Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 22

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 22
22 SKINFAXI Þjóðernislegi grundvöllurinn. (Eg get hugsa'ð mér, að margir ungmennafélagar geti haft gagn og gaman af, að lesa og hugleiða bréfkafla þá, er hér birtast. Þeir eru svo til komnir, að eg spurði formann eins utansambands-félags, hví félag hans væri ekki í sambandinu. Eg bjóst við, að venjulegu viðbárurnar kæmu: skatturinn, bindindisheitið. En það varð þjóðernislegi grundvöllurinn, sem hér var fyrir borinn. Bréfkafli Sk. G. er birtur með leyfi hans. Kvaðst hann eiga undir drengskap mínum, hvað eg tæki, og vona eg honum þyki ekkert úr fellt, það er máli skiftir. — A. S.). I. Bréfkafli úr Strandasýslu. Eg liefi nú á seinni árum töluvert reynt að hlera eftir því, livað menn teldu „þjóðlegt". Þetta orð hefir sem sé verið á allra vörum og alstaðar nálægt, eins og guð almáttugur. Það liefir skartað í dálkum lilað- anna, skáldin tiafa sungið því lofsöngva. Ræðuskör- ungar liafa revnt á því mælsku sina og manna á milli hefir verið japlað á því eins og útþvældri tó- bakstölu. Og árangurinn af þessari eftirgrennslan minni hefir orðið mjög á einn veg: „þjóðlegt“ er eitthvað gamalt, eitthvað rotið og fúið, eilthvað, sem gengið liefir sér til liúðar, eitthvað, sem verið er að tjónka við, eitthvað, sem tilheyrir fortið, en ekki nútíð, -— einliver afturganga, sem verið er að vekja upp. En frá mínu sjónarmiði lítur það nú þannig út, að það, sem orðið er úrelt, á að fara — hversu sem það er þjóðlegt eða „ramm-íslenzkt“. Yið eigum ekki að vaka yfir því, að varðveita hið gamla, heldur ber okkur jafnan að leita, — leita þrotlaust, eftir nýjung- um, gera samanburð á þeim og því gamla. Verði

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.