Frakklandi, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni og Austurríki. Marianne Guckelsberger stóð á bakvið búðarborðið þegar blaðamaður heimsótti verslunina en Daniela Gross var heima við. „Gróflega má skipta vöruúrvalinu í þrjá flokka. Við erum með matvörur, snyrtivörur og listmuni,“ segir Marianne. Fyrir sælkera „Við erum með eitt stærsta hunangsúrvalið á landinu, allt frá bragðmildu og sætu hun- angi yfir í bragðmikið og sterkt háfjallahun- ang. Þetta eru allt hreinar sortir.“ Sulturnar í búðinni eru girnilegar en þarna fæst líka margt annað matarkyns fyrir fólk sem hefur áhuga á mat og vill prófa eitthvað nýtt. „Við erum með ferskju- og möndlusultu, mandarínumarmelaði með hnetulíkjör og jarðaberjasultu með balsamínu-ediki,“ segir Marianne en speltkex, dökkt súkkulaði og hvítt súkkulaðismjör eru einnig á meðal þess sem boðið er upp á. „Við Daniela erum báðar kaþólskar og höf- um persónuleg tengsl í klaustur. Fólk úr fjöl- skyldunni minni er klausturfólk,“ segir Mari- anne um hvernig hugmyndin hafi komið til. „Við vorum að leita að vörum sem er gott að selja hér. Við höfðum samband við klaustrin og könnuðum hvort þau væru tilbúin að selja okkur vörur. Sum flytja ekkert út; það er ekki sjálfsagt að þau séu tilbúin að selja til Íslands þó þau framleiði ákveðna vöru. Þetta er líka heilmikil pappírsvinna fyrir þau og sum klaustur hafa ekki mannskapinn í það.“ Marianne segir hafa gengið vel hjá þeim. „Við höfum fengið glimr- andi undirtektir frá byrjun og jólavertíðin hjá okkur var frábær. Vörurnar eru líka fyrir augað, það er mikið lagt í aðlaðandi og fal- legar umbúðir.“ Verslað með góðri samvisku Vörurnar eru í eðli sínu ekki fjölda- framleiddar. „Þarna liggur engin færi- bandavinna að baki og varan er ekki seld í miklu magni. Okkur finnst vera vakning í þessum málum hérlendis. Fólk spyr um upp- runa vörunnar, hvort einhver sé hlunnfarinn eða framleiðslan mengandi. Það er tilbúið til að borga meira ef það fær góða vöru sem það getur notað og keypt með góðri samvisku.“ Snyrtivörurnar hafa verið vinsælar, eins og lavenderkremið og rósasápan. „Við erum með til dæmis ilmvatn, sjampó og sápur. Margar snyrtivaranna eru lífrænar og allar vistvæn- ar. Mjög oft koma hráefnin beint úr klaust- urgarðinum. Nunnurnar fara bara í garðinn sinn og tína blóm og búa til sápur. Líka selj- um við te sem er ræktað í klaustrum. Frá því á miðöldum hafa klaustur átt stórar land- areignir og landsvæði til ræktunar.“ Til viðbótar selja Klausturvörur kerta- stjaka, kerti og handmálaða íkona. Marianne og Daníela kynntust einmitt í kaþólsku kirkjunni, sem er skammt frá versl- uninni við Garðastræti. Sjálf er hún búin að vera á Íslandi í 20 ár en Daníela í um átta ár. „Við vorum báðar á ákveðnum tímamótum og á þeim stað í lífinu að við vildum breyta til,“ segir hún um stofnun versl- unarinnar. „Þessi hug- mynd fæddist í eldhúsinu hjá mér yfir kaffibolla. Við fórum síðan á námskeið hjá Impru fyrir frumkvöðla en við vildum ekki stökkva í þetta án þess að kunna eitthvað fyrir okkur í viðskiptum,“ segir Marianne, sem er ennfremur sjúkranuddari og starfar einn dag í viku á nuddstofu. Til viðbótar er hún einn dag í viku í latínunámi við Háskóla Íslands. „Þegar ég er ekki hér stendur Daniela vaktina í versluninni. Hún er ólétt og á von á barni í mánuðinum en þá mun ég verða hérna ein í einhverjar vikur. Hún er gift bónda og þau eru með sauð- fjárbúskap nálægt Akranesi en hún keyrir á milli. Hún hefur aldrei verið veðurteppt og þetta hefur gengið vel upp hjá okkur.“ ingarun@mbl.is Gúmmelaði Ýmislegt matarkyns er í boði. Nunnurnar fara bara í garðinn sinn og tína blóm og búa til sápur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.