Morgunblaðið - 23.10.2008, Page 17

Morgunblaðið - 23.10.2008, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2008 Í mynd Þorkell Þorkelsson ljósmyndari myndaði í gær íslenska „hryðjuverkamenn“ og vopn þeirra samanber lög sem Bretar beita þjóð okkar. Golli Gísli Freyr Valdórsson | 22. október Góð tímasetning Þetta er auðvitað alveg frábær tímasetning hjá verkalýðsfélaginu Fram- sýn, að fara fram á 30 þúsund króna taxtahækk- un. Í rökum félagsins fyrir þessari fáránlegu kröfu er farið fram á að laun verði „leiðrétt“ – eins og svo oft er gert núna. Eru einhver merki þess að launin hafi verið vitlaus? Ef ég fæ greidd umsamin laun frá vinnuveitanda en finnst þau of lág – eru launin þá vitlaus? Á ég þá að fara fram á „leiðréttingu“ frekar en launahækkun? Meira: gislifreyr.blog.is Vilborg G. Hansen | 22. október Ættum kannski líka að fara í myntsam- starf – Nordic króna! Svona fyrst farið er að tala um samstarf Norður- landanna þá er ekki úr vegi að spyrja sig hvort við ættum ekki einnig að huga að myntsamstarfi. Það er alveg sama hvernig á það er litið. Norðurlöndin með öllum sínum auðlindum eru svo langtum ríkari en lönd Evrópusambandsins og hafa óendanleg tækifæri. Innan Norð- urlanda er meira að segja stærsti vopna- framleiðandi heims, þ.e. Svíþjóð. Evr- ópusambandslöndin komast ekki með tærnar sem Norðurlöndin eru með hæl- ana. Það er eitthvað skrýtið ef menn ræða þetta ekki á þessum tímapunkti sem við stöndum nú. Evrópusambandslöndin þurfa í raun nauðsynlega á Norðurlönd- unum að halda þegar allt kemur til alls! Tökum bara upp „Nordic krona“ Meira: villagunn.blog.is Hildur Helga Sigurðardóttir | 22. okt. Lukkusjoppu lokað Þá er síðasta sjoppan í mínum radíus í Vest- urbænum fallin í valinn. Og það ekki hvaða sjoppa sem er, heldur sjálf lukku- sjoppan, Gerpla við Hofs- vallagötu. Þar fengust um árabil allir langstórustu lottóvinningar landsins. Snemma á laugardögum mynduðust langar biðraðir vongóðra fyr- ir utan Gerplu, fólk kom um langan veg til að kaupa sér lottómiða í frægustu lukkusjoppu landsins. Hún var líka skreytt fagurlega innrömmuðum skjöl- um, sem vitnuðu um ótrúlega heppni og getspeki þeirra sem versluðu við lukku- sjoppuna. ... Meira: hildurhelgas.blog.is ÍSLENDINGAR standa frammi fyrir ör- lagaríku uppgjöri. Miklar kröfur eru sett- ar fram af erlendum þjóðríkjum varðandi ábyrgðir Íslendinga á skuldum íslenskra einkabanka erlendis. Fjölmiðlar segja að um sé að ræða 600 millj- arða króna erlendis og í raun kunni skuldbind- ingar íslenska ríkisins vegna bankakreppunnar að verða meira en tvöföld sú upphæð ef taldar eru með skuldbindingar innanlands. Íslendingar verða að standa und- ir því sem lög og reglugerðir binda þá. Athyglisverð grein þeirra Stef- áns Más og Lárusar Blöndal reynir að kristalla hverjar okkar ábyrgðir eru. Okkar litla land getur ekki tekið á sig meira en við erum skyldug að gera. Það er ágætt að vilja leysa hvers manns vanda en nú mega stjórnvöld ekki binda komandi kynslóðum skulda- bagga sem marga áratugi tekur að komast út úr. Þá færum við þjóðlíf okkar niður á fá- tæktarstig og afl stjórnvalda til þess að halda uppi þjóð- félagslegum þáttum, menntakerfi, heil- brigðiskerfi o.s.frv. minnkar. Bretar hafa stórskaðað okk- ur með yfirlýsingum sínum um þjóðargjaldþrot, gjaldþroti Kaup- þings banka og frystingu banka- eigna sem verðfellir þær gríð- arlega. Þessi atriði verða að koma fram í samningum við þá og reikn- ast til frádráttar. Í hagfræðinni hefur verið sagt að greiðslubyrði þjóðar megi ekki nema meiru en 3% af landsfram- leiðslu, þ.e. sem svarar meðalhag- vexti á greiðslutíma. Ef landsfram- leiðsla okkar er um 1.500 milljarðar og ríkið tekur nú á sig 12-1.400 milljarða sjá menn strax að 3-3,5% raunvextir af slíkri skuld njörva okkur niður fyrir utan af- borganir. Slík lántaka með 20 ára lánstíma gæti svarað til um 80 þ. kr. á mánuði á 4 manna fjölskyldu. Hér er ekki verið að tala fyrir því að Íslendingar hlaupist undan sínum ábyrgðum og skuldum sem þjóð, heldur leggja áherslu á að menn skilgreini vel hverju við er- um í ábyrgð fyrir og það tjón sem kröfuhafar hafa valdið sé tekið inn í reikninginn. Meira getum við ekki greitt og meira hafa stjórnvöld ekki leyfi til að leggja á börn okkar og barnabörn. Til varnar Davíð Ég skildi Davíð þannig í Kast- ljósþættinum að hann væri að segja það sem hér er talað um að ofan. Hann skýrði stöðuna á mannamáli. Mér sýnist Bretar hafa verið búnir að taka sínar ákvarð- anir fyrir þennan þátt. Menn mega heldur ekki gleyma því að í banka- stjórn seðlabankans eru þrír menn og hinir tveir eru hagfræðingar. Þeir virðast allir hafa verið sam- mála. Davíð virðist þó vera einn af þeim sem vöruðu við stöðunni. Að ráðast að honum einum og sér- staklega nú er fráleitt og minnir á fyrri múgæsingar í þjóðfélagi okk- ar sem ekki hafa verið okkur til sóma og margir iðrast eftir á. Hvað um Geirfinnsmálið, Hafskipsmálið, Arnarflugsmálið o.s.frv. Þetta mál verður að skoða heildstætt, banka- stjórnir, eftirlitsstofnanir, útrás- arvíkinga og stjórnvöld, en ekki einangra einstaklinga. Næsti leikur í þessari erfiðu stöðu og sá mest áríðandi er að binda okkur ekki meiri skulda- bagga en nauðsynlegt er. For- sætisráðherra hefur verið okkar helsti talsmaður í þessu ölduróti. Það hefur hann leyst af hendi af yfirvegun og jafnvægi. Mér finnst þó að hann hefði mátt vera harð- orðari við Breta. Yfirlýsingar Browns hafa komist til skila til umheimsins en ekki verið gert nægilega grein fyrir okkar sjón- armiðum. Enginn veit hvenær þessum ósköpum linnir, ef til vill erum við að sjá brotið blað í veraldarsög- unni. Hnattvæðing og kapítalismi eru hugtök sem verða endur- skoðuð. Okkar fámenna þjóð get- ur ekki borið stærri hlut af þessu öngþveiti en henni ber skylda til. Við verðum að treysta því að stjórnvöld og löggjafarþing okkar sjái til þess. Eftir Guðmund G. Þórarinsson » Það er ágætt að vilja leysa hvers manns vanda en nú mega stjórnvöld ekki binda komandi kyn- slóðum skuldabagga sem marga áratugi tek- ur að komast út úr. Guðmundur G. Þórarinsson Höfundur er verkfræðingur. Nýir Versalasamningar? ÞAÐ eru erfiðir tímar á Íslandi. Ís- lendingar eru í sár- um, bankar farnir í þrot ásamt mörgum íslenskum fyr- irtækjum í útrás og heima og hjá íslensk- um almenningi. Stjórnvöld og aðrir hafa brugðist. Sóknin í þrotabúin með undirmálskjörum kemur úr öllum áttum. Það er alkunna að sótt er að þeim veiku þegar á bjátar. Hér heima sækja þannig ýmsir í sig veðrið og vitna til efna- hagsþrengingana. Geta má um- ræðu um náttúruverndarmál og eflingu sóknar í stór- iðju. Dæmi úr um- ræðunum eru alkunn eins og hugmyndir um að afnema lög um umhverfismat eða endurnýjun á skoð- anakönnun í Hafn- arfirði um álverið í Straumsvík. Erlend fyrirtæki sækja í orkulindir landsins og þá afsal lands- gæða, málefni sem líkja má við nýtt landhelgismál. Annað dæmi varðar hvatningu til að auka kvóta í veik- an þorskstofn. Það væri skammtímalausn á kostnað lausn- ar til lengri tíma. Víða er þannig sótt í auðlindir lands og sjávar. Á þessum þreng- ingartímum er nauðsynlegt að gæta hófs í hita leiksins. Nóg er komið í bili af áhyggjum og ekki æskilegt að takast á við viðkvæmt mál um t.d. að endurtaka barátt- una um álverið í Straumsvík og espa til leiks í Hafnarfirði. Förum varlega í þessum efnum þegar sótt er að auðlindum lands og sjávar úr öllum áttum af að- ilum sem líkja má við hýenur og hrægamma sem sækja fast í að næla sér í bita úr leyfunum við ríkjandi aðstæður. Fyrirgefið lík- ingarmálið. Drögum djúpt andann og vörumst ágengnina í fljótfærni líðandi erfiðleikastunda. Nóg er komið í andlegri nauð og sorg landsmanna. Gefum okkur frest til að hugsa skýrt, m.a. í Hafn- arfirði. Auk þess skyldi þar standa við gefin fyrirheit um hlé í Straumsvíkurmálinu a.m.k. á líð- andi kjörtímabili. Að lokum, svo er talið af málsmetandi mönnum að margir aðrir kostir séu arð- vænlegri fyrir þjóðarbúið en ál- ver og fyrir tryggingu á atvinnu og stöðugleika í landinu. Gefum því gaum. Svo má einnig minna á að Efnahagsbandalag Evrópu er ekki síst stofnað til friðar í álf- unni. Góðum efnahag og jöfnuði fylgir friður en ófriður átökum í þrengingum og misskiptingu. Samstaða í Guðs friði. Svend-Aage Malm- berg brýnir stjórn- völd til að sýna var- færni » ...vörumst ágengnina í fljótfærni líðandi erfiðleikastunda. Svend-Aage Malmberg Höfundur situr í landsstjórn Samfylkingarinnar. Hýenur og hrægammar sækja fast í landhelgi Íslands BLOG.IS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.