Fréttablaðið - 08.05.2009, Side 59
FÖSTUDAGUR 8. maí 2009 39
FÓTBOLTI Norski dómarinn Tom
Henning Øvrebø stóð í stórræð-
um á miðvikudagskvöld. Eftir
leik Chelsea og Barcelona þurfti
hann að skipta um hótel og lög-
reglan þurfti að fylgja honum úr
landi. Óttast var að stuðnings-
menn Chelsea myndu taka málin
í sínar hendur eftir leikinn.
Leikmenn Chelsea voru bálreið-
ir út í Øvrebø og töldu hann hafa
kostað liðið sigurinn. Didier Drog-
ba og Michael Ballack gengu hvað
lengst í mótmælum sínum.
Barcelona komst eins og kunn-
ugt er áfram í Meistaradeildinni
en Chelsea vildi fá allt að fjórar
vítaspyrnur í leiknum og hefði að
ósekju mátt fá að minnsta kosti
tvær slíkar.
Lögreglan í Ósló hefur einn-
ig fylgst náið með hótunum sem
hafa verið gerðar í garð Øvrebø
á netinu. Meðal þeirra eru lífláts-
hótanir.
„Við höfum fylgst grannt með
því sem hefur verið skrifað á net-
inu. Allt sem hægt er að túlka
sem ógnun við hans öryggi verður
tekið mjög alvarlega,“ sagði tals-
maður lögreglunnar.
Honum bárust fjölmargar hót-
anir á netinu nú í gærmorgun,
ekki síst á vefsamfélaginu Fac-
ebook. Nægir að slá inn nafn
norska dómarans í leitarstiku
Facebook til að sjá hvaða hópar
(e. groups) hafa verið stofnaðir
um Øvrebø.
Flestir hafa þann tilgang að
lýsa vonbrigðum sínum með dóm-
arann, fá hann rekinn eða hrein-
lega dauðan.
Einn hópurinn ber nafnið
„KILL TOM HENNING OVR-
EBO“, annar „TOM HENNING
OVREBO MUST DIE“ og svo
framvegis.
Einn ákvað að klæða Øvrebø í
búning Barcelona en flestir láta
sér þó nægja að lýsa óánægju
sinni með frammistöðu dómarans
í leik Chelsea og Barcelona í gær.
- esá
Norski dómarinn Tom Henning Øvrebø fer varla í sumarfrí til London:
Smyglað úr landi í lögreglufylgd
ÓVINSÆLL Stuðningsmenn Chelsea munu aldrei gleyma Tom Henning Øvrebø.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
Nú eru gráðaostur og piparostur fáanlegir í handhægum plastöskjum. Sparaðu
tíma og fyrirhöfn við að rífa niður þessa sígildu sósuosta og galdraðu fram
fljótandi meistaraverk.
Við sósugerð er mikilvægt að hræra alltaf með
jöfnum hraða og mynda áttu með sósupísknum.
Þannig næst árangur. www.ms.is/gottimatinn
Sósukokkar athugið!
KJÚKLINGUR
6 stk. kjúklingabringur
3 dl sýrður rjómi
2 msk. sætt sinnep
1 msk. dijon sinnep
3 dl kornflögur
salt og nýmulinn svartur pipar
SÆTKARTÖFLUGRATÍN
1 kg sætar kartöflur
1 stk. meðalstór laukur
100 gr. beikon
4 dl rjómi
100 gr. piparostur rifinn
200 gr. gratínostur
salt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-0
1
9
2
nýjung
á pizzun
a,
í sósuna
í pasta
Kjúklingur
með sinnepssósu
og sætkartöflugratíni
Takið skinnið af bringunum og setjið í
smurt form kryddið með salti og nýmuldum
svörtum pipar. Blandið saman sýrðum rjóma og sinnepi
og smyrjið yfir kjúklinginn. Stráið því næst muldum kornflögum
yfir svo þær hylji kjúklinginn vel . Bakið við 185° í u.þ.b. 30 mín eða þar til
bringurnar eru gegnumsteiktar. Berið fram með sætkartöflugratíni og fersku brokkolí.
Skrælið og skerið sætar kartöflur í teninga og saxið laukinn. Setjið í eldfast mót. Steikið
beikon á pönnu og hellið rjóma yfir, bætið í rifnum piparosti, blandið vel saman, hellið
rjómablöndunni yfir kartöflurnar og stráið loks gratínosti yfir. Bakið við 175° í 30–40 mín.
FÓTBOLTI Bakvörðurinn Jose Bos-
ingwa hjá Chelsea sér eftir því
að hafa kallað norska dómar-
ann Tom Henning Ovebro þjóf
eftir tap liðsins gegn Barcelona í
meistaradeildinni í gær.
Leikmenn Chelsea voru brjál-
aðir yfir frammistöðu Norð-
mannsins eftir leikinn í gær og
vildu meina að þeir hefðu átt að
fá fjórar vítaspyrnur í leiknum.
Bosingwa lýsti því yfir í viðtali
við portúgalska sjónvarpsstöð að
hann vissi ekki hvort dómarinn
væri dómari eða þjófur, því hann
hefði rænt enska liðið farseðlin-
um í úrslitaleikinn.
„Við vorum allir vonsviknir og
svekktir eftir leikinn, en ég sé
eftir því að hafa kallað dómarann
þjóf. Ég hef hugsað málið betur
og mig langar að draga þessi orð
mín til baka,“ sagði Bosingwa í
samtali við portúgalska fjölmiðla
í dag. - bb
Jose Bosingwa:
Dró ummæli
sín til baka
HLJÓP Á SIG Bosingwa sá eftir ummæl-
um sínum. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Það er ekki á hverjum
degi sem menn í íþróttaheiminum
viðurkenna að peningar hafi ráðið
miklu um ákvarðanir þeirra. Það
gerir hins vegar þjálfarinn Felix
Magath í Þýskalandi.
Magath er þjálfari Wolfsburg en
hefur ákveðið að rifta samningi
sínum við félagið ári áður en hann
rennur út og taka við Schalke þann
1. júlí í sumar.
Magath segist hafa náð öllum
sínum markmiðum með Wolfsburg
en neitar ekki að peningarnir sem
Schalke veifaði framan í hann hafi
ráðið miklu.
„Við erum atvinnumenn og þetta
snýst allt um peninga - allt annað
er þvættingur,“ sagði Magath.
Stuðningsmenn liðsins eru
afar óhressir með þessa ákvörð-
un þjálfarans og harma að hann
sé að fara frá liðinu þó hann geri
það jafnvel að þýskum meist-
ara í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Magath lætur sér fátt um finnast.
- bb
Felix Magath:
Tók tilboði
hæstbjóðanda