Morgunblaðið - 23.10.2008, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 23.10.2008, Qupperneq 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2008                          ✝ Elsku hjartans sonur okkar, bróðir, barnabarn, barnabarnabarn og frændi, FREYÞÓR FANNAR PÉTURSSON, Dynsölum 6, Kópavogi, lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi laugardaginn 18. október. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn 24. október kl. 13.00. Fjóla Ólafsdóttir, Pétur Bjarni Guðmundsson, Hrefna Karen Pétursdóttir, Hrefna Sigurðardóttir, Ólafur Björn Björnsson, Pálína Bjarnadóttir, Torbjorn Wilhelmsen, Páll Sölvason, Ólafur Haukur Ólafsson, Sigurlaug Vilhjálmsdóttir, Arna Guðmundsdóttir, Valdimar Gunnarsson, Íris Guðmundsdóttir, Hera Guðmundsdóttir, Haraldur Jónsson. ✝ Útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HARALDAR M. SIGURÐSSONAR íþróttakennara á Akureyri, sem andaðist 14. október, verður gerð frá Akureyrarkirkju á morgun, föstudaginn 24. október kl. 13.30. Sverrir Haraldsson, Sigurbjörg Sæmundsdóttir, Hanna Brynhildur Jónsdóttir, Einar Karl Haraldsson, Steinunn Jóhannesdóttir, Haraldur Ingi Haraldsson, Kolbrún Jónsdóttir, Jakob Örn Haraldsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengdafaðir, sonur, tengdasonur og afi, VILHJÁLMUR FENGER, Nesbala 44, Seltjarnarnesi, lést þriðjudaginn 21. október. Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík miðvikudaginn 29. október kl. 15.00. Kristín Fenger, Björg Fenger, Jón Sigurðsson, Ari Fenger, Helga Lilja Gunnarsdóttir, Borghildur Fenger, Ruth Pálsdóttir, Sigurður, Styrmir og Vilhjálmur Darri. Samkoma í kvöld kl. 20. Umsjón: Mótorhjólaklúbburinn Salvation Riders. Söngur: Herbert Guðmundsson, Iris Dögg Héðinsdóttir og Miriam Óskarsdóttir. Hjörtur A. Óskars- son verður með orð. Kaffihús föstudag frá kl. 20 í samkomusalnum. Landsst. 6008102319 X I.O.O.F. 5  18923108 Fl. I.O.O.F. 11  18910238  G.H. Félagslíf ✝ Valgerður HelgaBjarnadóttir Gott fæddist á Arn- arstapa á Snæfells- nesi 20. desember 1917. Hún lést í Grimsby 30. sept- ember síðastliðinn. Hún var dóttir Bjarna (lista)smiðs í Reykjavík Kjartans- sonar kirkjuorgan- ista, bróður dr. Jóns Þorkelssonar lands- skjalavarðar. Faðir þeirra, Þorkell Eyj- ólfsson, var prestur á Staðastað á Snæfellsnesi. Móðir Valgerðar Helgu var Þór- unn Júlíana frá Hrútafelli undir Eyjafjöllum Þorsteinsdóttir Eyj- ólfssonar bónda þar. Systkini Val- gerðar Helgu voru sex, þrjú þeirra dóu kornung. Þau sem upp komust ásamt Valgerði voru Kjartan Sig- urður, lögregluvarð- stjóri í Reykjavík, f. 9. nóvember 1906, d. 26. október 1990, og Þorsteinn Rútur sjó- maður, f. 30. mars 1911, d. 4. mars 2002. Valgerður giftist 1945 John Wilfred Gott kaupsýslu- manni, f. 28. apríl 1916, d. 7. apríl 1998. Dóttir þeirra er Yvonne, kennari í Grimsby, f. 24.4. 1954, gift Glenn Wishart, f. 14.2. 1954 börn þeirra tvö eru Sara, 2.3. 1985 og Robert, f. 26.5. 1988. Sonur Valgerðar Helgu var Bjarni Karlsson trésmiður, f. 19. október 1936, d. 19. ágúst 1995. Útför Valgerðar Helgu fór fram frá St. George’s Church í Bradley 10. október. Glæsileg, smart, brosmild, hlý, þannig mynd kemur upp í hugann er ég minnist elsku Lúllu frænku. Þegar haustið lagðist yfir landið okkar og skartaði sínum fögru lit- um kvaddi frænka okkar þetta jarðlíf. Hún lést í heimabæ sínum Grimsby 30. september. Hún gift- ist John Wilfred Gott sem starfaði hér á landi. Þau giftu sig árið 1945 í Háskólakapellunni. Valgerður Helga Bjarnadóttir, öðru nafni Lúlla, starfaði þá hjá Happdrætti Háskólans. Skömmu eftir brúðkaupið fluttust þau til Bretlands og hafa búið þar alla tíð síðan. Þau eignuðust eina dóttur, Yvonne, sem er kennari í Grimsby, hennar maður er Glenn Wishart og eiga þau tvö börn, Söru og Robert. Fyrir átti Lúlla son, Bjarna Karls- son, sem er látinn. Þrátt fyrir bú- setuna í Grimsby komu þau Lúlla og John á hverju ári til Íslands og undu sér vel í íbúðinni sem þau áttu á Þórsgötu 19 í Reykjavík. Heimili þeirra hjóna í Grimsby hef- ur alla tíð verið opið Íslendingum sem til Bretlands hafa komið í gegnum árin. Þau voru trúuð og unnu ötullega að því að safna fé til viðhalds og uppbyggingar litlu kirkjunni í Bradley St. George’s Church, en frá henni fór útför hennar fram 10. október sl. Í minningunni frá því að við systur vorum litlar voru alltaf jóla- pakkar frá Lúllu og Gott og heim- sóknir til ömmu og afa á Laugaveg 28 A. Þér þótti ofurvænt um fjölskyldu þína. Í síðustu ferðinni hans Gott til Íslands fórum við með ykkur hjónum og fjölskyldunni úti í Við- ey, vestur á Snæfellsnes á æsku- slóðir þínar, fórum í kirkjuna á Búðum og skoðuðum skírnarfont- inn sem pabbi þinn smíðaði og skar út og gaf kirkjunni, við borðuðum á Búðum og Stein tengdasonur færði ykkur sögu Búða. Á leið heim kom- um við í Borgarfjörðinn, í sum- arbústað okkar Erlings og höfðuð þið ánægju af. Við komum nokkrum sinnum á fallega heimilið ykkar. Var síðasta ferð þín hingað til Íslands til að vera við útför bróður þíns, þá orðin 84 ára. Þú ætlaðir að koma fljótt aftur því þú elskaðir landið þitt. Um leið og við þökkum Lúllu ynd- islegar samverustundir biðjum við algóðan guð að varðveita hana. Við vottum Yvonne og fjölskyldu og öllum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Við kveðjum þig með vís- unni Drengurinn litli sem dó, sem pabbi þinn orti til þín um tvíbura- bróðurinn sem dó. Ég veit um systkin svo sæl og góð og syngja vil um þau lítinn óð en ekkert þekkjast þau þó um húsið hún leikur sér út og inn. Hann einnig sér leikur um himininn. drengurinn litli, sem dó. (Bjarni Kjartansson.) Þórunn Rut Þorsteinsdóttir. Valgerður Helga Bjarnadóttir Gott Vegna mistaka birtist greinin ekki á útfarardegi Önnu Steinunn- ar. Elsku besta amma Anna. Það er svo skrítið að hugsa til þess að þú sért nú horfin á braut. Þegar hugurinn reikar aftur í tím- ann er svo margt sem maður minn- ist, öll fjölskylduboðin á Melhag- anum, hinar fjölmörgu ferðir út á land, hvort sem var í fellihýsinu góða eða í sumarbústöðum, eða bíl- túrar þar sem afi Hannes sat við stýrið og þú fræddir farþegana um allt á milli himins og jarðar og læddir kannski að okkur prins póló. Eitt er það sem þessar yndislegu minningar eiga sameiginlegt, alltaf er afi við hlið þér, enda án efa sam- rýndustu og fallegustu hjón í heimi. Það var alltaf jafn gaman að koma í Anna Steinunn Hjartardóttir ✝ Anna SteinunnHjartardóttir fæddist í Reykjavík 31. október 1917. Hún andaðist á Dvalar- og hjúkr- unarheimilinu Grund í Reykjavík aðfaranótt mið- vikudagsins 8. októ- ber síðastliðins og fór útför hennar fram frá Dómkirkj- unni í Reykjavík 20. október. heitan mat í hádeginu og það var alveg sama hvað þú eldaðir, alltaf var það gott. Svo þeg- ar var búið var að borða þá gat maður alveg bókað að verða annað hvort boðið upp á ís eða köku. Þú varst alltaf með allt á hreinu þegar það kom að úrslitum í íþróttum og þá sérstaklega hjá okkar liði, Stjörnunni. Stundum þegar eitt- hvert okkar kom í heimsókn óskaðir þú okkur til ham- ingju með sigurinn og maður þakk- aði fyrir en þorði ekki að viður- kenna að vita ekki um hvað þú varst að tala. Þá hafði eitthvað af okkar fólki verið að gera góða hluti kvöld- ið áður og þú varst fyrst með frétt- irnar. Elsku amma. Þó þú sért nú farin þá hættum við ekki að hugsa til þín og allra góðu stundanna sem við áttum með þér. Við kveðjum með sorg í hjarta, guð blessi þig og geymi. Í bljúgri bæn og þökk til þín, sem þekkir mig og verkin mín. Ég leita þín, Guð, leiddu mig, og lýstu mér um ævistig. (Pétur Þórarinsson.) Þín ömmubörn Hannes Ingi, Hilmar og Sólveig Guðrún. Svavar rétt náði því að verða 75 ára en var þá orðinn fársjúkur. Svavar var einstaklega rólegur að eðlisfari en hafði þó skap eins og flestir aðr- ir. Hann var góður heim að sækja og ákaflega gestrisinn eins og þau hjónin bæði. Konan hans, Sólbjört, var besta vinkona mín, við kynntumst þegar við vorum 17 og 18 ára gamlar. Hún vann þá í Tjarnarborg og ég kom þangað sem nemi í fóstur- skóla Íslands. Við urðum brátt miklar vinkonur og unnum lengi saman, fyrst í Tjarnarborg og síð- an á Laufásborg, leigðum okkur herbergi nálægt Laufásborg, þar sem við unnum. Þessi vinskapur hefur haldist síðan og í gegnum Svavar Fanndal Torfason ✝ Svavar FanndalTorfason, meist- ari í rafvélavirkjun, fæddist í Hvítadal í Saurbæ í Dalasýslu 25. september 1933. Hann lést á Land- spítalanum 28. sept- ember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Vídalíns- kirkju í Garðabæ 10. október. Sólbjörtu kynntumst við Svavari, ég og maðurinn minn, Magnús. Við hittumst oft og fórum stöku sinnum út að skemmta okk- ur. Einu sinni í Breiðfirðingabúð, en þá var skemmtun þar fyrir Vestfirðinga- félagið. Svavar var hörku- duglegur og stofnaði rafvélaverkstæði, fyrst í Reykjavík og síðan í Kópavogi og vann við þá iðn alla tíð síðan. Eftir að Svavar hætti með verk- stæðið var hann mikið heima. Þau höfðu byggt sér heimili í Garða- bænum, þar sem þau unnu öllum stundum í frítímum sínum og Svavar var mikið í garðinum, sló blettinn reglulega og hugaði að því sem gera þurfti bæði úti og inni og voru þau hjón svo sannarlega sam- hent í því að fegra heimilið sitt. Ég sendi Sólbjörtu, börnum, tengdabörnum og barnabörnum innilegar samúðarkveðjur og vona að tíminn lækni sárin. Guð blessi ykkur öll. Valborg Soffía Böðvarsdóttir. Morgunblaðið birtir minningar- greinar alla útgáfudagana. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bilum - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.