Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 31
SKINFAXI 31 liennar og sóma fremur en annarra, að öðru jöfnu. Þú nefnir dæmi um þjóðlegt efni, er hampað sé sem hnossi, en raunar sé „rotið og fúið“, úrelt og farandi veg allrar veraldar: íslenzka sveitamenn- ingu. Eg las það milli línanna, að þú ]>ykist ná þér þarna vel niður. Moldarkofarnir hrynja, þúfurnar hverfa úr túnunum og afarnir og ömmurnar, sem Guðmundur á Sandi lýsir, fara undir græna torfu. Menn eru hættir að eta úr öskum og trogum og tré- koppur fyrirfinnst enginn. Þá fer vist að verða litið eftir af sveitamenningunni marglofuðu handa o'ss ungmennafélögum að bjástra við — finnst þér ekki? Gallinn er bara sá, að rök þín sanna ekkert af þvi, sem þú ætlast til. Islenzk sveitamenning er ekki óumbreytanleg og æ hin sama, því að el' liún væri það, þá hætti lnm fljótt að vera menning. Hún er sifelldur vöxtur og eilíf þróun. Lainbhúskofinn hans afa, í sögu Guðmundar Friðjónssonar, er engin menn- ing, freniur en húsið, sem reis á rústum hans. Húsa- kynni, matarílát, eldhúsreykui', þýfð tún og „bölvað ekki-sen ílátaleysið“ -— þetta er engin menning, lield- ur umhúðir menningar — nokkuð af þeim kjörum, sem hún á við að búa. Gildir um það sama og fötin mín í dæminu hér að framan. Dauðir afar og sálaðar ömmur geta verið sæmilegir fulltrúar sveitamenn- ingar sins tima, en ekki þeirra ára, sem nú líða. Ef þú villt leiða fram fulltrúa íslenzkrar svcitamenn- ingar um siðustu aldamót, þá geturðu tekið t. d. samvinnufrömuðina og alþýðuskáldin i Þingeyjar- sýslu: Jakob Hálfdánarson, Benedikt frá Auðnum, Sigurð i Yztafelli, Þorgils gjallanda, lndriða á Fjalli, Guðmund á Sandi o. m. fl. Og fulltrúar sveitamenn- ingar yfirstandandi ára gætu verið t. d. Bjarni i Hólmi o. fl. skaftfellskir rafmagnsmenn. íslenzk sveitamenn- ing getur engu síður búið við slétt tún, skrúðgarða og góð steinhús, en þýfi og moldarhaðstofur. Eg ef-

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.