Morgunblaðið - 23.10.2008, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2008
FRÉTTASKÝRING
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
„VIÐ íhugum að kalla þessa húsa-
lengju Regnbogaslóð,“ segir Jórunn
Frímannsdóttir, formaður velferð-
arráðs Reykjavíkurborgar, með bros
á vör þegar hún tekur á móti blaða-
konu úti á Granda til þess að sýna
henni smáhýsin, sem þar hefur verið
komið upp. Húsin, sem ætluð eru til
varanlegrar búsetu fyrir einstaklinga
sem lengi hafa verið heimilislausir,
standa í einni lengju í skjóli frá nær-
liggjandi umferðargötum og eru eins
að því undanskildu að útidyrahurðir
húsanna bera vott um litagleði og eru
í gulum, rauðum, grænum og bláum
lit.
Að sögn Jórunnar tók lengri tíma
en ætlað hafði verið að finna hús-
unum stað í borginni, en náðst hafa
samningar við einkaaðila um leigu
lóðar úti á Granda undir húsin. Segir
hún staðsetninguna góða þar sem
stutt sé í Dagsetur Hjálpræðishers-
ins þar sem íbúar geti fengið heitan
mat í hádeginu og komist í aðstöðu til
þess að þvo föt sín. Einnig sé stutt í
allar nauðsynlegar verslanir og mið-
bærinn sé í göngufæri.
Fólk sem við þekkjum vel
Samkvæmt upplýsingum frá Birnu
Sigurðardóttur, verkefnisstjóra á
velferðarsviði, er þessa dagana verið
að velja þá skjólstæðinga borg-
arinnar sem til greina koma sem íbúa
smáhýsanna og búa þá undir búset-
una með því m.a. að fara yfir þau um-
gengnisskilyrði sem kveðið er á um í
dvalar- og leigusamningi. Segir hún
búið að tilnefna tvo einstaklinga og
tvö pör til búsetu í smáhýsunum, þ.e.
samtals sex manns, sem munu flytja
inn á næstunni. „Þetta eru allt skjól-
stæðingar sem við þekkjum mjög vel
og verið hafa lengi í kerfinu þar sem
búið er að reyna öll önnur úrræði,“
segir Jórunn og bendir á að íbúum
smáhýsanna verði veittur mikill
stuðningur með því að líta eftir þeim
og inn til þeirra daglega. Aðspurð
segir Jórunn að ekki standi til að
reisa fleiri smáhýsi í bili, enda sé um
ákveðið tilraunaverkefni að ræða
sem meta þurfi reynsluna af á næstu
tveimur árum áður en ákvörðun um
uppbyggingu fleiri húsa verður tekin.
„Það skiptir mestu máli að hafa
fjölbreytni í búsetuúrræðum,“ segir
Jórunn. Bendir hún á að hin ýmsu úr-
ræði henti misvel ólíkum ein-
staklingum. „Þannig hentar þetta bú-
setuform vel fólki sem ekki hefur
þrifist í öðrum sambýlisformum sem
við höfum upp á að bjóða.“
Slitsterkari en fyrirmyndirnar
Þótt hugmyndin að smáhýsunum
fjórum sé að erlendri fyrirmynd er
hönnun þeirra alíslensk sem og allt
byggingarefni. Þetta segir Þórarinn
Magnússon, verkfræðingur og for-
stöðumaður framkvæmdadeildar Fé-
lagsbústaða hf., sem haft hefur um-
sjón og eftirlit með byggingu
smáhýsanna. Bendir hann á að ís-
lensku smáhýsin séu mun slitsterkari
heldur en erlendu húsin sem helgist
m.a. af íslenskri veðráttu. Um er að
ræða stálgrindarhús sem vega hvert
um sig 6,5 tonn en eru færanleg.
Húsin eru klædd jafnt utan sem inn-
an með utanhúsklæðningu, í glugg-
um er öryggisgler, gólfdúkurinn er
sérvalinn sjúkrahúsdúkur sem ekki
getur kviknað í t.d. út frá logandi síg-
arettum, eldavélin er tímastillt, hita-
lagnir eru í gólfi og litríku útihurð-
irnar eru úr stáli.
Erum að ná utan um hópinn
Aðspurð hversu margir séu skil-
greindir heimilislausir í borginni nú
um stundir segir Jórunn að ekki sé til
nýrri samantektartölur en finna
megi í skýrslu sem samráðshópur á
vegum félagsmálaráðuneytisins vann
árið 2005. Hún sýndi þá að áætlað
væri að á bilinu 16-36 einstaklingar
væru á götunni. Tekur Jórunn fram
að í nýkynntri stefnu Reykjavík-
urborgar í málefnum utangarðsfólks
sé ætlunin að gera úttekt á fjölda
heimilislausra strax á næsta ári. „Við
teljum okkur hins vegar vera að ná
utan um þennan hóp með þeim úr-
ræðum sem kynnt hafa verið til sög-
unnar að undanförnu,“ segir Jórunn
og vísar þar m.a. til smáhýsanna
fjögurra, fjölgun plássa í Gistiskýlinu
og búsetuúrræði fyrir tuttugu manns
í beinu framhaldi af meðferð.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Regnbogaslóð „Við teljum okkur vera að ná utan um þennan hóp [heimilislausra] með þeim úrræðum sem kynnt
hafa verið til sögunnar að undanförnu,“ segir Jórunn Frímannsdóttir sem hér stillir sér upp við smáhýsin fjögur.
Munu fá mikinn stuðning
SJÖ fyrirtæki í byggingariðnaði hafa
á síðustu dögum tilkynnt til stéttar-
félagsins Eflingar að þau ætli að
segja upp starfsfólki. Hóparnir eru á
bilinu tíu til tuttugu manns. Starfs-
mennirnir bætast við þá nær 300
starfsmenn Ístaks sem missa vinn-
una um mánaðamótin. Fjöldinn nem-
ur um þriðjungi starfsmanna fyrir-
tækisins.
Loftur Árnason, framkvæmda-
stjóri Ístaks, segir að starfsmennirn-
ir sem missa nú vinnuna hjá Ístaki
séu ekki aðeins þeir 240 sem unnu
við Hraunaveitu heldur fækki einnig
í öðrum verkefnum fyrirtækisins
auk þess sem undirverktakar missi
vinnuna.
Hann er uggandi yfir ástandinu í
efnahagsmálunum og segir að sér
finnist sem sveitarfélög á suðvestur-
horninu, sem ætluðu að byggja, haldi
nú að sér höndum. „Það er allsherjar
hik. Sveitarfélögin draga saman
seglin og setja verkefni á ís.“ Þá hef-
ur fyrirtækið ekki fengið að milli-
færa greiðslur í gegnum danska
banka fyrir verk sín í Grænlandi og
Færeyjum til Íslands. „Gjaldeyris-
þurrðin hefur skapað geysileg
vandamál,“ segir hann. „Bankarnir
úti treysta því ekki að greiðslan
komist til skila.“ Ástandið megi ekki
vara lengi áður en illa fari.
„Aðilar sem við höfum verið í við-
skiptum við erlendis á undanförnum
árum krefjast núna staðgreiðslu.
Það hefur aldrei gerst áður.“
Loftur bendir auk þess á að verk-
efni sem fyrirtækið vinni að gætu
stöðvast þar sem byggingavörur
skorti í landinu, en meðal verkefna
þeirra er bygging nýja Háskólans í
Reykjavík. „Mjög brýnt er að leysa
vandann sem allra fyrst.“
gag@mbl.is
Hópuppsagnir
sjö fyrirtækja
Í HNOTSKURN
»62 prósent félagsmannaEflingar í byggingariðnaði
eru útlendingar.
»100 Íslendingar og 140 út-lendingar, flestir Pólverj-
ar og Portúgalar, missa vinn-
una hjá Ístaki þegar vinnu við
Hraunaveitu lýkur.
»Samiðn og TrésmiðafélagReykjavíkur fá margar
fyrirspurnir um hóp-
uppsagnir.
400 starfsmenn í
byggingariðnaði
missa vinnuna
TALSMAÐUR
neytenda, Gísli
Tryggvason, hef-
ur vakið athygli
sendiráða Dan-
merkur og Bret-
lands á mann-
réttindavernd
neytenda gegn
mismunun á
grundvelli þjóð-
ernis vegna frétta af brotum gegn
réttindum Íslendinga í þessum
tveimur löndum. Einnig hefur utan-
ríkisráðuneytinu verið gert viðvart,
svo og umboðsmanni neytenda í
Danmörku um staðfest tilvik.
Óskað var atbeina sendiráðanna
við að árétta alþjóðlegt bann við
mismunun neytenda á grundvelli
þjóðernis eða annarra ástæðna sem
fela í sér óheimila mismunun. Þetta
var gert í kjölfar þess Gísli sann-
reyndi frá fyrstu hendi fréttir um
tvö slík tilvik í Danmörku en um
þau var skrifað í Morgunblaðinu.
Um var að ræða Íslendinga sem var
synjað um þjónustu í símabúð og
vísað úr töskubúð. ylfa@mbl.is
Sendiráð
minnt á mann-
réttindavernd
Gísli Tryggvason
TÖLVUFYRIRTÆKIÐ EJS til-
kynnti í gærmorgun að fyrirtækið
hefði sagt upp 33 starfsmönnum.
Magnús Steinarr Norðdahl, for-
stjóri EJS, segir að uppsagnirnar
séu nauðvörn fyrirtækisins vegna
mikils sölusamdráttar undanfarnar
vikur.
Vörusala var ágæt fyrstu níu
mánuði ársins en á síðustu vikum
gjörbreyttist staðan. „Það eru
mörg fyrirtæki sem hafa ákveðið að
bíða með allar ákvarðanir. Það
stoppar allt innkaupaferli. Það eru
ekki teknar ákvarðanir um eitt né
neitt lengur,“ sagði Magnús.
Tæplega 170 manns starfa hjá
fyrirtækinu og því fækkar starfs-
mönnum um fimmtung. Starfsmenn
úr öllum deildum missa vinnuna. Að
sögn Magnúsar hefur um helm-
ingur tveggja ára starfsaldur en
aðrir hafa unnið lengur hjá fyr-
irtækinu. runarp@mbl.is
EJS sagði upp
33 starfsmönnum
Hversu stór eru smáhýsin og
hversu marga geta þau hýst?
Öll smáhýsin eru 25 fermetrar að
stærð og geta ýmist hýst einn ein-
stakling eða par. Samtals geta hús-
in fjögur því hýst fjóra til átta.
Hvað kostar að reisa smáhýsi og
hve langan tíma tekur það?
Byggingarkostnaður hvers húss er
250-300 þúsund krónur á ferm. og
því kostar hvert hús 6-7 milljónir.
Mánuð tekur að reisa hvert hús.
Hvers konar samningar eru
gerðir við íbúa húsanna?
Íbúar smáhýsanna munu gera dval-
ar- og leigusamning til sex mánaða
í senn og munu á samningstím-
anum þiggja stuðning í formi innlita
og eftirlits.
S&S
EXISTA hf. ı Ármúla 3 ı 108 Reykjavík ı Sími 550 8600 www.exista.is
HLUTHAFAFUNDUR EXISTA HF.
30. OKTÓBER 2008
Stjórn Exista hf. boðar til hluthafafundar fimmtudaginn 30. október 2008
í Salnum í Kópavogi og hefst fundurinn kl. 13:00.
Dagskrá:
1. Umfjöllun um stöðu og horfur.
2. Tillaga um heimild stjórnar til hækkunar hlutafjár.
3. Tillaga um heimild stjórnar fyrir hönd félagsins að undirgangast fjárskuldbindingar
sem breyta má í hlutafé í félaginu og heimild til hækkunar hlutafjár í samræmi við það.
4. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á eigin bréfum.
5. Tillaga um afskráningu hluta félagsins úr kauphöll NASDAQ OMX Nordic Exchange á Íslandi.
6. Tillaga um heimild stjórnar til ótakmarkaðrar sölu á eignum félagsins.
7. Önnur mál.
Dagskrá og endanlegar tillögur liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til sýnis.
Ennfremur er hægt að nálgast fundargögn á vefsíðu félagsins www.exista.is.
Atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundardaginn frá kl. 12:00
á fundarstað í Salnum, Hamraborg 6, Kópavogi.
Stjórn Exista hf.