Fréttablaðið - 08.05.2009, Síða 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
Í dag er föstudagurinn 8. maí,
128. dagur ársins.
4.36 13.24 22.15
4.05 13.09 22.15
Ný lausn í heimabanka Byrs
Það er einfaldara en þú heldur!
Einföld aðgerð í heimabanka Byrs þér að kostnaðarlausu
Stakar eða fastar mánaðarlegar greiðslur
Ekkert uppgreiðslugjald á íslenskum lánum undir 50 m.kr. hjá Byr
Sjáðu hvað þú sparar á byr.is
Nýttu þér persónulega þjónustu og faglega ráðgjöf í sparisjóðnum
Milljóna sparnaður með 10.000 króna aukagreiðslu á mánuði
Tökum sem dæmi 11 milljón króna verðtryggt íbúðalán sem tekið var í september
2007. Með því að greiða 10.000 krónur aukalega á mánuði, sparast 10.671.376
krónur á lánstímanum. Miðað er við 6% vexti og 5% verðbólgu á 40 ára lánstíma.
Aukagreiðslan bætist við mánaðarlega afborgun og lækkar höfuðstól lánsins.
Höfuðstóllinn lækkar hraðar en upphaflegar afborganir gera ráð fyrir og við það
sparast milljónir í vaxtakostnaði og verðbótum.
D
Y
N
A
M
O
R
E
Y
K
JA
V
IK
Lausnir með fjárhagslegri heilsu
Fjármálanámskeið á mannamáli Stöðumatið mitt og Heimilisbókhald Fjármálapróf
Heilsupróf og ráðgjöf Lenging lána Greiðslujöfnun húsnæðislána Fyrirframgreiðsla Lífsvals
Frysting erlendra lána Niðurgreiðsla lána
Þú getur sparað
milljooo.ooonir
með niðurgreiðslu
íslenskra lána!
-það er fjárhagsleg heilsa!
90
80
100
70
60
50
40
30
20
10
0
Fyrir
104
93,5
Eftir
Fj
ár
hæ
ði
r í
m
ill
jó
n
IS
K
Bæklingur fylgir með
inni í blaðinu í dag
í mars
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Tæki færi
Til allrar hamingju hef ég aldrei þurft að taka til í ríkisfjármál-
um, sópa út spillingu eða pakka
niður úr sér genginni hugmynda-
fræði. Mig grunar samt að í grunn-
inn sé ekki svo mikill munur á því
að gera stórhreingerningu heima
hjá sér og að taka til í heilu þjóðar-
búi. Sömu lögmál hljóta að eiga við
– að halda sér vel að verki og beita
sjálfan sig aga því það er freist-
andi að gefast upp í miðjum klíðum
og sópa bara öllu undir mottu.
ÞAÐ var ekki laust við að ég vor-
kenndi ráðamönnum þjóðarinnar
svolítið þar sem ég stóð á stofugólf-
inu heima um daginn og reyndi að
hefjast handa við að pakka niður
búslóðinni vegna tímabundinna
flutninga. Smámál miðað við til-
tektina sem ríkisstjórnin stendur
frammi fyrir en verðugt verkefni
engu síður. Ég hóf verkið af krafti
en strax á fyrsta degi missti ég
einbeitinguna og sökkti mér ofan
í gamlar dagbækur sem fundust
niðri í skúffu frekar en að þrífa
klósett eða þvo glugga. Á öðrum
degi hafði ég síðan alveg gleymt
stað og stund, það var ekki fyrr en
ég opnaði skápinn í svefnherberg-
inu sem raunveruleikinn læddist
aftan að mér og ég mundi hvernig
ástandið í þjóðfélaginu er og hvers
vegna ég var að taka til á annað
borð.
ÞARNA blöstu við mér í röðum,
jakkaföt, skyrtur og bindi í öllum
regnbogans litum, áþreifanleg
sönnun þess að einu sinni var góð-
æri á Íslandi og þá bjó bankastarfs-
maður á heimilinu sem þurfti á
svona fatnaði að halda. Þetta var
árið 2008. Ekki svo langt síðan en
samt fannst mér ég vera að hand-
fjatla hálfgerða fornmuni þegar ég
tíndi herlegheitin út úr skápnum.
Það þurfti að koma þessum góðær-
isleifum úr augsýn enda ástæðu-
laust að láta jakkaföt fylla út í fata-
skápinn vorið 2009.
SVO hófst burðurinn. Óteljandi
ferðir niður í geymslu með fang-
ið fullt af bankamannsfötum. Mér
fannst þetta taka heila eilífð og var
dösuð en glöð á eftir þegar ég virti
fyrir mér plássið sem myndaðist
í fataskápnum þegar þessi ósköp
voru horfin.
KANNSKI eru stjórnvöld að mikla
tiltektina svolítið fyrir sér. Það
þarf bara að ganga til verks, troða
góðærisleifunum inn í geymslu og
byrja upp á nýtt með tóma skápa.
AUÐVITAÐ þarf svo að taka til í
geymslunni á endanum en það má
bíða betri tíma.
Vorhreingern-
ingin