Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 13
SklNFAXI
13
annað en vonina um að geta gert landið sitt betra og
fegurra.
Ungmennafélögin liafa nú lifað i aldarfjórðung. Þau
liafa stefnt hátt, stundum sigrað, en líka biðið ósigur.
Þau liafa um eitt skeið verið ein hin djúptækasta
vakningaralda, sem gengið liefir vfir landið. Þau eru
enn og verða vonandi enn um langt skeið, lampi æsk-
unnar í liinum dreifðu hyggðum landsins. Þau hafa
verið skóli fyrir þúsundir af lcörlum og lconum, sem
nú bcra byrðar starfs og iðju hér á landi. Þau hafa
verið hin sístarfandi undiralda í frelsisbaráttu lands-
ins. Þau liafa liér, eins og i Noregi, fremur en nokk-
ur önnur alþjóðleg vakningarstarfsemi, búið islenzku
þjóðina undir að geta á sínum tíma orðið fullkomlega
frjáls, ekki að eins í orði, lieldur líka i raun og veru.
Akureyri er merkilegur bær, og liefir borið giftu
til að fóstra margar þjóðnvtar hreyfingar. Á Akur-
eyri hóf góðtemplarareglan starfsémi sina. Þar fædd-
ist og hið fyrsta samvinnufélag með ensku sniði. Þar
liófst nútimaræklun með stofnun Ræktunarfélags
Norðurlands, og þar hefir vagga islenzks ungmenna-
félagsskapar staðið fyrir 25 árum. Þess er að vænta,
að höfuðstaður Norðurlands verði á sama liátt á ó-
komnum öldum skapandi máttur i þjóðlífi landsins,
og að sú hin óhrifamilda hreyfing, sem heldur aldar-
fjórðungs afmæli sitt og þar er uppsprottin, megi sem
lengst verða frjór aflgjafi i lífi frjálsrar menningar-
þjóðar á Islandi.
Jónas Jónsson.