Skinfaxi - 01.11.1927, Qupperneq 6
134
SKIN5AXI
saumi, en ei' útsaumur er hafður, skyldu menn velja
til þess fornislenska eða norræna uppdrætti (t. d. dreka-
stílinn svonefnda). Varast skyldi fíngerða hlómaupp-
drætti og marglitan útsaum. Eins þarf búnaðurinn eða
silfrið að vera í fornum stíl, helst steypt eða drifið.
B e l t i ð er 4—5 cm. á breidd og spent saman með
hringju; lika getur það verið læst með skildi, en þá
þarf það helst að vera silfurbúið eða lagt með silfri
alt í kring). pað er úr þykku leðri, svörtu eða brúnu.
B u x u r n a r eru sniðnar eins og venjulegar „sport-
buxur“, þröngar fyrir neðan lméð og nokkru víðari um
lærin. Ná þær niður í sokkabandsstað og ganga utan-
yfir sokkana. J?ær eru spentar saman með hringju
utan á hnénu. Neðst á buxnaskálmunum eru hafðir
smeygar, sem efsti vafningurinn af leggjaböndunum er
dreginn í gegnum, til þess að buxurnar kippist ekki upp
á háhnéð eins og þær annars mundu gera, vegna þess,
hve stuttar þær eru. Á buxunum eru sex vasar (2 bak-
vasar, 2 bliðarvasar og 2 framaná), til þess að bæta
það upp að engum vösum er hægt að koma fyrir á
kyrtlinum.
Skikkjan (sjá 1. og 3. mynd) er sett saman úr
6 stykkjum og er í laginu eins og % úr kringlu. Ganga
allir saumarnir út frá miðju. Skikkjan verður að vera
lítið eitt breiðari á þverveginn, því hún kippist nieira
upp á öxlunum en að aftan og framan, og virðist hún
því vera langtum styttri til hliðanna ef hún er sniðin
alveg kringlótt. Hún er hérumbil jafnsíð kyrtlinum,
og þó heldur síðari. J?að mun vera hæfilegt, að þegar
maður stendur með höndurnar niður með hliðunum,
þá taki liún aðeins fram fyrir fingurgómana. Sjálf-
ráður er hver um það, hvort hann hefir skikkjuna
fóðraða eða ekki, en betur mun þó fara á því að hafa
hana fóðraða, nema hún sé úr mjög þykku efni. Skikkj-
an er lögð umhverfis hálsinn og niður barmana (i skaut
niður) með 7—8 cm. breiðri leggingu (sjá 1. mynd A).