Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 3

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 3
SKINFAM 3 liafa hér hafizt handa og tekiS að sér, að nokkru, sama hlutverk og' lýðháskólahreyfing Norðurlanda, sem sé það, að plægja þjóðlífsjarðveginn á þann hátt, að vekja hrifni og áliuga, fullviss um það, að þegar áhugi er vakinn lijá einstaklingnum, þá fyrst fáist hann til að leggja fram alla getu sína að þeim störf- um, er hann liefir með höndum. Og reynslan hefir sýnt, að viðleitni þeirra í þessa átt liefir borið tals- verðan árangur. Það sannar bæði hve margir leið- andi menn þjóðarinnar liafa verið ungmennafélag- ar, og hve lýðskólahreyfingin, sem er beinn ávöxtur eða þroski Ungmennafélaganna, er nú að leggja land- ið undir sig. Og lýðskólarnir eru þau vígi þjóðernis- legra hugsjóna, sem sumir stjórnendur ungmennafé- laganna hafa frá öndverðu vonað að hyggð yrðu fyr eða síðar og sem þeir vænta að verði aflgjafar og leiðarvitar þeirra hugsjóna, er borið liafa ungmenna- félagshreyfinguna uppi að þessu. Framsóknarbarátta íslenzku þjóðarinnar hefir á þessum síðustu 25 árum, lyft Islandi frá því að vera 25—50 árum á eftir flestum menningarþjóðum á öll- um verklegum sviðum og i fleiru, til þess að standa þeim nú jafnfætis á morgum svfðum. Það ræður að líkum, að þær feikna framfarir liafi mjög umskap- að lífsskilyrðin og fjölgað verðmætum, en sú geta er þjóðin hefir sýnt á þessum árumr liefir líka vak- ið henni fasta og örugga trú á sjálfa sig og landið, og sú trú er henni máske enn meira virði en allar framfarirnar. Annars liggur aðalhætta þjóðlegs þroska okkar — eins og allra þjóða með óðfluga framfarir — í því að oss hættir til að taka bætt lífsskilyrði og nýsköp- uð verðmæti fyrir lífsgildið sjálft. En það er sitt hvað. Skilyrði og verðmæti lífsins breytast ört og alstað- ar, en hið eiginlega lífsgildi helzt altaf óbreytt, frá þvi fyrsta, er við höfum sögur af mannkyninu. —

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.