Fréttablaðið - 08.05.2009, Qupperneq 56
36 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
> LYKILMAÐURINN
Atli Sveinn Þórarinsson hefur
verið leiðtogi Valsliðsins undanfarin
ár og mun gegna því
hlutverki áfram í sumar.
Valur missti miðvörðinn
Barry Smith en fékk
Reyni Leósson í
staðinn og ljóst
að hann og Atli Sveinn munu
skipa eitt sterkasta miðvarðarpar
deildarinnar á komandi tímabili.
FRÉTTABLAÐIÐ SPÁIR VAL 2. SÆTINU Í PEPSI-DEILDINNI 2009
GENGI SÍÐUSTU ÁRA 2008 5. sæti í A-deild 2007 1. sæti í A-deild 2006 3. sæti í A-deild 2005 2. sæti í A-deild 2004 1. sæti í B-deild 2003 10. sæti í B-d.
AÐRIR
LYKILMENN
BJARNI ÓLAFUR
EIRÍKSSON
BALDUR
AÐALSTEINSSON
BALDUR
BETT
GENGI Á VORMÓTUNUM
Sigrar Jafntefl i Töp
3
5
> X-FAKTORINN
Sóknarmennirnir Helgi
Sigurðsson, Marel Baldvinsson og
Viktor Unnar Illugason eru allir sterkir
í sínu fagi en hafa þó átt það til að
meiðast á undanförnum misserum.
Verði þeir heilir er ljóst að Valur mun
tefla fram öflugri sóknarlínu.
2
„Þetta er ykkar spá, þið hljótið að hafa ykkar
faglega mat á því,“ sagði Willum Þór Þórsson,
þjálfari Vals, um spá Fréttablaðsins fyrir kom-
andi tímabil.
„Það eru gríðarlega breytingar á okkar leik-
mannahópi. Mér þætti gaman að sjá hvernig
þið komust að þessari niðurstöðu. 2. sætið er
mjög sérstök niðurstaða og ófagleg.“
Hann segir að lið Vals sé óskrifað blað. „Við
misstum mikið af mjög sterkum leikmönnum
og þar á meðal kjarna af leikmönnum. Það
gleðilega er að við erum búnir að fá sterka leik-
menn þökk sé krafti og dugnaði stjórnarmanna
félagsins. Það er svo mín ábyrgð að raða þessu
saman í lið. Við höfum unnið vel í vetur, allir
sem einn, að því að vera með gott og sam-
keppnishæft lið í sumar.“
„Það hefur eðlilega ekki verið að smella neitt
sérstaklega vel á undirbúningstímabilinu. Við
höfum átt góða kafla en þetta þekkir maður úr
starfinu. Þetta tekur tíma.“
Hann bendir einnig á að nokkrir leikmenn
hafi átt í meiðslum í vetur, eins og Guðmund-
ur Viðar Mete og Viktor Unnar Illugason. „Svo
misstum við Kristján Hauksson, sem setur strik í
reikninginn. Hann var búinn að spila í vörn liðs-
ins í allan vetur. En Fram bauð vel og ákveðið
var að taka því boði.“
Valur missti tvo landsliðsmenn til Noregs á
síðasta tímabili og alla útlendingana sína, fimm
talsins. Leikmannahópurinn er þó sterkur á að
líta eftir viðbætur vetrarins. Meðal þeirra sem
Valsarar hafa fengið í vetur eru Reynir Leósson,
Guðmundur Mete, Haraldur Björnsson, Ian Jeffs,
Marel Baldvinsson, Ólafur Páll Snorrason, Pétur
Georg Markan og Viktor Unnar Illugason.
Ófaglegt að spá okkur öðru sæti
FÓTBOLTI Landsliðskonan Dóra Stef-
ánsdóttir missti af upphafi tíma-
bilsins í sænsku kvennadeildinni
þegar hún meiddist aðeins tveim-
ur vikum fyrir mót. Hún er komin
aftur af stað, sem eru mjög góðar
fréttir fyrir bæði lið hennar LdB
FC Malmö sem og íslenska lands-
liðið.
„Ég kom inn á í tuttugu mínútur
á móti Piteå og svo spilaði ég allan
leikinn á móti Kristianstad. Ég var
þá að spila á miðjunni á mínum
stað og í sama kerfi og ég var að
spila með landsliðinu. Það er frá-
bært að komast aftur af stað,“
segir Dóra.
„Síðasti leikur var okkar besti
leikur á tímabilinu hingað til. Við
leggjum mikið upp úr sóknarleikn-
um og við erum með frábæra leik-
menn í þeim stöðum,“ segir Dóra
en LdB FC Malmö hefur skorað 21
mark í undanförnum þremur leikj-
um. „Markmiðið er að taka efsta
sætið og fá gullið og bikarinn. Við
erum alveg búnar að fara með það
í fjölmiðlana,“ segir Dóra.
Fram undan eru samt erfiðir
leikir við aðalkeppinautana um
titilinn. „Allir leikir skipta máli
en í maí erum við að fara að mæta
öllum þessum stóru liðum. Við
erum að fara inn í rosalegt leikja-
prógramm þar sem við mætum
Djurgården, AIK, Linköping og
Umeå í einni röð. Nú reynir á
liðið,“ segir Dóra.
Dóra er að spila sitt fjórða tíma-
bil með LdB FC Malmö en fyrir
ári var hún aðeins önnur tveggja
íslenskra leikmanna í deildinni
en núna eru þær orðnar níu. „Það
er ýkt gaman að fá að spila á móti
íslensku stelpum. Ég er ánægð
með að stelpurnar hafi skellt sér
út og það hefur gengið vel hjá
þeim öllum. Allar sem hafa verið
að koma út eru að styrkja sín lið.
Þær eiga eftir að styrkja sig lið
enn meira og bæta sig líka sjálf-
ar,” segir Dóra.
Dóra er ánægð með að spila sína
stöðu á miðjunni en hún hefur
verið að spila úti um allan völl hjá
Malmö. „Ég tel það minn helsta
styrkleika að ég get spilað marg-
ar stöður. Um leið er alltaf meiri
möguleiki á að fá að spila. Maður
er í samkeppni við háklassa leik-
menn frá sínum löndum,“ segir
Dóra og bætir við:
„Maður hefur betri tilfinningu
fyrir því hvar hinar eru á vellin-
um þegar maður hefur spilað fleiri
stöður. Ég kippi mér ekkert upp
við það hvar ég spila og er bara
ánægð ef ég er inni á vellinum,“
segir Dóra.
Dóra viðurkennir að það hafi
verið áfall að meiðast rétt fyrir
mót enda er fram undan spennandi
sumar þar sem landsliðið tekur
þátt í sínu fyrsta stórmóti.
„Þetta var nokkrum dögum eftir
Algarve-bikarinn, það hafði geng-
ið rosalega vel þar og ég var komin
í gott leikform. Ég var að spila alla
leiki í byrjunarliðinu þegar þetta
gerðist og það var að sjálfsögðu
pínu sjokk að detta út tveimur
vikum fyrir mót,“ segir Dóra.
„Ég ákvað strax að vera jákvæð
og hugsaði að þetta myndi styttast
með hverjum deginum. Ég æfði
mjög vel og reyndi að taka þessu
rólega og reyna ekki að stressa
mig of mikið. Þeir sögðu við mig
sex til átta vikur og í síðasta leik á
móti Kristianstad voru liðnar sex
eða sjö vikur og ég búin að spila
heilan leik. Það gekk miklu betur
en ég þorði að vona,“ segir Dóra.
Hún ætlar ekkert að spara sig í
næstu leikjum þrátt fyrir þennan
meiðslaskrekk.
„Minn leikstíll er að gefa allt
mitt í þetta. Ef ég ætla að vera eitt-
hvað pen þá er ég búin að tapa því
sem ég hef,“ segir Dóra.
Dóra sleppti landsleiknum á
móti Hollandi á dögunum en ein-
beitti sér þess í stað að því að ná
sér hundrað prósent góðri.
„Það er ömurlegt að missa af
landsleikjum en það er ekki hægt
að taka áhættu þegar það er svona
stórt sumar fram undan. Næsta
verkefni er í júlí þegar við spilum
við England og Danmörku en núna
er maður bara að einbeita sér að
Malmö,“ sagði Dóra að lokum.
ooj@frettabladid.is
Ekki minn leikstíll að vera pen
Dóra Stefánsdóttir og félagar í LdB FC Malmö eru á toppi sænsku deildarinnar eftir að hafa skorað 21
mark í síðustu þremur leikjum. Dóra er búin að ná sér af meiðslunum og spilaði allan síðasta leik.
MEÐ LANDSLIÐINU Dóra
Stefánsdóttir í leik á móti
Frökkum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
HANDBOLTI Það heldur áfram að
kvarnast úr karlaliði Fram því þeir
Guðjón Finnur Drengsson
og Jóhann Gunnar Ein-
arsson hafa ákveðið
að spila með liðinu á
næstu leiktíð.
Kassel leikur í þýsku
C-deildinni og er stýrt af
Íslendingnum Aðalsteini
Reyni Eyjólfssyni sem
náði mögnuðum árangri
í þjálfun kvennaliða áður
en hann hélt utan til Þýska-
lands.
Aðalsteinn hefur einnig
verið að ná afar eftirtekt-
arverðum árangri með
þýska liðið og það verið á
mikilli silgingu síðan hann
tók við stjórnartaumunum.
Mikill metnaður er hjá
eigendum félagsins
sem ætla sér að koma
því upp í deild þeirra
bestu á sem skemmst-
um tíma.
Fyrir utan
þessa tvo
leikmenn mun
Fram einnig sjá
á bak Rúnari Kárasyni
sem hefur samið við þýska liðið
Fuchse Berlin. Svo er Brjánn
Guðni Bjarnason líklega á leið-
inni utan í nám.
„Þetta er bara afar spennandi
og það er tilhlökkun í okkur
að fara til Þýskalands,“ sagði
Guðjón Finnur en hann skrif-
aði undir samninginn fyrir
nokkru síðan.
„Ég er búinn að spila
með Fram allt mitt líf
og það er gaman að
athuga hvort það sé ekki
skemmtilegt að spila
handbolta einhvers staðar
annars staðar.
Ég verð seint ríkur
á þessum samn-
ingi enda þarf ég
líka að vinna einhverja
tíma með þessu. Það er í
góðu lagi enda finnst mér
ekkert að því að vinna og
hef unnið við ýmislegt um
ævina. Ég væri þess vegna
til í að moka skurði eða graf-
ir,“ sagði Guðjón létt-
ur en hann heldur
utan ásamt konu
og fjögurra ára
dóttur í lok júní.
Þriðji Íslendingurinn er einn-
ig á leið til félagsins en það er
Daníel Berg Grétarsson, fyrr-
um leikmaður Fram en
hann lék með Aftureld-
ingu í vetur. Það verður
því íslenskt stemning hjá
Kassel næsta vetur.
- hbg
Guðjón Finnur Drengsson og Jóhann Gunnar Einarsson búnir að semja við þýska félagið Kassel:
Ég verð seint ríkur á þessum samningi
TIL KASSEL
Þeir Jóhann
Gunnar og
Guðjón
fara til
Þýska-
lands í
sumar.
HANDBOLTI Einar Jónsson hefur
framlengt samning sinn sem
þjálfari kvennaliðs Fram til árs-
ins 2011.
Einar hefur náð glæsilegum
árangri með liðið sem hefur lent í
öðru sæti síðustu tvö ár.
Hann var þó ansi pirraður eftir
að hafa tapað 3-0 í úrslitum fyrir
Stjörnunni. Sagðist vera búinn
að fá nóg af því að horfa á önnur
lið lyfta bikarnum á meðan hann
fengi silfur.
„Nú er eitt á dagskrá og það er
að taka gullið í öllu. Það er ekkert
flókið,“ sagði Einar ákveðinn.
„Það er mikill metnaður hjá
okkur og við ætlum alla leið
næsta vetur,“ sagði Einar en
félagið stefnir á að bæta við sig 2-
3 leikmönnum.
Fram mun missa Söru Sigurð-
ardóttur sem er á leið til Þýska-
lands. Hildur Knútsdóttir er á
leið utan í nám og svo gæti Þórey
Rósa Stefánsdóttir verið á leið til
liðs í Danmörku.
Einnig á eftir að semja við
Pövlu Nevarilovu en Annett Köbli
verður líklegast ekki áfram. - hbg
Einar Jónsson:
Nú er það gull
en ekki silfur
EINBEITTUR Einar er oft líflegri á hliðar-
línunni en þessi mynd sýnir.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
KÖRFUBOLTI Jón Arnór Stefánsson
lék sinn fyrsta leik fyrir Benett-
on Treviso í gær. Þá mætti liðið
Bancateras Teramo sem er í
þriðja sæti deildarinnar en Ben-
etton er í því sjötta.
Leikur liðanna var jafn og
hörkuspennandi. Benetton þó
lengi vel með forystuna og virt-
ist vera að klára leikinn þegar
skammt var eftir. Þá kom Banc-
ateras til baka og náði að jafna,
81-81, þegar skammt var eftir.
Benetton liðið tók við sér á ný
og kláraði leikinn 85-82. Flott
byrjun hjá liðinu með nýja liðs-
manninn frá Íslandi.
Jón Arnór var í byrjunarliði
Benetton í kvöld. Hann hefur þó
oft leikið betur. Skoraði 2 stig,
tók 2 fráköst og gaf eina stoð-
sendingu.
Jón hitti úr einu af þrem-
ur tveggja stiga skotum sínum.
Hann reyndi tvisvar þriggja
stiga skot án árangurs. - hbg
Jón Arnór Stefánsson:
Byrjaði á sigri
með Benetton