Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 37

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 37
SKINFAXI 37 húsum og öllum áhöldum og hverju þvi, sem sliku liöf- uðbóli fylgir, og liver hlutur ó sínum stað, eins og vera ber á reglusömu fyrirmyndarheimili.Yarhúgarðurþessi keyptur og fluttur og byggður þarna á ný með sömu húsaskipun og í öllu gætt hinnar mestu nákvæmni að hvergi væri brugðið út af þvi sem var. — I þriðju deild- inni er iðntækjasafnið. Þar eru sýndar allskonar vinnu- stofur, sem sýna hversu fjölþættur iðnaður Guðbrands- dalsbúa liefir verið á miðöldunum, því að allir munir, og byggingar á safninu eru 100—450 ára gamlar, svo að liér er um forngripasafn að ræða. Því miður er liér ekki rúm til að lýsa nákvæmlega þessu merkilega safni. Aðeins vil eg geta þess, livernig það er til orðið. Árið 1883—4 settist Anders Sandvig að í Liilehammer scm tannlæknir. Hann ferðaðist um Guðbrandsdalinn, dró úr og gerði við tennur í fólki, tók aldrei borgun fyrir í peningum, Iieldur í gömlum niunum, ef til voru, og 1887 hafði hann safnað svo miklu, að safnið var stofnað. Síðan hefir hann óþreyt- andi unnið að vexti safnsins, scm nú er eign bæjarins, svo að nú eru þar um 50 hús og yfir 10,000 munir. Sem dæmi um áhuga og dugnað Sandvigs má gela þess, að 1869 var rifin gömul stafkirkja i Garmo. Hún var orðin svo hrörleg, að hvorki þótti ráðlegt að láta liana slanda, né gerlegt að endurbæta hana svo, að nothæf yrði. Kirkja þessi var, að þvi er ætlað er, frá 13. öld, og þegar búið var að rífa hana, var brakið selt á uppboð og dreifðist um allan dalinn, sem raftar í útihús o. s. frv. Eftir aldamótin byrjaði Sandvig að heimsækja þá bæi, sem uppboðsbækur sýndu, að liöfðu fengið sprek úr kirkjuviðunum, og falaðist eftir að fá viðina keypta. Engri spýtu liafði verið brennt, því að til þess hafa Norðmenn nóg af öðru timbri, en spreltin voru föst í húsunum og því erfitt að ná þeim, og voru undirtektir því misjafnar undir málaleitun Sandvigs. I 20 ár var hann óþreytandi að ferðast um dalinn, tala

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.