Fréttablaðið - 08.05.2009, Page 62
42 8. maí 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. hvetja, 6. tveir eins, 8. bók, 9. sjór,
11. tveir eins, 12. ofan á brauð, 14.
verður, 16. skóli, 17. ferð, 18. með-
vitundarleysi, 20. grískur bókstafur,
21. fyrr.
LÓÐRÉTT
1. þurrka út, 3. tveir eins, 4. vits-
munamissir, 5. sigað, 7. hjáguð, 10.
skammstöfun, 13. gifti, 15. hljómsveit,
16. af, 19. í röð.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. örva, 6. ff, 8. rit, 9. mar,
11. tt, 12. álegg, 14. skalt, 16. fg, 17.
för, 18. rot, 20. pí, 21. áður.
LÓÐRÉTT: 1. afmá, 3. rr, 4. vitglöp,
5. att, 7. falsgoð, 10. rek, 13. gaf, 15.
tríó, 16. frá, 19. tu.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8.
1 Illugi Gunnarsson.
2 Andrés Iniesta.
3 Nítján plötum.
Ingvi Hrafn Jónsson
er kominn heim frá
Flórída og í síðasta þætti
Hrafnaþings fitjaði
hann upp á sérkenni-
legri deilu sem er
risin milli hans og
Bubba Morthens.
Ingvi Hrafn var hvass í viðtali við
DV þegar hann talaði um framferði
Glitnismanna í veiðihúsi við Langá,
þeir hafi migið og skitið í rúm sín
dauðadrukknir og Bubbi spilað
undir. Bubbi sagði í kjölfarið réttast
að Ingvi Hrafn færi í meðferð.
Ingvi Hrafn sagðist ekkert ætla
að svara þessum ummælum en
hafði sérkennilegan hátt á því:
Þetta væri sérkennilegt komandi
frá manni sem væri nú réttur og
sléttur farandtónlistarmaður sem
væri að snapa gigg hér og þar en á
sínum tíma hafi hann selt sálu sína
útrásarvíkingum.
Fréttablaðið hefur fylgst
ítarlega með gerð kvik-
myndarinnar Dead of
Night enda skartar hún
íslensku Hollywood-
stjörnunni Anitu
Briem í einu
aðalhlutverkanna.
Blaðamenn iesb.
net heimsóttu
tökustað fyrir nokkru og hápunktur
þeirrar ferðar var þegar Aníta bauð
þeim inn í hjólhýsi sitt og spilaði
fyrir þá á gítar og söng á íslensku.
Nokkrar stórstjörnur hafa boðað
komu sína í úrslitaþátt Idolsins
enda ekki á hverjum degi sem
óþekkt söngkona gengur heim
með tvær milljónir í farteskinu.
Einn þeirra sem hyggst koma fram
er áðurnefndur Bubbi Morthens
og hljómsveit hans Egó. Eins og
frægt er orðið var ákveðið að skipta
út allri dómefndinni í Idolinu fyrir
þessa þáttaröð og það
mæltist víst misvel fyrir
hjá þeim sem sátu þá í
dómarasætinu, þeirra á
meðal var einmitt
Bubbi. - jbg, fgg
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Það er Gullfoss á Radisson
SAS-hótelinu. Þeir eru með
hádegisverðartilboð á kræklingi
í skel sem er algjör snilld. Þetta
er hollt, gott og ódýrt.“
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir leikkona
Leikritið Þú ert hér sem hefur verið sýnt í Borgarleikhúsinu að und-
anförnu er nú á leið af fjölunum. Síðasta sýning er í kvöld en Mind-
group-hópurinn, sem stendur að baki sýningunni, er síður en svo af
baki dottinn. Jón Atli Jónasson, einn meðlima Mindgroup, upplýsir
nefnilega að hópurinn eigi í viðræðum við leikhús á Norðurlöndunum
og í Þýskalandi um að setja verkið upp þar.
„Já, og þau vilja gjarnan fá okkur. Hins vegar segir það kannski
mest um hvernig litið er á Ísland um þessar mundir að leikhúsin hafa
mestar áhyggjur af því hvernig við ætlum að ferðast. Það eru nefni-
lega sumir sem halda að það sé ekki hægt að fljúga á Íslandi, að allt
millilandaflug hafi verið lagt niður,“ segir Jón Atli og hlær, bætir
því síðan við að þetta sé langt frá því það fáranlegasta sem hann hafi
heyrt í kringum kreppuna, ónefndur bókaútgefandi hafi nefnt það við
hann fyrir nokkru að einhverjir Íslendingar hafi fengið matarsend-
ingar að utan. Jón Atli bætir því við að þeir hafi ekki tekið ákvörð-
un um hvort þeir sýni á íslensku á Norðurlöndunum, viðurkenn-
ir að það gæti verið spennandi kostur enda séu töluvert margir
Íslendingar sem hafa þar aðsetur og eru hálfgrunlausir um hvað
er hér í gangi.
Fullvíst má telja að Þú ert hér á eftir að vekja mikla athygli
utan landsteinanna enda fjallar verkið um hrunið, kreppuna og
eftirmál góðærisins. Ísland hefur verið samfleytt í sex mánuði
í kastljósi heimspressunnar vegna þessara hluta. „Reyndar fara
menn að hlæja þegar við segjum hvaða hluti okkur vantar fyrir
sýninguna,“ útskýrir Jón en það munu vera lúxusjeppi og kampa-
vín. - fgg
Mindgroup í útrás
TIL ÚTLANDA Þú ert hér er
engin venjuleg leiksýning
en þar er efnahagshrunið á
Íslandi tekið fyrir.
ER FLOGIÐ? Jón
Atli Jónasson
segir útlendinga
hafa undarlegar
hugmyndir um
Ísland; þeir hafi
til að mynda
áhyggjur af því
hvernig leikhóp-
urinn komist milli
landa.
„Mér líst bara ljómandi vel á þetta, fyrsti dag-
urinn gekk vel og ég held að okkur eigi bara
eftir að takast vel upp,“ segir leikarinn Jörund-
ur Ragnarsson. Tökur á Fangavaktinni hófust
á miðvikudag, búið er að byggja fangelsi í upp-
tökuveri úti í bæ en eins og komið hefur fram
í fjölmiðlum mun þriðja og síðasta þáttaröð-
in um þá Daníel, Ólaf Ragnar og Georg gerast
að mestu leyti á Litla-Hrauni. Jörundur var
að koma sér vel fyrir í fangaklefanum sínum
þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði
og virtist ekkert sérstaklega hrifinn af vistar-
verunum.
Leikarar Fangavaktarinnar hafa verið tíðir
gestir á hinu raunverulega Litla-Hrauni og Jör-
undur kveðst hafa rætt við nokkra fanga þar
inni til að undirbúa sig sem best fyrir hlutverk-
ið. „Ég lét þó ekki loka mig inni, mér fannst
alveg nóg að sjá aðra lokaða inni.“
Jörundur hefur nú verið Daníel í ein þrjú ár,
nánast samfleytt. Og sú törn sem nú gengur í
garð verður sú lengsta og mesta. Því um leið og
tökum á sjónvarpsþáttunum er lokið hefst und-
irbúningur og gerð kvikmyndarinnar, Bjarn-
freðarson. „Það verður gott að klára þetta og
kveðja þessa karaktera, ekki það að ég sé kom-
inn með leiða á þeim, allir góðir hlutir verða
bara að taka einhvern enda,“ segir Jörundur.
Og frændi Jörundar, stórleikarinn Ingvar E.
Sigurðsson, leikur einnig í seríunni, er fangi
á Hrauninu sem tekur Jörund að sér á fyrstu
dögunum. „Og svo þróast samband þeirra á óút-
reiknanlegan hátt sem ég ætla að segja sem
minnst um,“ segir Jörundur og er ljóst að aðdá-
endur Vakt-þáttanna mega búast við öllu í þess-
ari síðustu seríu. - fgg
Jörundur Ragnarsson lokaður inni
LOKAÐUR INNI Jörundur Ragnarsson virðir fyrir sér
vistarverurnar á Litla-Hrauni en tökur á Fangavaktinni
hófust á miðvikudaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Kjóllinn sem Jóhanna Guðrún mun
klæðast í forkeppni Euro vision
á þriðjudagskvöld vakti mikla
athygli á æfingum í Moskvu í gær.
Mikil leynd hefur hvílt yfir honum
en það er fatahönnunartvíeykið
Andersen & Lauth sem á heiður-
inn að honum. Óhætt er hægt að
segja að frumsýningin á honum
hafi gengið vonum framar því
erlendir blaðamenn stóðu nánast
á öndinni yfir glæsileika íslensku
Eurovision-stjörnunnar. Fjölmarg-
ir bláir litir prýða hann og stein-
ar en hann þykir nokkuð mikill um
sig að neðan en er þröngur að ofan.
Mátti nánast heyra saumnál detta
þegar Jóhanna birtist fyrst á svið-
inu í dressinu sem skiptir ekkert
minna máli en lagið sjálft. Sjálf
var Jóhanna hæstánægð þegar
Fréttablaðið náði af henni tali:
„Þetta gekk alveg frábærlega vel
og ég gæti ekki verið ánægðari.
Það hefur allt gengið eins og í sögu
og við erum mjög vel undirbúin. Ég
hef ekki heyrt annað en lof og hrós
fyrir kjólinn.“
Ekki hafa allir Moskvufarar hins
vegar verið eins heppnir með föt
sín og stjarnan Jóhanna. Sigmar
Guðmundsson sjónvarpsmaður,
sem lýsir keppninni beint á RÚV,
var svo óheppinn að farangurinn
hans varð eftir í London. „Þetta er
bara svona, vonandi kemst hann
til skila í kvöld,“ segir sjónvarps-
maðurinn
En það voru ekki bara föt Sig-
mars sem urðu eftir á Heathrow-
flugvellinum. Kjóll sem Jóhanna
Guðrún hugðist nota fyrir vegleg
samkvæmi var nefnilega meðal
þeirra hluta sem sjónvarpsmað-
urinn átti að flytja frá Íslandi til
Rússlands. „Sem betur fer, eða svo
skilst mér, er þetta ekki keppn-
iskjóllinn, þá hefði verið veru-
lega illt í efni,“ útskýrir Sigmar
og er augljóslega létt. Hann seg-
ist reyndar sjá mest eftir nikót-
ínúðanum sem hafi verið pakkað
niður í Reykjavík því ekki sé hægt
að fjárfesta í slíkum varningi þar
ytra. Til að bæta gráu ofan á svart
er Rússland mikið skriffinnsku-
veldi og það er ekkert grín að týna
ferðatöskum. „Nei, mér leið eins og
ég væri að sækja um ríkisborgara-
rétt, þurfti að fylla út einhverjar
fjörutíu til fimmtíu skýrslur í þrí-
riti en það verður vonandi til þess
að blessuð taskan kemst í réttar
hendur.“ freyrgigja@frettabladid.is
SIGMAR GUÐMUNDSSON: FATALAUS SJÓNVARPSSTJARNA Í MOSKVU
Kjóll Jóhönnu Guðrúnar
vakti athygli á stóra sviðinu
Í KEPPNISKJÓLNUM Á ÆFINGU Jóhanna Guðrún æfði í kjólnum eftir Andersen &
Lauth í fyrsta skipti í gærkvöldi. Æfingin gekk vel og vakti íslenski hópurinn sem fyrr
talsverða athygli. Jóhönnu var mikið hrósað fyrir kjólinn. FRÉTTABLAÐIÐ/ALMA
FATALAUS OG ÁN NIKÓTÍNÚÐA Sigmar
Guðmundsson verður að treysta á guð
og lukkuna ef taskan með fötunum hans
á að komast til skila. Samkvæmiskjóll
Jóhönnu var meðal þeirra muna sem Sig-
mar átti að flytja frá Íslandi til Rússlands.
PLASTPARKET
TILBOÐ
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki