Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 44

Skinfaxi - 01.01.1931, Blaðsíða 44
44 SIvINFAXI Bækur. Skátabók. Útgefaindi Bandalag íslenzkra skála. Reykjavík 1930. Að þessu hefir skort mjög tilfinnanlega íslenzka hand- bók um skátafélagsskap og kennslubók í því, sem skátar eiga að læra, en nú er hún komin út. Hún er 223 blaðsíður, vönd- uð útgáfa með fjölda mynda og kostar kr. 4,75 i linu lérefts- bandi. Er það mun lægra en almennt bókaverð. Hefir bókiit margvíslegan fróðleik að geyma, og hlýtur að vera mesti happafengur hverjum unglingi. Eigi er ritstjóri Skinfaxa bær að dæma frekar uiu bók þessa, því að hann hefir skrifað veru- legan hluta hennar og séð um útgáfuna. Ferðasögur eflir Jón Trausta eru nýkomnar iit. Segja þær frá ferðum höf. um ísland, einkum um fjöll og firnindi, og er víða við komið og skemmtilega frá sagt, eins og höfund- ar er von og vísa. Þetta er í síðasta skifti, sem ný bók kem- ur út eftir Jón Trausta, og eru þá prentuð ritverk hans 23 bindi. í bókinni eru nokkrar teikningar eftir höf., og liafa sumar þeirra þegar birzt í Skinfaxa. Útgáfan er vönduð, stærð 12 arkir, en verð 5 krónur, og er það lægra en almennt ger- ist á bókum. Hulda: „Berðu mig upp til skýja“. Fillefu æfintýri. ltvik 1930. — Hér er bók, sem líkleg er til að vinna hvers manns vinsældir, en er börnunum sérstaklega verulegur fengur. Hvert æfintýrið öðru fallegra, sögð á gullfögru, látlausu máli og efnið gripið beint úr lifi alþýðu og draumkenndum minn- ingum frá liðmun öldum. Bókin er skreytt mörgum mynd- um eftir 'i’ryggva Magnússon. Skinfaxa hefir borizt önnur ágæt barnabók: Drengirnir mín- ir eftir Gustaf af Gejersla m, sænskan höfund, frásögn af sumarlífi tveggja Stokkhólmsdrengja úti í skerjagarði. Bók þessi er mjög vinsæl í Svíþjóð og líklegt luin verði það einnig hér. Hún er skrifuð af frábærum skilningi á drengjum, fjörug og lifandi. ísak Jónsson kennari hefir jiýtt bókina og gefið út. Félagsprentsmiðjan.

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.