Fréttablaðið - 08.05.2009, Side 4
4 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
SIGIN GRÁSLEPPA
SUSHI
NÝR KRÆKLINGUR
EFNAHAGSMÁL Forsvarsmenn ASÍ
og Samtaka atvinnulífsins (SA)
fagna því að stýrivextir Seðla-
bankans hafi lækkað um 2,5 pró-
sent í gær, en eru sammála um að
lækkunin hafi verið of lítil.
„Þetta er eins og ég óttaðist en
ekki eins og ég vonaðist til,“ segir
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Hann segir jákvætt að Seðlabank-
inn taki stærra skref en síðast, en
ASÍ telji að ástæða hefði verið til
þess að lækka stýrivextina mun
meira.
Yfirlýsing peningastefnunefnd-
ar Seðlabankans um að von sé á
frekari vaxtalækkunum í júní mun
hafa jákvæð áhrif, að mati Gylfa.
Það dragi úr vonleysi að horfur séu
á verulegum lækkunum á næstu
tveimur til fjórum mánuðum, eins
og seðlabankastjóri hafi upplýst
á fundi með fulltrúum ASÍ og SA
í gær. Þá geti fyrirtæki farið að
undirbúa framkvæmdir með von
um betri tíð á næstunni.
„Þetta er stórt skref fyrir Seðla-
bankann en mjög lítið skref fyrir
atvinnulífið,“ segir Þór Sigfússon,
formaður SA. Einnig skipti veru-
legu máli að lofað sé kröftugri
lækkun í júní haldi spár bankans.
„Þessi aðgerð kemur ekki í veg
fyrir að fyrirtækjunum í landinu
haldi áfram að blæða út,“ segir Þór.
Vextirnir þurfi að komast undir tíu
prósent sem fyrst, og helst lægra.
Vandinn með háa vexti sé sá að þá
borgi sig frekar að geyma peninga
í banka en að fjárfesta, sem skapi
vítahring þar sem fyrirtæki fái
ekki fjármagn.
„Ef menn lækka vexti í um það
bil fimm prósent er líklegra að
þeir sem eigi peninga fari að huga
að framkvæmdum, bankarnir eru
yfirfullir af fjármunum,“ segir
Þór.
Gylfi segir augljóst að Seðla-
bankanum muni ganga illa að fá
erlenda aðila sem eigi fjármuni
hér á landi til að breyta krónun-
um í evruskuldabréf. Seðlabank-
inn hefur kynnt slíka leið til að
losa um meðal annars svokölluð
jöklabréf.
Ástæðan er sú að meðan vextir
eru mun hærri hér en á evrusvæð-
inu borgi sig ekki fyrir fjármagns-
eigendurna að skipta eignum
sínum í evrubréf því bankavext-
irnir séu svo háir hér á landi.
Réttara væri að nota tímabil
gjaldeyrishafta til að lækka vexti
hér hratt og mikið, þannig að ekki
sé meira en fjögurra prósenta
munur á Íslandi og evrusvæðinu.
brjann@frettabladid.is
Yfirlýsing dregur úr
vonleysinu segir ASÍ
ASÍ og SA eru sammála um að vaxtalækkun Seðlabankans sé jákvæð, en ganga
hefði átt lengra. Kemur ekki í veg fyrir að fyrirtækjum blæði út, segir formaður
SA. Kemur í veg fyrir að hægt sé að losa um jöklabréfavandann að mati ASÍ.
EFNAHAGSMÁL Gauti Eggertsson,
hagfræðingur við Seðlabankann
í New York, segist stöðu sinnar
vegna ekki vera í aðstöðu til að
ræða um stýrivaxtalækkun gær-
dagsins. Hún sé þó skref í rétta
átt.
Á heimasíðu sinni fjallar Gauti
hins vegar um hegðun stjórn-
málamanna í vaxtaákvörðunar-
ferlinu.
„Það er vondur siður ef
íslenskir stjórnmálamenn ætla að
fara að taka upp á því að lýsa því
yfir hverju þeir búast við þegar
Seðlabankinn tekur vaxtaákvarð-
anir, jafnvel daginn áður en slík-
ar ákvarðanir eru teknar,“ segir
þar. Gild rök séu fyrir því að
þær séu ekki teknar á vettvangi
stjórnmálanna. - kóþ
Gauti B. Eggertsson:
Stjórnmálafólk
tjái sig ekki
EFNAHAGSMÁL Seðlabankinn verð-
ur að vera varfærinn, en með 2,5
prósentustiga stýrivaxtalækkun
er of varlega farið miðað við það
neyðarástand
sem er í efna-
hagsmálum,
segir Þór Saari,
þingmaður
Borgarahreyf-
ingarinnar.
„Mér fannst
lækkunin of
lítil, þetta er
hvorki í sam-
ræmi við verðbólgu né verðbólgu-
horfur,“ segir Þór. Ekki sé verið
að leyfa almenningi að njóta góðs
af því þótt aðstæður fyrir vaxta-
lækkun hafi skapast. - bj
Þingmaður Borgarahreyfingar:
Of varlega farið
í vaxtalækkun
ÞÓR SAARI
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
24°
14°
23°
22°
14°
15°
21°
19°
16°
16°
21°
15°
24°
33°
12°
17°
22°
12°
Á MORGUN
8-13 m/s austanlands
annars hæglætisveður
MÁNUDAGUR
5-10 m/s
7
5
1
3
1
3
5
8
12
8
2
10
15
15
15
10
6
10
13
15
8
10
6
4 1
1
7 8
6 8
10
10
HELGARHORFUR
Þótt hvasst sé víða á
landinu í dag lægir
í nótt, fyrst vestan
til. Á morgun verður
hæg norðvestlæg eða
breytileg átt en þó
áfram stíf norðvestan
átt allra austast. Lægir
smám saman. Víðast
nokkuð bjart veður
sunnan- og vestan-
lands annars skýjað
og þurrt. Hiti 0-8
stig, mildast SA-til.
Á sunnudag verða
suðvestan 5-10 m/s
með skúraveðri, sýst
fyrir austan. Milt.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
Settur verður af stað nýr vinnuhópur fulltrúa Seðlabankans, ASÍ og Samtaka
atvinnulífsins (SA) til að greina stöðuna, segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ.
Svein Harald Øygard seðlabankastjóri bauð forsvarsmönnum ASÍ og SA að
taka þátt í vinnuhópnum á fundi eftir að vaxtaákvörðun bankans hafði verið
kynnt í gær.
„Við horfum með mikilli jákvæðni til breytts fyrirkomulags,“ segir Gylfi.
„Fyrri bankastjórn vildi hafa mjög lokað ferli um sínar vaxtaákvarðanir og
neitaði formlegu samstarfi þar sem hún taldi það raska sínu sjálfstæði. Það er
mikið fagnaðarefni að seðlabankastjóri taki svona á þessu máli og ástæða til
að þakka það,“ segir Gylfi.
BJÓÐA ASÍ OG SA Á RÖKSTÓLA
GYLFI ARNBJÖRNSSON ÞÓR SIGFÚSSONEFNAHAGSMÁL „Ég tel að vextir
eigi að vera mun lægri en þetta,“
segir Bjarni Benediktsson, for-
maður Sjálfstæðisflokks.
„Það er eins
og Seðlabank-
inn bíði eftir
skýringum frá
ríkisstjórn-
inni. Bankinn
gerir ráð fyrir
skattahækkun-
um, sem vekur
spurningar um
hvort milli rík-
isstjórnar og
AGS hafi tekist samkomulag um
þetta.“ AGS kunni að halda aftur
af vaxtalækkunum.
„Ef maður horfir á gríðarlegan
vaxtamun milli Íslands og evru-
svæðisins og að viðbættum gjald-
eyrishöftum, þá skilur maður
ekki þær röksemdir til fulls,
[að háir vextir haldi uppi gengi
krónu].“ - kóþ
Bjarni Benediktsson:
AGS hindri
frekari lækkun
EFNAHAGSMÁL „Það má færa rök
fyrir því að svona háir vextir
veiki krónuna frekar en hitt, enda
stafi veikingin að miklu leyti af
háum vaxtagreiðslum til erlendra
krónubréfaeigenda,“ segir Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknar.
Háir vextir
hafi ekki dugað
til að styrkja
krónu hingað
til og til lengri
tíma séð séu
lægri vextir
líklegri til þess,
og til að styrkja
efnahagslífið
yfir höfuð.
„Þetta er allt
of lítið, allt of
seint. En það er gott að þetta sé
í rétta átt. Ég skil bara ekki að
ekki sé búið að lækka þá meira,
eins og í öðrum löndum.“ - kóþ
Sigmundur Davíð:
Háir vextir
lækki gengið
EFNAHAGSMÁL Seðlabanki Evrópu
tilkynnti um stýrivaxtalækkun í
gær. Vextir lækka niður í eitt pró-
sent, en þeir voru áður 1,25 pró-
sent. Um leið verður 60 milljörð-
um evra dælt út í hagkerfin með
skuldabréfakaupum.
Þetta er í sjöunda skipti sem
seðlabankinn lækkar vexti síðan
í október 2008, þegar þeir voru
4,25 prósent. Jean-Claude Tri-
chet, bankastjóri Evrópska seðla-
bankans, útilokar ekki frekari
vaxtalækkanir á næstunni.
Gengi evru hækkaði gagn-
vart dollara, eftir tilkynninguna.
Stýrivextir í Bandaríkjunum eru
á bilinu 0 til 0,25 prósent. - kóþ
Stýrivextir evru aldrei lægri:
Eins prósents
vextir í Evrópu
EFNAHAGSMÁL „Ég fagna því að Seðlabankinn taki
þetta myndarlega skref, og ekki síður að hann
hvetji bankana til að fara jafnvel enn hraðar niður
með vexti,“ segir Steingrímur J. Sigfússon fjár-
málaráðherra.
Seðlabankinn tilkynnti í gær um 2,5 prósentu-
stiga lækkun á stýrivöxtum, niður í 13 prósent
úr 15,5 prósentum. Bankinn boðaði einnig vaxta-
lækkun á næsta vaxtaákvörðunardegi í júní.
„Vaxtalækkunarferlið er hratt, sem er mjög
ánægjulegt, þótt eftirvæntingin eftir lægri vöxt-
um sé enn mjög mikil,“ segir Steingrímur.
Hann segir einnig jákvætt að bankinn kveði fast
að orði um væntanlega vaxtalækkun eftir innan
við mánuð.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gaf
ekki kost á viðtali í gær.
- bj, kóþ
Fjármálaráðherra fagnar boðaðri vaxtalækkun í næsta mánuði:
Myndarlegt skref í rétta átt
STEINGRÍMUR JÓHANN SIGFÚSSON Fjármálaráðherra er
ánægður með hratt vaxtalækkunarferli Seðlabankans, en segir
miklar væntingar eftir frekari lækkunum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SIGMUNDUR DAVÍÐ
GUNNLAUGSSON
BJARNI
BENEDIKTSSON
GENGIÐ 06.05.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
206,6519
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
126,08 126,68
190,22 191,14
167,79 168,73
22,524 22,656
19,164 19,276
15,785 15,877
1,281 1,2884
189,15 190,27
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR