Morgunblaðið - 12.10.2008, Qupperneq 56
SUNNUDAGUR 12. OKTÓBER 286. DAGUR ÁRSINS 2008 Borgarleikhúsinu
Fló á skinni
Heitast 10°C | Kaldast 2°C
Austan 10-18 m/s,
hvassast við suður-
ströndina. Hægari á
NA-landi. Fer að rigna,
þurrt fyrir norðan. » 8
ÞETTA HELST»
Eflumst sem þjóð
Geir H. Haarde forsætisráðherra
útilokar ekki málsókn á hendur
breska ríkinu vegna aðgerða þess
gegn Kaupþing Singer & Fried-
lander. Hann telur að gera þurfi
breytingar á ýmsum reglum við-
skiptalífsins. » Forsíða
Vongóður um lausn
Össur Skarphéðinsson er ánægð-
ur með viðræður við hollenska
sendinefnd um íslenska innláns-
reikninga í Hollandi. Hann telur að
lausn sé í sjónmáli og verður hún
kynnt innan tíðar. » 2
Hlaup í Skaftá
Hlaup hófst í Skaftá í gær og var
búist við því að hlaupið yrði í stærra
lagi. Varað var við brennisteins-
mengun við upptök Skaftár og fólki
ráðlagt að vera þar ekki á ferli. » 2
Brýnt að leita til IMF
Ólafur Ísleifsson háskólakennari í
hagfræði telur brýnt að leitað verði
eftir láni og aðstoð hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum. Aðkoma sjóðsins
kunni að draga að fleiri lánveit-
endur. » 6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Tómið á bak við orðin
Forystugrein: Stolt eða samvinna?
Reykjavíkurbréf: Heilbrigðara
þjóðfélag
Ljósvaki: Frábærir þessir svörtu …
UMRÆÐAN»
Fá má bætur meðan leitað er að …
Með viðtalið á hreinu
Sýnum mjólkandi mæðrum stuðning
Sitt er hvað evra og ESB
Arfleifðin
Rödd smáborgarans
ATVINNA »
FÓLK»
Rumer Willis var algjör
lúði. » 54
Að mati Jónasar Sen
voru minningar-
tónleikar um Vil-
hjálm Vilhjálmsson
nokkuð vel heppn-
aðir. » 48
GAGNRÝNI»
Hefði mátt
gera betur
TÓNLIST»
Motion Boys hreyfðu við
fólki. » 52
FÓLK»
Gary Barlow vill vera
frægastur í flugvél. » 51
Rúrí er heiðurs-
listamaður Sequenc-
es í ár og ætlar af því
tilefni að fremja
mikinn gjörning í
kvöld. » 49
Fjöltækni-
gjörningur
MYNDLIST»
reykjavíkreykjavík
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 395 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
VEÐUR»
» VEÐUR mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. Íslendingar þrjóskir og …
2. „Sparkað í liggjandi (Ís)land“
3. Rússar og IMF sameinist um lán
4. Bretar knésettu … fyrirtæki …
ÞÓTT Silja Aðalsteinsdóttir hafi í
áratugi verið viðloðandi þá menn-
ingu, sem jafnan er meira í háveg-
um höfð en svokölluð dægur-
menning, setti hún sem unglingur
svo mikið mark á þá síðarnefndu
að henni hefur verið reistur minn-
isvarði á Poppminjasafninu í
Duus-húsi, menningarmiðstöð
Reykjanesbæjar.
Á sýningunni Saga rokksins í
50 ár er tveggja vikna ferill henn-
ar sem dægurlagasöngkonu tí-
undaður á veggspjaldi ásamt
mynd af henni frá þessum tíma.
Í viðtali í Morgunblaðinu í dag
sviptir Silja, bókmenntafræð-
ingur, rithöfundur, þýðandi og nú
útgáfustjóri hjá Máli og menn-
ingu, hulunni af þessu tímabili í
lífi sínu. Hún var aðeins sextán
ára og ein tíu ungmenna sem árið
1960 voru valin úr hópi fjörutíu
unglinga, sem komu eftir auglýs-
ingu í prufu hjá KK sextett.
„Við æfðum stíft og sungum
með hljómsveitinni á sveitaböll-
um, í Hlégarði, á Selfossi og víðar
flest kvöld í tvær vikur,“ segir
Silja m.a. Í viðtalinu ljóstrar hún
jafnframt upp ástæðu þess að
henni þótti meira gaman í rútunni
til og frá böllunum heldur en að
syngja.
Framtíðarsöngkona
Hápunkturinn fyrir ungu
söngvarana voru tónleikar í Aust-
urbæjarbíói í lok september.
Gagnrýnendur gerðu í stórum
dráttum nokkuð góðan róm að
frammistöðu Silju. Í [dagblaðinu]
Tímanum sagði að ekki hefðu all-
ir átt erindi upp á svið, en Silja
Aðalsteinsdóttir ætti greinilega
framtíð fyrir sér. Haukur Morth-
ens söngvari var ekki alveg eins
ánægður, sagði hana hafa verið
feimna, óstyrka og oft hafa fipast.
Silja viðurkennir að hann hafi
haft svolítið til síns máls, hún hafi
verið mjög feimin – og í rauninni
hafi hún aldrei unnið almennilega
bug á feimninni, þótt ekki örli
eins mikið á henni þegar hún
flytji texta eftir aðra.
Í seinni tíð syngur Silja helst
þegar hún straujar. | 18
Silja var poppstjarna
þegar hún var 16 ára
Dægurlagastjarna Silja Aðalsteinsdóttir um það leyti sem hún söng með KK-sextettinum víða um land.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Menningarvitinn Silja Aðalsteins-
dóttir er þekktari fyrir annað en
poppsöng í seinni tíð.
GUÐJÓN Davíð Karlsson leikari
þurfti aldrei að opna orðabók alla
sína skólagöngu. Hann fletti bara
upp í föður sínum, Karli Sigur-
björnssyni biskup. „Það var nokk
sama hvert fagið var, tungumál,
saga, efnafræði, alltaf var pabbi
með svörin á reiðum höndum,“ seg-
ir hann.
Karl segir son sinn hafa leikið sig
gegnum lærdóminn. „Sem dæmi þá
lærði hann Gísla sögu Súrssonar ut-
an bókar og lék bardagasenurnar
með miklum tilþrifum. Þarna sá
maður að hann hafði þetta „tal-
ent“.“ | 20
Morgunblaðið/RAX
Það er leik-
ur að læra
Auratal
Í SÍÐASTA mánuði keypti fólk sem
var að undirbúa hús sitt fyrir vetr-
arveðrin efni til þess að þétta múr.
Fólkið lagði leið sína í BYKO og
keypti þar efni sem fyrirtækið Mat-
hys framleiðir og heitir Fill Coat,
Sibres, 5 lítra dós. Umrædd dós
kostaði rösklega 22 þúsund krónur.
Fólkinu fannst þetta dýrt og
ákvað að opna ekki dósina með
þessu dýra efni af því að það taldi
að það hlyti að hafa verið tvíslegið
inn í kassann. Síðan fór fólkið á net-
ið til þess að athuga hvað umrætt
efni kostaði í útlöndum og sá þá á
heimasíðu breskrar málningar-
vöruverslunar að varan kostaði 33
pund.
Í framhaldi af þessu fór fólkið í
Húsasmiðjuna og fann umrætt efni,
nákvæmlega eins dós á rösklega tíu
þúsund krónur. Daginn eftir var
farið með hina dýru dós úr BYKO
aftur í verslunina og henni skilað
og við þau skil var staðfest að hún
hafði verið slegin inn á réttu verði.
Þarna munaði því um 12 þúsund
krónum á sömu vöru. Á gengi
pundsins þennan umrædda kaup-
dag var dósin á rétt um 6.000 ís-
lenskar krónur. gudrung@mbl.is