Fréttablaðið - 08.05.2009, Qupperneq 34
8 föstudagur 8. maí
núna
✽ menning og matur
Ferðafélag Íslands
Skráðu þig inn – drífðu þig út
www.fi .is
Barnavagnavika FÍ
11. – 15. maí
Gönguferðir fyrir barnafólk með barnavagna og kerrur, alla daga vikun-
nar 11. – 15. maÍ. Léttar, skemmtilegar gönguferðir, góð hreyfi ng og
góður félagsskapur. Allar gönguferðir hefjast klukkan 16.00
Fyrsta gönguferðin er frá Perlunni og er gengið um Öskjuhlíð. Dagskrá
barnavagnavikunnar má sjá á heimasíðu FÍ www.fi .is
Fararstjórar: Auður Kjartansdóttir og Páll Guðmundsson
Þátttaka er ókeypis, allir velkomnir.
MORGUNMATURINN: Hinn týpíski morgunmatur hérna í Brussel fyrir mér
er „croissant“ og kaffi og það er hægt að fá það á flestum stöðum. Volgt
„croissant“ bregst aldrei en það er sjaldgæft að fá gott kaffi. Þar sem ég bý
fyrir ofan kaffihús fer ég yfirleitt bara niður og fæ mér morgunmat þar þegar
þannig stendur á.
SKYNDIBITI: Þar sem þetta er Belgía myndi ég segja franskar, það virðist
vera hálfgerður þjóðarskyndibiti Belganna, svona svipað og pylsur eru fyrir
okkur, auðvelt að grípa þetta og kasta þessu í sig.
KAFFI: Það er kaffihús á Rue Jourdan í St. Gilles, í einni af hliðargötunum af
Avenue-Louise. Þar er hægt að fá allar tegundir af kaffi. Þar vinna þeir einu
kaffiþjónar hér í Brussel sem kunna að búa til almennilegt kaffi og cappuci-
no. Annars er helst hægt að veðja á ítalska veitingastaði til að fá gott kaffi.
ÚT AÐ BORÐA: Það er mikið af litlum skemmtilegum veitingastöðum hér úti
um allt. Sem fínt út að borða mæli ég með Belgaqueen, sem er mjög flott-
ur veitingastaður en sem rómantískan
stað mæli ég með að finna bara einn
lítinn kósí stað, það er nóg af þeim.
BEST GEYMDA LEYNDARMÁL-
IÐ: Fjölbreytileikinn í borginni og fal-
legur arkitektúr falinn inni á milli ljótra
húsa. Hér er mikið af innflytjendum og
þeir setja sterkan svip á sum hverf-
in. Eina stundina labbar maður í gegn-
um fínt hverfi en tekur svo eina beygju
og er kominn inn í allt annan menn-
ingarheim. Sem dæmi má nefna afr-
íska hverfið í Ixellas, á sólríkum sum-
ardegi væri vel hægt að ímynda sér
að maður væri staddur í afrískri borg.
Sömu sögu er að segja um arkitektúrinn. Ef fólk hefur áhuga á fallegum arki-
tektúr þá þarf virkilega að nota augun hér í Brussel, oft eru langar raðir af
ljótum húsum en svo kemur eitt og eitt stórkostlegt inn á milli.
UPPÁHALDSVERSLUNIN: Lítil búlla sem er á Rue Ernest Solvay. Eigandi
búðarinnar saumar flest fötin þar sjálfur og það er hægt að kaupa, skó, tösk-
ur og aðra fylgihluti fyrir mjög sanngjarnt verð. Vöruúrvalið er kannski ekki
mikið en það er alltaf gaman að kíkja þarna við og skoða.
BESTA VIÐ BORGINA: Í mínum huga er það besta við borgina hið öfluga
tónlistarlíf hérna. Það koma margir tónlistarmenn hingað, bæði þekktir og
óþekkti og alltaf einhverjir skemmtilegir tónleikar.
BEST AÐ EYÐA DEGINUM: Það eru margir skemmtilegir staðir til þar sem
hægt er að eyða deginum. Á sunnudögum myndi ég mæla með því að kíkja
á fiskmarkaðinn á St. Catherine. Þar er hægt að snæða fiskisnakk og fá sér
léttvín með. Platz Sablon er skemmtilegt á sunnudögum, margar búðir opnar
og um morguninn er flóamarkaður ekki svo langt frá. Þá er líka hægt að fara
í Afríkusafnið, það er í útjaðri Brussel og stendur í mjög fallegum garði með
vatni. Eða bara hanga á bar og prófa allar bjórtegundir sem framleiddar eru
í Belgíu.
BEST AÐ EYÐA KVÖLDINU: St. Gery er staður hér í borg þar sem er mikið
af kaffi- og veitingahúsum. Á fallegum vorkvöldum er mjög skemmtilegt að
sitja þar fyrir utan, hitta fólk og fylgjast með mannlífinu. Þegar kaldara er í
veðri þá mæli ég með því að fara út að borða á einhverjum kósí stað og kíkja
svo aðeins á Archiduke sem er skemmtilegur bar á Rue Danseart. Um helg-
ar er Brussel 24 tíma borg þannig að þegar barir loka geta þeir allra hörðustu
farið á einhverja klúbba sem eru opnir langt fram undir morgun.
BRUSSEL
Erna Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Eftirlitsstofnun EFTA
Memento Mori er titill sýningar Ragnhildar Ágústsdóttur sem
stendur yfir í Gallerí Fold þessa
dagana. Þessi latneska setning
þýðir „Munum að við erum öll
dauðleg“. Dauðinn kemur vissu-
lega við sögu í verkum Ragnhild-
ar en þar er að finna dauð dýr
sem hún málar á striga. „Fólkið
og dýrin koma úr hinum ýmsu
áttum. Dýrin eru öll eða flest
dáin og hafa
þau dáið ýmist
með því að vera
veidd, keyrt á
þau eða fundin
dáin í náttúr-
unni. Svo byggi
ég mínar skiss-
ur á þessum
dýrum sem öðl-
ast svo „nýtt líf“
í formi málverks,“ útskýrir Ragn-
hildur. Þetta er önnur einkasýn-
ing Ragnhildar en áður hélt hún
sýninguna „Leit sankti Húberts“
í Stykkishólmi í Norska húsinu í
júlí á síðasta ári við góðan orð-
stír. Þar á undan tók hún þátt í
samsýningu, Í bláum skugga, sem
haldin var á sama stað. Myndefnið
sækir Ragnhildur víða að en flest-
ar eiga myndirnar það sameigin-
legt að í þeim birtast myndir frá
æskuslóðum Ragnhildar í Stykkis-
hólmi og Breiðafirðinum. „Ég ber
sterkar rætur til þesssara slóða
og hef alltaf séð þetta umhverfi í
málverkunum sem ákveðna leik-
mynd.“ - amb
Myndlist:
Æskuslóðirnar í Breiðafirði
notaðar sem leikmynd
Ragnhildur
Ágústsdóttir
myndlistarkona
Memento Mori Líkaminn á verki Ragnhildar minnir á Venus Titians en hér er hún með
höfuð hreindýrs og liggur með Breiðafjörðinn í bakgrunninum.
MATARTORG Í LAUGARDALSHÖLL Sýningin Ferðalög og frístundir stendur yfir um
þessar mundir og þar er glæsilegt matartorg. Í dag, föstudag, fer svo fram vínþjónakeppni þar
sem keppt er í vínsmökkun. Tilvalið að skella sér og rifja upp vínkunnáttuna.
BORGIN
mín