Morgunblaðið - 23.10.2008, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.10.2008, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2008 Eftir Láru Ómarsdóttur lom@mbl.is NORSK sendinefnd mun funda með íslenskum stjórnvöldum klukkan 9 í dag til að ræða hvernig Norðmenn geta komið Íslendingum til aðstoðar í efnahagskreppunni sem hér ríkir. Nefndin kom til landsins í gær og fundaði stutt- lega á Radisson SAS ásamt norska sendiherran- um og fulltrúa Svía. „Tilgangur ferðarinnar er tví- þættur, annars vegar að kynna okkur aðstæður hér á landi og hins vegar að ræða við íslensk stjórnvöld um hvernig Noregur og önnur Norð- urlönd geta komið Íslendingum til hjálpar“ segir Martin Skanche, formaður nefndarinnar. Hann segist ekki geta sagt til um hvað gæti verið fólgið í slíkri aðstoð fyrr en eftir að nefndin hafi rætt við íslensk stjórnvöld: „Við erum hér til að kynna okk- ur hvaða áhrif efnahagskreppan hefur á Íslend- inga. Kreppan hefur komið við margar þjóðir, þó enga eins og Ísland, sem virðist hafa verið sér- staklega viðkvæmt fyrir aðstæðunum“ segir Martin. Hefur áhuga á almenningi Í samtölum við norsku sendinefndina er aug- ljóst að nefndarmenn hafa mikinn áhuga á hvernig íslenskum almenningi reiðir af. Þeir vilja vita hvort áhrifa kreppunnar sé farið að gæta úti í sam- minnstri röskun fyrir hinn almenna launþega í landinu. En frumkvæðið verður að koma frá ís- lenskum stjórnvöldum. Það hafa ekki verið lagðar fram neinar sérstakar óskir þar að lútandi en vera okkar hér sýnir að okkur er alvara.“ félaginu. Martin segir það meðal annars tilgang ferðar nefndarinnar hingað til lands; „Við erum hér á vegum norskra stjórnvalda og vera okkar hér sýnir að við viljum hjálpa Íslendingum að komast upp úr þessu ástandi sem fyrst með sem Vilja hjálpa Íslendingum  Norsk sendinefnd er stödd hér á landi  Vilja kynna sér stöðu mála og bjóða fram aðstoð  Norðmennirnir funda með íslenskum stjórnvöldum í dag Morgunblaðið/hag Hjálpfúsir Norðmenn Martin Skanche, formaður nefndarinnar, segir Norðmenn vilja hjálpa. vinstri smakkar Ingileif Ástvaldsdóttir skólastjóri blóðið að beiðni Jósavins Heiðmanns Arasonar. Á myndinni eru líka Diðrik Kristjánsson, Þormar Þór Hallgrímsson, Matthías Jen- sen, Gunnar Andri Gunnarsson, Jónína Sverrisdóttir kennari og Benedikt Stefánsson. Hægra megin eru Bergur Þór Stef- ánsson, Karen Rut Brynjarsdóttir, Sindri Snær Jóhannesson og Elína María Gunnarsdóttir. Í dag verður slátur í hádeg- ismat skólanum og margir farnir að hlakka til strax í gær. Nemendur og starfsfólk í Þelamerkurskóla tóku til hendinni Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sláturgerð í Hörgárbyggð ÞAÐ var líflegt í Þelamerkurskóla í Hörgárbyggð í gær þeg- ar nemendur og starfsfólk sameinuðust í sláturgerð. Tekin voru 25 slátur; í bítið var hafist handa við lifrarpylsuna og eft- ir langar frímínútur var röðin komin að blóðmörnum. Til UM 4.000 börn og unglingar skráðu sig í gær í áheyrn- arprufur fyrir hlutverk í Söngvaseiði sem sýndur verð- ur í Borgarleikhúsinu í vor. Fullt var út úr dyrum en prufurnar fara fram á næstu tíu dögum. „Það er frá- bært að sjá þennan mikla áhuga á leikhúsinu sem end- urspeglast í þessari gríðarlegu þátttöku,“ segir Sváfnir Sigurðarson, markaðsstjóri Borgarleikhússins. Ljóst er að margir krakkanna fá ekki að standa á sviði leikhússins þegar vora tekur og syngja „do er dós af djásnum full“ þar sem aðeins fjórtán börnum verður boðið að taka þátt í uppfærslunni. Þau munu skipta með sér hlutverkum von Trapp-systkinanna sjö. Að sögn Sváfnis mætti í gær fjöldi barna sem hefur sótt námskeið í leiklist, söng og dansi. ylfa@mbl.is Morgunblaðið/Frikki Beðið Löng röð myndaðist við Borgarleikhúsið þegar um 4.000 börn og unglingar skráðu sig í áheyrnarprufur. 4.000 skráðu sig í prufur Fjórtán börn verða valin í hlutverk von Trapp-systkinanna STEINGRÍMUR J. Sigfússon, for- maður Vinstri grænna, segist hafa um það heimildir að norska sendi- nefndin sé komin hingað til lands m.a. vegna skrifa hans í norska fjöl- miðla á dögunum. Það hafi sett „ákveðna pressu á mál- in. Reyndar var staðan þannig fyrir að það var mikill þverpólitískur vilji og samstaða í Noregi um að landið legði eitthvað af mörkum.“ Ákvörðun stjórnvalda um að senda hóp hingað til að kynna sér stöðuna sýni mikinn velvilja í garð Íslendinga. „Að vísu kemur þetta mjög seint þegar við erum kannski á síðustu metrunum að lenda á klafa Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins. Ég hefði auðvitað viljað að það hefði farið formlega til Norðmanna fyrir tíu dögum. Engu að síður finnst mér þetta gott og tel að við eigum að hafa eins mikið sam- flot með Norðmönnum í þessu og hægt er, hvernig sem allt fer, enda eru þeir á margan hátt okkar eðlileg- asti og næsti bandamaður.“ Setti pressu á málin Steingrímur J. Sigfússon Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is Í GÆRKVÖLDI dró nokkuð úr skjálftum við Upptyppinga um tíma, en skjálftahrina hófst aftur seint í gærkvöldi. Að sögn Páls Einarssonar, prófessors í jarðeðlisfræði sem fylgst hefur náið með hræringunum, eru þó ýmsir möguleikar fyrir hendi um hvernig málin muni þróast. Þótt dreg- ið hafi úr hrinunni í gærkvöldi sé ekki þar með sagt að framhaldið sé ráðið og hræringunum ljúki næstu daga. Hræringar í eitt og hálft ár Páll segir um að ræða atburðarás sem hafi verið í gangi síðastliðið eitt og hálft ár. Það sem geri þessa virkni nú sérstaka er hvað hún hefur haldið áfram jafnt og þétt með litlum og fáum skjálftum. Fyrri partinn í gær gerði hins veg- ar mikla skjálftahrinu sem var nánast stöðug frá klukkan átta um morgun- inn og fram að hádegi. Hræringarnar færðust þá á annað stig en erfitt er að segja til um hvort búast megi við gosi. Vissulega er þó sá möguleiki fyrir hendi að virknin komi upp á yfirborð- ið í eldgosi. Mikil skjálftahrina hófst við Upp- typpinga í fyrra en skjálftavirknin hætti í vor. Hún hófst hins vegar aftur í ágúst með stöku skjálfta og síðustu vikurnar hafa verið vaxandi smá- skjálftar á afmörkuðu svæði norðan Upptyppinga. Hrinurnar koma og fara Morgunblaðið/Jón Sigurðarson Óvissa Eldgos ekki útilokað.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.