Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 14
14
SKINFAXI
Afmæli ungmennafélaganna.
Afmælisungmennafélagannamega
ÆF^ margir minnast með jjakklæti og
l’ezluóskum um gott framlíðai'starf.
PETi ■ Ungmennafélagslirevfingin liófst
W/gMUgrM sem þjóðleg vakning. Sú vakning
hefir orkað á hugarfar margra ís-
lendinga, sem nú eru miðaldra og
yngri. Augu æskumannanna opnuð-
ust fyrir kostum hinnar þjóðlegu menningar og það
vakti lotning fyrir fortíðinni og lyfting í framtíðar-
draumum. — Skilningurinn á sjálfstæði þjóðernisins
varð að öflugu fylgi við fánamálið og ótrauðri bar-
áttu fvrir sjálfstæði íslands í öllum greinum. íþrótta-
iðkanir efldu ])rek, sem síðar lýsti sér í starfi full-
orðinsáranna og fundarhöldin félagslyndi og félags-
dyggðir, sem skapa góða þegna. Áhrif ungmenna-
félaganna á hugarfar æskumannanna hafa verið stcrk
og margvísleg. Gamlir ungmennafélagar finna til
skvldleika, þegar þeir hittast. Árgalinn er ekki þagn-
aður í þeim ennþá. Þeir óska þess lieitt og innilega
nú á þessum tímaniótum, að ungmennafélögin megi
halda áfram að vera það, sem þau hafa orðið mörg-
um góðum dreng á þessum tuttugu og fimm árum.
Æskan þarfnast félagsskapar, til undirbúnings full-
orðinsárunum. Og enginn félagsskapur er nauðsvn-
legri þjóðinni en sá, sem veitir æskulýðnum skemmtun
og starf, skemmtun, sem skapar þrótt og drenglyndi,
og starf, sem eykur skilning og áhuga. Fáninn ís-
lenzki blaktir yfir starfi ungmennafélaganna.
Ásf/. Ásgeirsson.