Fréttablaðið - 08.05.2009, Blaðsíða 48
28 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Humpty! Komdu þér
niður... þú ert búinn að
drekka allt of mikið!
Settu þetta
á þig!
Svo þú ert
fljúgandi
íkorni? Jamm.
Það hlýtur
að vera það
skemmtilegasta í
heimi að fljúga! Nei.
Það er að lenda.
Hæ elskan,
hvað gerðirðu
í dag?
Gettu.
TEACH...
YOUR CHILDREN WELL...
THEIR FATHERS´H...
Pabbi, þetta er
hræðilegt. Skiptu
um
disk!
Crosby, Stills,
Nash og Jón.
Simon og
Jónfunkel.
HELLO LAMPPOST,
WHACHA KNOWING?
I´VE COME TO
WATHC YOURS
FLOWERS
GROWIN´...
Hikk Hikk
Ég veit ekki hversu margir listar yfir „bestu plötur allra tíma“ hafa verið búnir til í gegnum tíðina, en þeir hljóta
að skipta zilljónum. Oftast nær er hægt að
hafa nördalegt gaman af svona listum, en
varasamt að taka þá alvarlega eða persónu-
lega. Þeir eiga nefnilega til að verða dálítið
skrýtnir þegar í þá er rýnt, og hygla óeðli-
lega mikið þeim afurðum dægurmenningar-
innar sem þykja svalar þá stundina en ekki
par fínar árið eftir. Efstu sætin á lista yfir
bestu plötur allra tíma sem HMV-plötubúða-
keðjan tók saman fyrir fáum árum litu til
dæmis svona út:
1. The Beatles - Revolver
2. Beach Boys - Pet Sounds
3. Marvin Gaye - Let‘s Get It On
4. Robbie Williams - Life
Thru a Lens
5. The Clash - London Calling
Einhvern veginn finnst mér ólík-
legt að Robbie myndi skora svona hátt í dag.
Þessar vikurnar stendur yfir kosning
á bestu plötum Íslandssögunnar. Í fljótu
bragði er erfitt að segja til um hverri af
þeim hundrað plötum sem valið stendur um
verði hlegið að þegar næsti listi verður tek-
inn saman, en kandídatarnir eru nokkrir.
Það sem vekur þó athygli er að á þessum
hundrað platna lista má finna fimm barna-
plötur. Það hlýtur að teljast verulega hátt
hlutfall, sé miðað við fjölda útgefinna barna-
platna og „fullorðins“ platna.
Ástæðan er án efa sú að þessar plötur;
Eniga meniga, Abbababb!, Lög unga fólks-
ins, Einu sinni var og Gilligill, eru frábær-
ar. Allar höfða þær til breiðs hlustendahóps
og sumar lýsa samfélaginu á hverjum tíma
betur en margt sem ætlunin var að yrði
tekið alvarlegar. Ég set Eniga meniga í efsta
sæti. Fast á hæla hennar kemur svo Ekki
enn með Purrki Pillnikk.
Lög unga fólksins
NOKKUR ORÐ
Kjartan
Guðmundsson