Morgunblaðið - 23.10.2008, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2008
Sudoku
Frumstig
9 7 8
7 1 9
5 9 6 1
3 6 4 8 5 7
9 1
4 7 5 1 6 9
4 8 7 6
2 5 3
9 8 6
Efsta stig
4 2 3 9
7 8 6
7 5 3 4
5 8
8 4
1 2
2 5 6 9
6 1 4
3 5 6 4
Miðstig
1 4 6 7
9 5 2
5 2
6 9 3 4
3 9 4 2 5 7 6
5 6 7 9
9 2
7 6 8
2 7 9 4
6 4 7 3 5 2 8 1 9
2 1 8 6 4 9 3 7 5
3 9 5 8 1 7 2 4 6
8 7 9 5 3 6 1 2 4
5 2 3 1 7 4 6 9 8
1 6 4 2 9 8 7 5 3
4 8 1 7 6 5 9 3 2
9 3 2 4 8 1 5 6 7
7 5 6 9 2 3 4 8 1
Lausn síðustu Sudoki.
8 7 1 3 4 9 5 6 2
6 5 9 2 7 1 8 3 4
3 4 2 6 5 8 7 1 9
4 3 5 9 6 7 1 2 8
7 9 8 1 3 2 6 4 5
2 1 6 5 8 4 3 9 7
1 8 7 4 9 3 2 5 6
9 6 3 8 2 5 4 7 1
5 2 4 7 1 6 9 8 3
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
8 4 7 3 2 5 6 1 9
5 6 3 7 9 1 2 4 8
1 9 2 4 8 6 7 3 5
2 3 1 9 5 8 4 6 7
7 8 6 1 4 3 9 5 2
9 5 4 6 7 2 1 8 3
3 7 9 8 1 4 5 2 6
6 1 5 2 3 9 8 7 4
4 2 8 5 6 7 3 9 1
dagbók
Í dag er fimmtudagur 23. október,
297. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Ef einhver þykist hafa
öðlast þekkingu á einhverju, þá þekkir
hann enn ekki eins og þekkja ber.
(I.Kor. 8, 2.)
Víkverji átti leið á Alþingi á dög-unum og þurfti að bregða sér á
salernið. Þar lenti hann í dálitlum
bobba þegar kom að því að þurrka
sér um hendurnar. Hann gat nefni-
lega valið á milli þess að nota dæmi-
gerðar pappírsþurrkur og lítinn,
mjúkan þvottapoka. Víkverja þykir
hálfgerð sóun að nota þvottapoka
bara einu sinni en á móti kom að
Víkverji reynir hvað hann getur til
að skera niður pappírsnotkun, enda
getur hún vart talist væn fyrir um-
hverfið.Víkverji komst að þeirri nið-
urstöðu að á Íslandi, þar sem raf-
magn er framleitt með tiltölulega
umhverfisvænum hætti, væri líkleg-
ast til betra að nota þvottapokann.
Víkverji hefur áður staðið frammi
fyrir svipuðu vandamáli á ferðalög-
um sínum um heiminn en á salerni í
Ástralíu hugsaði hann sig lengi um
áður en hann ákvað að nota pappír
frekar en rafmagnsknúna hand-
þurrku. Líklega er þó umhverf-
isvænst að þurrka sér bara í bux-
urnar, en þá yrði móðir Víkverja
ekki ánægð með hann.
x x x
En aftur að Alþingisklósettinu.Víkverji tók nefnilega líka eftir
því að þar stóðu dömubindi til boða.
Fyrst þótti honum þetta óttalegt
bruðl en Víkverja snerist fljótt hug-
ur. Víkverji er nefnilega gleyminn
maður og það kemur honum nánast
alltaf í opna skjöldu þegar hann
byrjar á túr. Hann á líka mjög erfitt
með að muna að taka dömubindi
með sér að heiman þessa daga mán-
aðarins og þá eru góð ráð dýr.
Víkverji hugsar til þess með hryll-
ingi að lenda í þeirri aðstöðu á vinnu-
stað sínum í Hádegismóum þar sem
ekki er hlaupið að því fyrir einn
fárra bíllausra Íslendinga að bregða
sér í búð.
Auðvitað eiga að vera dömubindi á
öllum salernum, alveg eins og kló-
settpappír. Víkverji skorar á fyr-
irtæki og stofnanir landsins að taka
Alþingi sér til fyrirmyndar í þessum
efnum. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 ágengt, 4
laumuspil, 7 kirtil, 8
skapvond, 9 væn, 11
áll, 13 skaða, 14 esp-
ast, 15 heilnæm, 17
fjöldi, 20 elska, 22
þráttar, 23 ís, 24
hlaupa, 25 hafni.
Lóðrétt | 1 högni, 2 baun-
in, 3 feiti, 4 kurteis, 5
ganga þyngslalega, 6 vind-
hani, 10 eignarjarðar, 12
vingjarnleg, 13 eldstæði,
15 tvístígur, 16 hljóðfærið,
18 hnappur, 19 tré, 20
mannsnafns, 21 skaði.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 holdgrönn, 8 gulan, 9 nötra, 10 agg, 11 arfar,
13 teiti, 15 tyfta, 18 slota, 21 lok, 22 grand, 23 arnar, 24
hlunnfara.
Lóðrétt: 2 orlof, 3 dánar, 4 rangt, 5 netti, 6 ógna, 7 tapi,
12 art, 14 ell, 15 toga, 16 fjall, 17 aldin, 18 skarf, 19 ofn-
ar, 20 aurs.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rd2 Be7 4. Bd3 c5 5.
dxc5 Rf6 6. De2 a5 7. Rgf3 0-0 8. a4 Ra6
9. e5 Rd7 10. Rb3 Raxc5 11. Rfd4
Rxd3+ 12. cxd3 Rc5 13. Rxc5 Bxc5 14.
Rf3 b5 15. 0-0 Bd7 16. axb5 Bxb5 17.
Be3 d4 18. Bf4 Dd5 19. Rg5 Be7 20. Re4
Hfc8 21. Hfd1 a4 22. Dg4 Kh8 23. Bg5
Bb4 24. Df4 Bf8 25. Dg3 a3 26. bxa3
Hxa3 27. Hxa3 Bxa3 28. h3 Db3 29. Df3
Bc6 30. He1 Bb5 31. Rd6 Bxd6 32. exd6
Db4 33. He5 Bd7 34. Be7 Kg8 35. Hg5
g6 36. Hh5 De1+ 37. Kh2 Dd2
Staðan kom upp á meistaramóti
bresku samveldanna sem lauk fyrir
skömmu á Indlandi. Stórmeistarinn Su-
rya Shekhar Ganguly (2.631) hafði hvítt
gegn alþjóðlega meistaranum Deep
Sengupta (2.454). 38. Hxh7! f5 svartur
hefði einnig tapað eftir 38. …Kxh7 39.
Dxf7+ Kh6 40. f4! 39. Hh4 Da5 40. Dg3
Kg7 41. Dg5 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Sterkar tvílita hendur.
Norður
♠G832
♥8654
♦K87
♣96
Vestur Austur
♠ÁD95 ♠K10654
♥D7 ♥103
♦D65 ♦G1032
♣G1085 ♣73
Suður
♠--
♥ÁKG92
♦Á94
♣ÁKD42
Suður spilar 6♥.
Vandinn í þessu spili er ekki sá að
skrapa saman tólf slögum, enda allir
slagirnir þrettán í boði með því einu að
leggja niður ♥Á-K. Það eru sagnir sem
hér eru til umræðu: Á hverju á suður
að opna í eðlilegu kerfi – tveggja laufa
alkröfu eða bara einu hjarta?
Báðar sagnirnar hafa sína snöggu
bletti. Gallinn við alkröfuna er sá að
það tekur tíma að koma litunum til
skila, ekki síst ef andstæðingarnir taka
upp á því að hindra í spaða. Og hættan
við rólega opnun á 1♥ er sú að sitja þar
eftir ef allir passa. Það er athyglisvert
að keppendur heimsleikanna í Kína
töldu langflestir vænlegra að opna á
1♥. Hugsuðu sem svo að einhver við
borðið myndi melda spaðann og þá
fengist annað tækifæri. Í reynd tók
norður undir hjartað og þá var leiðin í
slemmu greið.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Það mikilvægi sem þú gefur verki
þínu er það mikilvægi sem það mun hafa.
Fyrir þig er best að sjá til þess að nætur
þínar séu fullar af tónlist.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert ábyrgðarfull manneskja og
kærulaust fólk dregst að þér. Þegar þú
gerist vinur einhvers samþykkir þú að
leysa sum af vandamálum hans.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú gerir þér ekki grein fyrir
hversu stór skuldbinding þín er fyrr en þú
sérð það svart á hvítu. Þú er jafn glöð/
glaður og þú ert skipulögð/skipulagður.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Hver og einn býr yfir styrkleika. Á
næstu þremur dögum koma kraftar þínir í
ljós. Ef þú veist ekki enn hverjir þeir eru,
veistu það í lok dags.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú vilt endilega fá fólk til að taka
þátt í verkefnunum þínum, sérstaklega ef
þau snúa að því að bæta sjálfa(n) þig.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú heldur upp á þá sem fá þig til að
brosa, en ekki jafn mikið og þá sem fá þig
til að hlæja. Sá sem finnst þú fyndin(n) og
æðisleg(ur) er ómótstæðilegur.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þegar þú hefur rétt fyrir þér er auð-
velt að finna fólk sem vill standa með þér.
En þegar þú hefur rangt fyrir þér, eru
það bara þú og tryggi vinur þinn.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Lífið er orðið stórt og flókið:
of margt sem þarf að hugsa út í. Hreyfing
auðveldar allt. Farðu út að ganga, vellíð-
anin í líkama skapar frið í sálinni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú þorir að gerir eitthvað al-
veg nýtt: fara á skauta, halda partí eða
kaupa hlutabréf. Reynsluleysið gefur því
ferskan blæ og þú slærð í gegn.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Fjölskyldulífið fær sinn
skammt af lukkudufti. Þeir sem finna sér
sífellt eitthvað til að rífast um, munu finna
sér eitthvað til að dást að í sameiningu.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Stundum veistu ekki af hverju
þú gerir hlutina. Að spyrja af hverju er
bara fyrir þá sem eru óöruggir. Virtu
frekar innsæið sem þú hefur.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Dramatísk yfirlýsing er það sem
þarf. Þú sýnir að þú ert allur/öll af vilja
gerð(ur) og það fellur í góðan jarðveg, ef
þú ert til í að fórna miklu.
Stjörnuspá
Holiday Mathis
Þetta gerðist …
23. október 1954
Haukur Morthens kom fram í
einum vinsælasta þætti BBC í
London og var „söng hans í
senn útvarpað og sjónvarpað,“
að sögn Morgunblaðsins.
23. október 1955
Stytta af Héðni Valdimarssyni
var afhjúpuð við verka-
mannabústaðina við Hring-
braut í Reykjavík. Héðinn (f.
1892, d. 1948) var alþing-
ismaður, formaður Dags-
brúnar og framkvæmdastjóri
Olíuverslunar Íslands.
23. október 1963
Í Vestmannaeyjum mældist
mesti tíu mínútna meðalvind-
hraði sem vitað var um hér á
landi, 200 km á klukkustund
(samsvarar 16-17 vindstigum).
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þórir Rafn
Guðnason múr-
ari, Hraunbæ
190, er áttræður
í dag, 23. októ-
ber. Hann er að
heiman í dag en
tekur á móti
gestum laug-
ardaginn 25.
október næstkomandi í Efstaleiti 7,
frá kl. 15 til 18. Þórir afþakkar
blóm og gjafir.
80 ára
Eyjólfur A.
Magnússon, til
heimilis að
Norðurbrún 1 í
Reykjavík, er
áttatíu og fimm
ára í dag 23.
október. Eyjólf-
ur verður að
heiman á afmæl-
isdaginn.
85 ára
Örvar Jónsson verkfræðingur er þrítugur í dag og
ætlar að gera sér dagamun í tilefni þess og fer út
að borða á Pizza Hut með syni sínum, Kára Grét-
ari. „Við förum alltaf einu sinni á ári, á afmælinu
mínu. Hann tekur ekki í mál að við sleppum því,“
segir Örvar, sem gerir ráð fyrir því að fá svo sína
nánustu í heimsókn í kvöld. Framundan er svo
Danmerkurferð með nokkrum þrítugum vinum,
sem ætla að fagna áfanganum saman. Örvar hefur
litlar áhyggjur af móttökum Dana, þrátt fyrir at-
burði síðustu vikna og býst við góðri skemmtun.
Örvar starfar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Cal-
idris og hefur verið þar í um það bil ár. Honum líkar vinnan þar vel.
„Þetta er bara frábær vinnustaður,“ segir hann. Fyrirtækið smíðar
hugbúnað fyrir fluggeirann. „Við búum til hugbúnað sem flugfélög
nota og höfum selt þann hugbúnað til stórra flugfélaga úti í heimi.“
Utan vinnunnar á Örvar sér margvísleg áhugamál, bæði fjölskyldu-
og íþróttatengd. Hann hittir vini sína vikulega í innanhússfótbolta og
bregður sér í leikhús þegar hann hefur tíma. „Ég myndi vilja kalla
mig leikhúsunnanda en kemst kannski ekki nógu oft til að geta það!“
onundur@mbl.is
Örvar Jónsson fagnar þrítugsafmælinu í dag
Út að borða með syninum
Nýirborgarar
Genf Snorri Karl fæddist
31. ágúst kl. 17.58. Hann
vó 3.340 g og var 49 cm
langur. Foreldrar hans
eru Sigríður Líndal Karls-
dóttir og Veturliði Þór
Stefánsson.
Kópavogur Hilmar Ingi
fæddist 17. júlí kl. 3.46.
Hann vó 3.585 g og var 51
cm langur. Foreldrar
hans eru Kristbjörg Bald-
ursdóttir og Bernharð
Ingimundarson.
Reykjavík Lísa Margrét
fæddist 11. ágúst. Hún vó
3.840 g og var 52 cm löng.
Foreldrar hennar eru
Anna María Þorvalds-
dóttir og Jónas Hall-
dórsson.