Fréttablaðið - 08.05.2009, Page 42
8. maí 2009 FÖSTUDAGUR8
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing um breytingar á aðalskipulagi og kynning á
breytingu á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins
Í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar til kynningar tillögur að breytingum á Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001 - 2024.
Hólmsheiði, tímabundin aðstaða fyrir fisflug
Við kafla 3.2. bætist við nýr kafli 3.2.3. Landnotkun í Hólmsheiði 2001-2024 og skýringarmynd, 10. mynd.
Eftirfarandi texti verður í kaflanum: Hólmsheiðin er skilgreind sem opið svæði til sérstakra nota. Markmið
aðalskipulagsins er að byggja svæðið upp sem útivistarsvæði, m.a. með skógrækt (S). Á afmörkuðum
svæðum í Hólmsheiði er gert ráð fyrir frístundaiðju, sbr. ákvæði um opin svæði til sérstakra nota. Meðal
annars er gert ráð fyrir tímabundinni aðstöðu fyrir fisflugi, túni til lendingar og annarri aðstöðu á melum
sunnan Langavatns. Stígur norðan hitaveitulagnar, til norðurs vestan Langavatns, breytist úr reiðstíg í
stofnstíg. Reiðstígur, til vesturs, við vesturenda Langavatns er felldur út.
Nánar um tillögu vísast til kynningargagna
Hólmsheiði, tímabundin losun ómengaðs jarðvegs
Í kafla 3.1.9. bætist við eftirfarandi setning (feitletruð): „...Á opnum svæðum til sérstakra nota má gera
ráð fyrir veitumannvirkjum, s.s. dælu-, fráveitu– og spennustöðvum, sem afmörkuð verða í deiliskipulagi
viðkomandi svæða. Enn fremur er heimilt að losa ómengaðan jarðveg á afmörkuðum svæðum. Gera
skal grein fyrir umfangi losunar, skilmálum og frágangi svæða í deiliskipulagi.” Í kafla 3.1.9.3. bætist
við eftirfarandi setning í lok kaflans (feitletruð): „Innan græna trefilsins er heimilt að losa ómengaðan
jarðveg á afmörkuðum svæðum, enda samræmast jarðvegsfyllingar markmiðum útivistar, uppgræðslu og
skógræktar á svæðinu. Gera skal grein fyrir umfangi losunar, skilmálum og frágangi svæða í deiliskipulagi”
Við kafla 3.2. bætist við nýr kafli 3.2.3. Landnotkun í Hólmsheiði 2001-2024 og skýringarmynd, 9. mynd.
Eftirfarandi texti verður í kaflanum: Hólmsheiðin er skilgreind sem opið svæði til sérstakra nota. Markmið
aðalskipulagsins er að byggja svæðið upp sem útivistarsvæði, m.a. með skógrækt (S). Á afmörkuðu svæði
á Hólmsheiði er heimiluð losun ómengaðs jarðvegs (L, sjá 9. mynd). Gert er ráð fyrir að jarðvegsfyllingin
verði mótuð og ræktuð upp á skipulagstímabilinu með þarfir útivistar að leiðarljósi.
Nánar um tillögu vísast til kynningargagna
Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl.
8:20 – 16:15, frá 8. maí 2009 til og með 22. júni 2009. Einnig má sjá tillögurnar á heimasíðu sviðsins,
www.skipbygg.is undir mál í kynningu. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Samanber lög nr. 105/2006 liggur umhverfisskýrsla frammi ásamt aðalskipulagstillögu um
tímabu dna aðstöðu fyrir fisflug. Ábendingum og athugasemdum við tillögurnar skal skila skriflega eða á
netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs eigi síðar en 22. júní 2009. Vinsamlegast notið
uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Samhliða kynningu á aðalskipulagstillögum liggur frammi breyting
svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðissins
vegna Græna trefilsins, breyting á skilgreiningu.
Tillaga að óverulegri breytingu á svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins 2001-2024
vegna Græna trefilsins, breytt skilgreining
Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnarfjarðarbær, Garðabær og Mosfellsbær auglýsa, skv. 2.
mgr. 14. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 m.s.br., tillögu að breytingu á svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins 2001-2024.
Tillagan felur í sér breytingar á skilgreiningum varðandi græna trefilinn sem settar eru fram í greinargerð
svæðisskipulagsins á bls. 59-61. Tilgangurinn breytinganna er að einfalda orðalag og undirstrika að frekari
útfærsla stefnumörkunar og nánari skilgreining landnotkunar innan trefilsins sé í höndum sveitarfélaganna
og sett fram í viðkomandi aðal– og deiliskipulagsáætlunum. Einnig er bætt inn nýrri setningu varðandi
heimild um tímabundna losun ómengaðs jarðvegs á svæðinu, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Tillagan felur ekki í sér breytingar á megin markmiðum um græna trefilinn né breytingar á landfræðilegri
afmörkun hans. Yfirvöld viðkomandi sveitarfélaga bæta það tjón sem einstakir aðilar kunna að verða fyrir
við breytinguna. Tillagan hefur verið kynnt öllum sveitstjórnum á höfuðborgarsvæðinu. Tillagan verður
send Skipulagsstofnun sem gerir tillögu til umhverfisráðherra um lokaafgreiðslu. Þeir sem óska nánari
upplýsinga um tillöguna geta snúið sér til skrifstofu skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar,
Borgartúni 12-14 eða á skipulag@rvk.is.
Skipulagsstjóri Reykjavíkurborgar
Skipulagsstjóri Kópavogsbæjar
Skipulagsstjóri Hafnarfjarðarbæjar
Skipulagsstjóri Garðabæjar
Skipulagsstjóri Mosfellsbæjar
Reykjavík, 4. maí 2009
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
BORGARTÚNI 12-14 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 1111 - MYNDSENDIR 411 3071
Auglýsing um breytingar á
deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru hér með
auglýstar tillögur að breytingum á deiliskipulagi í
Reykjavík.
Hólmsheiði, aðstaða fyrir fisflug
Tillaga að deiliskipulagi á Hólmsheiði vegna
tímabundinnar aðstöðu fyrir Fisfélag Reykjavíkur. Í
tillögunni er gert ráð fyrir tímabundinni afmörkun
svæðis fyrir starfsemi Fisfélags Reykjavíkur, sunnan
við Langavatn. Um er að ræða þrískipt svæði,
flugbrautir og æfingaaðstaða fyrir vélknúin fis,
svæði fyrir bílastæði og flugskýli og svæði fyrir
félagsheimili og útivist.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Hólmsheiði, losun á jarðvegi
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Hólms-
heiði vegna tímabundinnar aðstöðu fyrir losun
á ómenguðum jarðvegi. Í breytingunni felst
að jarðvegstippur er stækkaður til suður við
hitaveitutanka á Hólmsheiði. Aðkoma verður um
tengibraut frá Reynisvatnsvegi að Langavatni og
bráðabirgðavegi frá Langavatni að jarðvegstipp.
Með úrskurði úrskurðarnefndar skipulags- og
byggingarmála dags. 24. júlí 2008, var samhljóða
deiliskipulag fellt úr gildi þar sem nefndin taldi
að deiliskipulagið samræmdist ekki að fullu
ákvæðum svæðis- og aðalskipulags. Með
vísan til niðurstöðunnar hefur Reykjavíkurborg, í
samráði við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu,
látið gera tillögu að breytingu á Svæðisskipulagi
höfuðborgarsvæðisins og Aðalskipulagi Reykjavíkur
í samræmi við niðurstöðuna og birtast auglýsingar
um þær breytingar samhliða auglýsingu þessari.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna
Tillögurnar liggja frammi í þjónustuveri
Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð,
virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 8. maí 2009 til
og með 22. júni 2009. Einnig má sjá tillögurnar á
heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem
telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna
sér tillögurnar. Ábendingum og athugasemdum
við tillögurnar skal skila skriflega eða á netfangið
skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs
eigi síðar en 22. júní 2009. Vinsamlegast notið
uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir
með tölvupósti. Þeir sem eigi gera athugasemdir
innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 8. maí 2009
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Tilkynningar
HELGIN