Fréttablaðið - 08.05.2009, Page 50
30 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
kl. 22.00
Í kvöld og annað kvöld verð-
ur Bryndís Ásmundsdóttir með
drengjahljómsveit sinni á Græna
hattinum og þrusar þar í efnisskrá
með lögum Janis Joplin. Bandið
skipa fimm úrvalstónlistarmenn.
Tónleikarnir hefjast bæði kvöldin
kl. 22 og er húsið opnað kl. 21.
> Ekki missa af …
margbreytilegri sýningu
Guðrúnar Kristjánsdóttur
í Hafnarborg sem lýkur á
sunnudag. Guðrún vinnur
þar með landslagsmálverkið
íslenska sem er heldur betur
að færa sig upp á skaftið. Á
sunnudag verða þær mæðgur
Guðrún og Oddný með spjall
um innviði sýningarinnar og
hefst það kl. 15. Þær ræða um
veðrið og hvernig það teiknar
myndir í hlíðar.
Baltasar var kjörinn heið-
urslistamaður Kópavogs
2007 fyrir tæpu ári. Hann
hafði þá um langt árabil
sett svip sinn á bæjarlífið á
Kársnesinu og verið af-
kastamikill myndlistarmað-
ur allur götur frá því hann
kom hingað norður ungur
maður snemma á sjöunda
áratugnum. Heiðurinn kom
því ekki á óvart.
Á Kópavogsdögum sem nú eru
nýhafnir opnar Baltasar sýn-
ingu í Gerðarsafni á verkum sem
hann hefur málað á síðastliðnum
tveimur árum.
Sýningin er tvískipt. Þrjá-
tíu málverk á efri hæð safnsins
sækja myndefni í guði og goð-
sagnir frá mismunandi menn-
ingarheimum. Þar birtast hlið
við hlið heiðin minni og mýtur
og kristnar helgisagnir sótt-
ar í egypska, grísk-rómverska
og norræna goðafræði, gyðing-
dóm og kristni. Þessar myndir
koma nú í fyrsta sinn fyrir sjón-
ir almennings.
Á neðri hæð safnsins eru sjö
stórar myndir sem byggja á Sjö
orðum Krists á krossinum sem
sýndar voru á listahátíð í Hall-
grímskirkju 2008 og vöktu þá
mikla athygli þeirra sem sáu.
Þeim fylgir texti séra Hallgríms
Péturssonar úr Passíusálmun-
um.
Í túlkun sinni segist Baltas-
ar leggja áherslu áherslu á hið
mannlega eðli Krists, fyrirgefn-
ingu hans og uppsprettu vonar.
Forráðamenn Gerðarsafns hafa
lýst einstakri ánægju með að geta
boðið landsmönnum að kynna sér
nýjustu verkin úr smiðju þessa
ástsæla málara en Baltasar á
sér aðdáendur um land allt sem
sumir hafa fylgst með honum í
hartnær hálfa öld. Þetta er fyrsta
stóra málverkasýning Baltasars
um langt árabil en hann hefur
um nokkurt skeið verið heillað-
ur af trúarlegum viðfangsefnum
í myndlist sinni sem nú má sjá í
góðu úrvali verka hans í Gerðar-
safni.
Aðgangur að safninu er ókeyp-
is og allir velkomnir. Sýningin
stendur til og með sunnudegin-
um 21. júní. pbb@frettabladid.is
HELGIMYNDIR BALTASARS
PRÝÐA NÚ GERÐARSAFN
LOKI Í VALSHAMNUM Eitt málverka Baltasars frá liðnu ári, en ríka hneigð til trúarlegr-
ar tjáningar er að finna í þeim.
Kvikmyndin Draumalandið eftir Þorfinn Guðna-
son og Andra Snæ Magnason er orðin aðsóknar-
mesta og tekjuhæsta heimildarmyndin frá upp-
hafi mælinga á Íslandi með aðsókn upp á 13.359
manns og tekjur upp á rúmlega þrettán milljónir
eftir aðeins 28 daga í sýningu, segir í tilkynn-
ingu frá dreifingaraðila verksins. Draumalandið
sló þar við nýlegu meti Sólskinsdrengsins.
Frá 12. maí verður myndin sýnd með ensk-
um texta kl. 18 í Háskólabíói. Annars er myndin
sýnd í Smárabíói og Háskólabíói í Reykjavík og í
Borgarbíói Akureyri fram í næstu viku.
Fjórar aðsóknarmestu heimildarmyndir hér
á landi í sýningu kvikmyndahúsa eru: Drauma-
landið með 13.359 gesti, Sólskinsdrengurinn
eftir Friðrik Þór með 13.347 gesti, Þetta er ekk-
ert mál – Jón Páll með 11.554 gesti og loks Blind-
sker með 7.764 gesti. - pbb
Gott gengi í Draumalandi
ANDRI SNÆR Metsölu-
höfundurinn gerir það
gott í bíó.
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200 / midasala@leikhusid.is / www.leikhusid.is
Hart í bak
Creature - gestasýning
Ó, þú aftur - afmælissýning Hugleiks
Í Óðamansgarði - ópera í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík
Skoppa og Skrítla í söng-leik
Kardemommubærinn
Samsýning nokkurra erlendra og íslenskra
listamanna verður opnuð í Gallerí Turpentine í
eftirmiðdaginn í dag. Níu listamenn sýna saman
og koma frá Íslandi, Englandi og Frakklandi.
Þeir kalla samsýninguna Þú ert fallegri en fiðr-
ildi og er þar vísað til fegurðardýrkunar sem þeir
segjast takast á við. Það að vera fallegri en fiðrildi
er að vera fallegri en nokkuð annað og óðurinn
til fegurðar getur tekið á sig ýmsar myndir.
Allir eiga myndlistarmennirnir í þessari
sýningu það sameiginlegt að aðhyllast ákveðna
fegurðarnálgun í verkum sínum. Þeir eru Birgir
Snæbjörn Birgisson, Olly Fathers, Eric Genevrier,
Ed Hodgkinson, Helgi Már Kristinsson, Peter
Lamb, Danny Rolph, Pétur Thomsen og Joby
Williamson.
Sýningin stendur til 31. maí en Gallerí Turpent-
ine er á Skólavörðustíg 14. - pbb
Fegurðardýrkun í Turpentine
Faux Pli´ eftir Joby Williamson 2009.