Fréttablaðið - 08.05.2009, Qupperneq 32
6 föstudagur 8. maí
Ólöf Jara Skagfjörð
Valgeirsdóttir hefur
sjaldan gengið í gegnum
aðrar eins annir. Í miðj-
um stúdentsprófum í
Versló æfir hún hlutverk
Sandyar fyrir söngleikinn
Grease, leikur í fjórum
til sex sýningum á viku í
Kardimommubænum og
er auk þess að flytja að
heiman.
Viðtal: Júlía Margrét
Alexandersdóttir
Ljósmyndir: Vilhelm Gunnarsson
P
abbi tjáir sig nú ekki
mikið um yfirvofandi
flutninga. Mamma er
voða spennt en hefur
þó blendnar tilfinn-
ingar og segir öðru hvoru að hún
vilji ekki að ég fari. Ég hef þær til-
finningar líka svo sem sjálf. Kann
vel við mig heima hjá mömmu og
pabba,“ segir Ólöf Jara. Foreldr-
ar Ólafar eru Guðrún Gunnars-
dóttir söngkona og Valgeir Skag-
fjörð leikari og fetar Ólöf Jara nú
í fótspor þeirra beggja með því að
sameina leik og dans í söngleikja-
forminu. „Ég hef samt aldrei leik-
ið neitt tengt þeim og ég hef allt-
af viljað gera hlutina á eigin for-
sendum. Þannig að þegar kemur
að því að fá tilsögn frá þeim og
slíkt er ég mjög þrjósk og vil það
helst ekki. Þau hafa líka lagt á það
áherslu í uppeldinu; að ýta undir
sjálfstæði mitt. Þannig var aldrei
neinum áhugamálum eða tóm-
stundum haldið að mér.“
ÍSLANDSMEISTARI Í FÓT-
BOLTA
Ólöf Jara er úr Kópavogi, fædd árið
1989 og segir að tvennt hafi eink-
um átt tíma hennar sem krakka;
píanónám og fótboltaæfingar. Hún
æfði með Breiðabliki allt þangað
til hún byrjaði í Versló. „Jú, við
vorum mjög góðar, við urðum Ís-
landsmeistarar og bikarmeistar-
ar og höfðum mikinn metnað. Ég
hafði hins vegar alltaf brennandi
áhuga á söngleikjum og þar sem
að mamma vann á Stöð 2 vorum
við með stöðina sem sýnir gömlu
klassísku myndirnar. Singing in
The Rain var í miklu uppáhaldi.
Ætli ég hafi ekki svolítið gamal-
dags smekk. En þegar kom að því
að velja menntaskóla þá valdi ég
að fara í Verslunarskólann og þá
fyrst og fremst af því að mig lang-
aði til að taka þátt í söngleikjun-
um þar.“
Ólöf Jara hefur tekið þátt í
öllum söngleikjum Verslunar-
skólans nema þeim sem er nú í
ár enda var nóg að gera í öðru og
hún segist ekki hafa verið spennt
fyrir þemanu núna með David
Bowie. Söngleikirnir reyndust
henni örlagaríkir því bæði kynnt-
ist hún kærastanum sínum í pruf-
unni fyrir söngleikinn á fyrsta ári
hennar í Versló: Á tjá og tundri, og
Selma Björnsdóttir varð á henn-
ar vegi þar þegar hún leikstýrði
fyrir tveimur árum söngleik árs-
ins. „Kærastinn minn, sem ég er
einmitt að byrja að búa með núna
í fyrsta skipti, var þarna sjálf-
ur í prufum fyrir söngleikinn og
við lékum þarna saman. Hann er
núna á fyrsta ári í leiklistarskól-
anum.“
16 ÁRA Á FÖSTU, 20 ÁRA Í
SAMBÚÐ
Kærasti Ólafar Jöru heitir Sig-
urður Þór Óskarsson og fékk líka
hlutverk í Grease. Hann leikur þó
ekki ástmann hennar heldur einn
besta vin Danny. „Nei, hann kipp-
ir sér ekkert upp við það að horfa
upp á mig leika þarna í ástarsen-
um á móti öðrum. Hann veit alveg
hvernig þetta virkar enda sjálfur í
leiklistarnámi. Við erum afar náin
og góðir vinir enda búin að vera
saman síðan ég var 16 ára og hann
17 ára. Það er mikil tilhlökkun í
okkur að flytja á Laugaveginn og
leigja þar saman,“ segir Ólöf Jara.
Hún segist líka sjá það í hilling-
um að fá að hafa dótið sitt í friði
fyrir yngri systrum sínum tveim-
ur sem eru afar hrifnar af því að
máta fötin hennar og prófa máln-
ingardótið.
Ólöf Jara fór ekki í almennar
prufur fyrir Grease heldur hringdi
leikstjórinn Selma Björnsdótt-
ir beint í hana og bað hana að
koma í sjónprufur. „Selma þekkti
mig bæði úr Versló og svo hef ég
verið hjá henni í Gosa og Kardi-
mommubænum.“ Er hún hörð
í horn að taka? „Nei,nei. Hún er
mjög ákveðin manneskja sem veit
hvað hún vill en hún setur hlut-
ina aldrei leiðinlega fram, er mjög
geðgóð og er ótrúlega skipulögð.
Öguð vinnubrögð hennar henta
leikhúsinu mjög vel.“ Ólöf Jara sá
báðar uppfærslurnar á Grease hér
á landi, árið 1998 og 2003, og seg-
ist hafa verið mjög hrifin. Lögin
séu þannig að maður verði ekki
leiður á þeim og skemmtileg-
ar persónur séu í verkinu. Verkið
verður frumsýnt 11. júní. Er erf-
itt að leika Sandy? „Já, þótt það
hljómi kannski ótrúlega, en þá
þarf maður talsvert að hafa fyrir
því að leika svo einlæga og blá-
eyga manneskju sem Sandy er. Jú,
ég finn að vísu töluvert af Sandy
í sjálfri mér en ég hugsa að ég sé
aðeins meiri töffari, svona eins og
hún verður þegar á líður.“
FÓLK HISSA AÐ ÉG HAFI
ALDREI SMAKKAÐ VÍN
Ólöf Jara er staðráðin í því að
þreyta inntökupróf í leiklistar-
deild Listaháskólans næsta vor
og vonast til að geta haft nóg að
gera í Grease og leikhúsinu þang-
að til. „Auðvitað er það óskastað-
an, en ef ekkert er í boði nema
afgreiðslustörf þá auðvitað reyn-
ir maður bara að vinna sér inn
pening eins og maður getur. Ef
ég kemst ekki inn hér heima fer
ég pottþétt út og þá þarf maður
að vera búinn að safna sér ein-
hverjum peningum.“ En er ein-
hver tími fyrir félagslífið og vin-
ina þessa dagana? „Jú. En þar
kemur það að það hjálpar mér
að drekka ekki, sem ég hef aldrei
gert. Ég get því alltaf farið í partí
og verið stálslegin daginn eftir.
Kærastinn minn drekkur held-
ur ekki þannig að það er eins hjá
honum,“ segir Ólöf Jara og bætir
því við að löngunin til að smakka
áfengi hafi einfaldlega aldrei
gert vart við sig. Er aldrei neinn
þrýstingur á að smakka? „Fólk
hefur bara gefist upp á að reyna,
það veit að það þýðir ekkert að
bjóða manni. Þetta er samt svo-
lítið fyndið að fólk er alltaf mjög
hissa á því að ég drekki ekki þegar
það er í raun fyrst löglegt nú í ár
að ég bragði áfengi. En ég held að
vinum mínum finnist alveg jafn
gaman að hafa mig í partíum þótt
ég sé edrú.“
ER MJÖG SJÁLFSTÆÐ
Vonast til að halda áfram í leiklistinni Ólöf Jara ætlar að þreyta inntökupróf í vor.
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n Stjörnumerki:
Steingeit.
Besti tími dagsins:
Kvöldin.
Geisladiskurinn í
spilaranum:
Grease eins og er.
Uppáhaldsverslunin:
Hagkaup. Því þar er
opið allan sólarhring-
inn. Við kærastinn
nýtum okkur það.
Uppáhaldsmaturinn:
Kalkúnninn hans
pabba á gamlárs-
kvöld.
Líkamsræktin:
Baðhúsið og Grease-
æfingar.
Mesta dekrið:
Að gera ekkert.
Mesta freistingin:
Súkkulaðikökur. Get
ekki staðist þær.
Ég lít mest upp til:
Mömmu og pabba.
Áhrifavaldurinn:
Tónlist.
Draumafríið:
Þar sem sólin skín og
ódýrt er að versla.
Hverju myndirðu
sleppa ef þú yrðir að
spara:
Förðunarvörum.www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Stuðningshlífar
fjölbreytt úrval