Skinfaxi - 01.11.1927, Síða 3
SKINFAXI
131
undirbúningstíminn hefði ekki verið svo naumur. Sið-
an liafa nokkrir bæst við og fjölgar þeim stöðugt.
Nú liefir sambandsþing ungmennafélaganna samþykt
á ný, að gangast fyrir þvi, að sem flestir klæðist þjóð-
búningi á alþingishátíðinni 1930. Væri það vel, því að
ef það yrði alment, þá mundi það selja meiri svip á
hátíðahöldin en nokkuð annað gæti gert.
1. mynd. íslenskur þjóðbúningur (A hátíðabúningur, B sport-
og sumarkyrtill, C Vetrarbúningur, I) liekla — punktalínurn-
ar sýna vasa innan á).
Sigurður Guðmundsson málari gerði, eins og kunn-
ugt er, töluverðar breytingar á skautltúningnum, og
kom því lagi á hann, sem nú er haft. Hefir hann og
skrifað nokkuð um karlmannabúninga á söguöldinni
og mun hafa haft í hyggju að gangast fyrir því að lit-
klæðin yrðu tekin upp aftur, sem íslenskur þjóðþúning-
ur, en honum entist ekki aldnr til þess.
Búningur sá, sem hjer ræðir um, er að sjálfsögðu
bygður á því, sem menn vita um karlmannabúning til
forna. Iiefi eg þar notið aðstoðar hins fróðasta manns
hér á landi í þessum efnum, Mattliíasar pórðarsonar