Skinfaxi - 01.11.1927, Side 29
SKINFAXI
157
Handknattleikur.
Leik þennan lcunna nú orðiú æði inargir víðsvegar
út um alt land. Má því búast við að farið verði alment
að keppa í honum á iþróttamótum og samkomum ung-
mennafélaga. En til þess að koma i veg fyrir að ágrein-
ingur þurfi að verða út úr reglunum, þykir mér rétt
að biðja Skinfaxa fyrir þær til birtingar, eins og eg
veit þær sannastar og réttastar.
40 m
Vallarstærð. Sé leikið úti, má völlurinn ekki
vera minni en 40 m. á lengd og 20 m. á breidd, og það
alt upp i 60x30 m. Ef leikið er inni, þá takmarkast
svæðið af liúsinu.
Markstær ð skal vera úti 1,70 m. breidd, 2—2,20
m. á hæð. Inni eru mörkin venjulega máluð á gafl-
veggina og mega vera nokkuð minni, eða 1,50 á livorn
veg.
Markteigur lieitir svæði það fyrir framan mark-
ið, sem algerlega er friðhelgað fyrir öllum, nema mark-
manninum. Er það hálfhringur, sem hefir 3 m. geisla
úr miðju marki, 1,70 sé leikið inni.
Vítismerki er 10 m. úr marki, ef verið er úti;
sé leikið inni, þá á miðju! gólfi.