Fréttablaðið - 08.05.2009, Page 16
16 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
Stefán hefur gert lista yfir rúm-
lega fimmtíu fjöll sem hann ætlar
að hlaupa á tíu árum. „Ég vil helst
ekki klára þetta strax af því að ég
vil halda þessari pressu en ég miða
við fimm á ári. Ég tók þrjá vegi
2007 og sjö í fyrra. Ég er því búinn
að hlaupa tíu af þessum fimmtíu.
Listinn er samt ekki endanlega nið-
urnegldur, ég er enn að velta fyrir
mér nýjum leiðum sem mér hefur
verið bent á. Ég hef á tilfinning-
unni að þegar upp er staðið verði
þetta fleiri leiðir. Kannski tekur
maður einhvern tíma saman lista
yfir topp 50. Það er til svo mikið af
leiðum sem væri gaman að fara.“
Við val á hlaupaleiðum hefur
Stefán fjórar viðmiðanir; lengd-
in þarf að vera 10-55 kílómetrar
þó að Arnarvatnsheiði, sem er 70
kílómetrar, sé á listanum, leiðirnar
þurfa að tengja saman tvo áhuga-
verða staði og mega gjarnan vera
gamlar þjóðleiðir eða póstleiðir
með sögu því að hluti af skemmt-
uninni er að grúska í sögunni og
svo mega þetta vera fáfarnir bíl-
vegir á jaðri vegakerfisins. „Ég
reyni líka að dreifa þessu um land-
ið,“ segir hann.
Þrjú hlaup eru Stefáni minnis-
stæð. Laugaveginn segir hann sér-
staka leið, langt og líkamlega erfitt
keppnishlaup. Í fyrra fór hann frá
Ólafsfirði til Siglufjarðar. Í Rauð-
skörðum milli Ólafsfjarðar og
Héðinsfjarðar lenti hann í miklum
ógöngum dagana eftir að ísbjörn-
inn hafði verið á vappi í Skagafirð-
inum.
„Ég fann ekki réttu leiðina upp
þrátt fyrir góðra manna ráð og
lenti í sjálfheldu í klettum. Ég hef
oft verið með einhverja með mér
en þarna var ég einn og þetta var
mjög óþægilegt, líka vegna þess að
ekkert farsímasamband er í Héð-
insfirði og því ekki hægt að láta
vita af sér. Ég ætlaði ekki að vera
meira en fimm tíma, annars ætti
að fara að leita að mér og af því að
ég tafðist svo mikið þá náði ég ekki
þessum tímamörkum en var kom-
inn í símasamband þannig að ég
gat látið vita af mér og það slapp.“
Í september fór ég ásamt fjór-
um öðrum yfir Gaflfellsheiði, frá
Ljárskógum við Búðardal norð-
ur hálendið milli Hrútafjarðar og
Dala og niður í Bitrufjörð. „Þetta
var á 100 ára ártíð pabba. Pabbi
dó árið 2000 og ég og bróðir minn
höfum reynt að hlaupa alltaf góða
vegalengd á fæðingardegi hans.
Hann ólst upp á Brunngili, innst
í Bitrufirði, þar sem leiðin kemur
niður. Við fengum vont veður, mik-
inn mótvind alla leið, þoku og rign-
ingu. Við vorum orðin mjög þreytt
og slæpt. Þetta var erfið leið og tók
langan tíma. Maður fór að hugsa
um það eftir á að við svona aðstæð-
ur deyr maður ef maður getur ekki
haldið áfram.“ ghs@frettabladid.is
„Það er allt fínt að frétta af mér. Ég klára prófin
í næstu viku og það er það skemmtilegasta við
vorið. Svo hrúgast verkefnin inn hjá fyrirtækinu
sem ég stofnaði fyrir skömmu ásamt tveimur
vinum mínum,“ segir Hilmar Hilmarsson, fram-
kvæmdastjóri textaráðgjafar- og þýðingarfyrir-
tækisins Morfem ehf. og nemi í almennum
málvísindum við Háskóla Íslands. „Það er
nóg að gera hjá okkur. Tveir okkar eru í
þessu í fullu starfi og sjálfur er ég í hálfu
starfi með náminu. Auk þess erum við
með nokkurn fjölda verktaka í vinnu fyrir
okkur við tilfallandi verkefni.“
Að sögn Hilmars tekur Morfem að
sér þýðingar, yfirlestur og textaráð-
gjöf fyrir fyrirtæki, stofnanir og
einstaklinga. „Við vorum allir
atvinnulausir og þótti því grá-
upplagt að gera eitthvað í mál-
unum og stofna fyrirtæki þar sem reynsla okkar
og menntun nýttist. Við byrjuðum á því að leigja
okkur skrifstofuhúsnæði og síðan hefur þetta
gengið vonum framar. Til að mynda bjóðum við
námsmönnum upp á yfirlestur á ritgerðum og
sú þjónusta hefur notið mikilla vinsælda.“
Hilmar segist ánægður með þá ákvörð-
un að boðið verði upp á sumarnám við
Háskólann í sumar, og ætlar að nýta sér
það. „Það er gott að geta flýtt náminu
með þessum hætti, og auðvitað eru
þetta mjög góðar fréttir fyrir alla þá sem
annars hefðu séð fram á atvinnuleysi í
sumar.“
Hilmar fer ekki út fyrir land-
steinana í sumarleyfi. „Ég fór á
tvenna tónleika með AC/DC
í Svíþjóð í mars. Það nægir í
bili,“ segir Hilmar.
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? HILMAR HILMARSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI OG NEMI
Skrifar og fer yfir ritgerðir ■ Borðspilið sívinsæla Lúdó er ein-földuð útgáfa af leiknum Pachisi, sem
fyrst er vitað um að hafi verið leikinn
á Indlandi á sjöttu öld eftir Krist. Lúdó
nýtur vinsælda víða um heim, en kall-
ast þó ekki sama nafni í öllum lönd-
um. Til að mynda kallast Lúdó „Fia“ í
Svíþjóð, „Ludi“ á eyjunum í Karíbahaf-
inu og „Mensch ärgere dich nicht“ í
Þýskalandi. Ef rokkhljómsveitin Lúdó
og Stefán hefði orðið til í Rostock en
ekki í Reykjavík hefði sveitin því að
öllum líkindum verið skýrð „Mensch
ärgere dich
nicht und Step-
han“. Frændur
okkar Danir
nota hugtakið
„Ludoman“ yfir
langt leidda
fjárhættuspilara.
LÚDÓMANÍA
Stefán Gíslason, hlaupari
og umhverfisfræðingur,
gaf sjálfum sér í fimmtugs-
afmælisgjöf árið 2007 að
hlaupa fimmtíu fjallvegi á
tíu árum, eða fimm á ári.
Nú tveimur árum síðar er
hann búinn að hlaupa tíu
fjallvegi og ætlar að ljúka
minnst fimm til viðbótar í
sumar.
„Mér datt þetta í hug nokkrum
mánuðum áður en ég átti afmæli.
Ég hugsaði þetta þannig að annað-
hvort biði manns hægfara aftur-
för hvað líkamlegt atgervi varðar,
og jafnvel andlegt líka, eða maður
gerði eitthvað í því til að treina
skrokkinn sem lengst. Þetta kallast
að búa sér til tilgang,“ segir Stefán
Gíslason, hlaupari og umhverfis-
fræðingur í Borgarnesi.
Gísli hefur hlaupið í áratugi og
farið í götuhlaup endrum og sinn-
um „en með því að gera eitthvað
svona meira afmarkað og sérstakt
og láta alla vita af því þá var ég
búinn að búa til pressu á mig. Mér
fannst að ég ætti kannski að gera
eitthvað svona á þessum „tímamót-
um“. Reyndar hafði blundað í mér
í mörg ár að reyna að búa mér til
ástæðu til að vera meira úti í nátt-
úrunni og hlaupa á fjöll en hafði
alltaf nóg annað að gera en að fara
í egóflippi að hlaupa yfir fjöll.“
VIL EKKI KLÁRA STRAX „Ég vil helst ekki
klára þetta strax,“ segir Stefán Gíslason,
fjallvegahlaupari úr Borgarnesi.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Gaf sjálfum sér 50 fjallvegahlaup
Vesturgatan
25 km
Selárdalsheiði
17 km
Miðvörðuheiði
20 km
Þingmannaheiði
23 km
Jökulháls
18 km
Svínaskarð
18 km
Laxárdalsheiði
26 km
Krossárdalur
11 km
Gafl fellsheiði
38 km
Sópandaskarð
39 km
Laugavegurinn
55 km
Eskifjarðarheiði
19 km
Brekkugjá
14 km
Hólsskarð
16 km
Rauðskörð
12 km
FJALLVEGAHLAUP STEFÁNS
Stefán Gíslason hefur hlaupið tíu fjall-
vegahlaup frá 2007 og að minnsta kosti
fimm bíða hans í sumar. Hann hleypur
fáfarnar leiðir sem gjarnan eiga sér
einhverja sögu því hluti af gamninu er að
grúska í sögunni. Hann hefur oft félags-
skap annarra hlaupara á leiðinni.
* Blái liturinn sýnir þær leiðir sem
Stefán ætlar að ganga í ár.
Svarti liturinn sýnir þær leiðir sem
hann hefur gengið hingað til.
LENTI Í SJÁLFHELDU Stefán lenti í sjálfheldu í klettunum í Rauðskörðum en hann
beygði of snemma af leið, rétt áður en hann kom upp á brúnina. MYND/ÚR EINKASAFNI
Verra en fyrirlitna
landið
„Mikil líkindi eru með prest-
unum, þegar þeir tala um
fyrirheitna landið, og orðum
Samfylkingarmanna um
Evrópusambandið.“
HALLDÓR BLÖNDAL, FYRRVERANDI
ALÞINGISMAÐUR
Morgunblaðið 7. maí
Dáleiðsla 101
„Pendúll skoðana hefur nú
enn á ný sveiflast í þá átt,
að fara eigi til viðræðna við
Evrópusambandið um aðild.“
BJÖRN BJARNASON, FYRRVERANDI
ALÞINGISMAÐUR
bjorn.is 7. maí
Tónlistarmaðurinn Bubbi Mort-
hens hefur oft tjáð sig um málefni
landsbyggðarinnar og sjávarút-
vegsins en hvað finnst honum um
fyrningarleið-
ina svoköll-
uðu og þann
farveg sem
það mál er
að fara?
„Staðan er
þessi, hvort
sem mönn-
um líkar betur eða verr, kvótinn er
fastur á fárra manna höndum og
það verður ekkert gert í þessum
málum. Fyrningarleiðin er ekkert
annað en kattarþvottur nú þegar
þetta er sett fram tveimur áratug-
um of seint.“
Heldur þú að þetta hafi verið
kosningabrella hjá stjórnarflokkun-
um að setja hana á dagskrá? „Nei,
ég tel að Jóhanna og Steingrímur
hafi talið að þetta væri eitthvað
sem vert væri að berjast fyrir en
það breytir því ekki að kvótakerf-
inu fæst ekki breytt, það þyrfti
byltingu til.“
Verður þetta kvótakerfi til eilífð-
arnóns? „Maður ætti nú ekki að
tala um að neitt kerfi vari til eilífð-
ar, það er nú eitt af því sem þetta
bankahrun hefur kennt okkur.“
SJÓNARHÓLL
FYRNINGARLEIÐIN
Fyrningarleið
er alveg ófær