Morgunblaðið - 23.10.2008, Qupperneq 30
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. OKTÓBER 2008
Gríðarleg reiði kraumar í Ís-lendingum. Reiði í garð út-rásarvíkinga, reiði í garð
sofandi stjórnvalda, reiði í garð
seðlabankastjóra, reiði, reiði, reiði.
Íslenskir listamenn hljóta að vera
reiðir líka, eins og aðrir, þó svo þeir
eigi kannski ekki margar milljónir
fastar í peningamarkaðssjóðum og
hafi ekki glatað milljónum með
hlutabréfakaupum í Glitni. Lista-
menn hafa flestallir, að ég tel, alla
tíð verið í kreppu, þurft að vinna
önnur störf meðfram listsköpun til
að hafa í sig og á og það naumlega.
Flestir, ekki allir, nota bene. Og ég
held að þjóðin eigi fullan rétt á því
að vera sjóðandi reið, hvað sem öllu
tali stjórnmálamanna og annarra
líður um að allir eigi að róa sig nið-
ur, að ekki sé tímabært að leita
sökudólga.
Í þessu svartnætti er ljóstíra, listinsem vonandi sprettur upp úr
allri ólgunni. Það er ekki hægt að
kvarta undan því að efniviðinn eða
yrkisefnin skorti, af nógu er að taka.
Ég er þegar farinn að hlakka til þess
að njóta listar um allt ruglið sem
einkennt hefur íslenskt samfélag
síðustu ár: Óráðsíuna, peningabrun-
ann, lúxusbílasnobbið, ofurlaunin,
snekkjurnar, einka- þoturnar, ráð-
herra og seðlabanka- stjóra fljót-
andi að feigðarósi, forseta í veislum
að mæra víkingaeðli íslenskra fjár-
glæframanna. Milljarðamæringar
hlæjandi í fínu snekkjunum sínum,
fljótandi um Karíbahafið með Dom
Perignon í annarri og Cohiba í hinni
á meðan Ísland sekkur í botnlaust
skuldafenið. Það er býsna mynd-
rænt, er ekki einhver til í að mála
svona málverk? Hver veit nema
kreppan marki upphaf nýs blóma-
skeiðs í íslenskum listum?
Eða mun þessi list reiðinnar ekkiörugglega líta dagsins ljós?
Eru Davíðs-mótmæli á Austurvelli
og við Seðlabankann eini kreppu-
gjörningurinn? Eru Íslendingar of
dofnir, of bældir, of feimnir til að fá
útrás fyrir reiðina í listsköpun?
Nei, fyrir mér er það algjörlega
óhugsandi. List kreppureiðinnar
hefur þegar skotið rótum. Dæmi um
það eru nýjustu afurðir rapparans
Blazroca, þ.e. Erps Eyvindarsonar,
listamanns sem lætur í sér heyra og
er óhræddur við að tjá skoðanir sín-
ar. Nú er ég ekki að segja að aðrir
listamenn séu hræddir við það, síður
en svo. Ég spái því einfaldlega að
meiri ólga verði í listsköpun, meiri
ádeila, meiri pólitík. Meira að segja
fílgúdd-gæjarnir í Sálinni hans Jóns
míns geta ekki orða bundist, hafa
sent frá sér lag þar sem stöðutákn
síðustu ára, Range Rover, kemur við
sögu.
En aftur að Erpi. Nýjasta mynd-
bandið hans, við lagið ,,Hleraðu
þetta“, býður upp á einhverja flott-
ustu byrjun sem ég hef séð í háa
herrans tíð, kyrrmynd sem segir svo
sannarlega meira en þúsund orð. Á
skjánum birtist forsætisráðherra Ís-
lands, Geir H. Haarde, í þann mund
að fara að flytja ávarpið ægilega um
sökkvandi þjóðarskútu, brimrótið,
brimskaflinn ógurlega, öldudalinn,
lífróðurinn … er Geir gamall tog-
arajaxl? Geir setur upp gaddfreðið
bros sem nær ekki hálfa leið til
augnanna, enda ekki furða miðað
við dómsdagsræðuna sem fylgdi í
kjölfarið. Yfir frosinni mynd af
frosnu brosinu birtist svo textinn
,,Við erum öll fukt!“. Fullmikið sagt,
og þó?
Blazroca spyr að því hvað gerist
þegar Babýlon fellur? Það veit svo
sem enginn, en breytt þjóðfélag
hlýtur að hafa áhrif á listsköpun
innan þess. Menn hljóta að velta því
fyrir sér hvort Ísland sé virkilega
,,stórasta“ land í heimi og, ef svo er,
hverju megi þakka ógnarstærðina.
Koma peningar þar við sögu?
helgisnaer@mbl.is
Þegar Babýlon fellur
AF LISTUM
Helgi Snær Sigurðsson
»Meira að segja fíl-gúdd-gæjarnir í Sál-
inni hans Jóns míns
geta ekki orða bundist.
Morgunblaðið/Frikki
Líkamstjáningin lýgur ekki Starfsmenn Elko fylgjast með ræðu Geirs H. Haarde í sjónvarpinu.
Sími 462 3500
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Borgarbíó
Þú færð 5 %
endurgreitt
í Háskólabíó
650 kr. fyrir fullorðna
- 550 kr. fyrir börn
650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR
ÓDÝRT
Í BÍÓ
Í REGNBO
GANUM
Sími 551 9000Þú færð 5 %
e n d u r g r e i t t
í Regnboganum
Bangkok Dangerous kl. 5:30 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
House Bunny kl. 6 - 8:20 - 10:30 LEYFÐ
Burn after Reading kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára
Pineapple Express kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára
Step Brothers kl. 5:45 B.i. 12 ára
650k
r.
650k
r.
Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga
SÝND SMÁRABÍÓI,
S.V. MBL
SÝND Í SMÁRARBÍÓI
650k
r.
HÖRKUSPENNA FRÁ
UPPHAFI TIL ENDA
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE
650k
r.HÚN MUN UPPLIFA
ÞAÐ SEM ENGIN
PLAYBOY KANÍNA
HEFUR UPPLIFAÐ
ÁÐUR ...
... HÁSKÓLA!
SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI
HUGLJÚF OG SKEMMTILEG MYND UPPFULL AF FRÁBÆRUM LEIKKONUM
MYND SEM ALLAR KONUR VERÐA AÐ SJÁ
MAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR!
ENGIN MISKUNN. BARA SÁRSAUKI!
SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI
The Women kl. 5:30 - 10:30 LEYFÐ
Max Payne kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára
Hamlet 2 kl. 10:15 B.i. 7 ára
Reykjavík Rotterdam kl. 5:40 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára
Mamma Mia kl. 5:30 - 8 LEYFÐ
FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE
SÝND Í SMÁRARBÍÓI OG BORGARBÍÓI
HÚN MUN UPPLIFA ÞAÐ SEM ENGIN
PLAYBOY KANÍNA HEFUR
UPPLIFAÐ ÁÐUR ...
... HÁSKÓLA!
Max Payne kl. 8 - 10 B.i.16 ára
Reykjavík Rotterdam kl. 8 B.i.14 ára
House Bunny Síðustu sýningar kl. 6 - 10 LEYFÐ
Skjaldbakan og Hérinn 650 kr. fullorðnir - 550 kr. börn kl. 6 LEYFÐ
650k
r.
- S.V., MBL -T.S.K., 24 STUNDIR
-TOMMI, KVIKMYNDIR.IS - L.I.B.,TOPP5.IS/FBL
- Þ.Þ., DV
650k
r.
650 kr. fyrir
fullorðna
- 550 kr. fyrir
börn